Matvælasjóður
Umsóknarfrestur í Matvælasjóð hefur verið framlengdur til miðnættis 4. mars 2026.
Um Matvælasjóð
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.[](https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/MAR/Fylgiskjol/Handbók 2025.pdf)
[Hér má finna handbók Matvælasjóðs.](https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/ATRN/Fylgiskjol-med-frettum/Handbók 2026.pdf)Samstarfsyfirlýsing, sjá bls. 9 í handbók.
Hægt er að senda inn fyrirspurnir á netfangið [email protected]. Fyrirspurnin skal merkt í efnislínu með þeim flokki sem hún varðar (Bára, Kelda, Afurð eða Fjársjóður). Ef fyrirspurnin er almenns eðlis skal merkja hana „Almennt“ í efnislínu.
Umsóknarkerfi sjóðsins: afurd.is
Matvælasjóður hefur fjóra styrktarflokka
Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Því hefur stjórn sjóðsins ákveðið að veita styrki í 4 styrkjaflokkum Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóð.
BÁRA
Verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni. Málshátturinn „sjaldan er ein báran stök“ merkir að gæta þeirrar fyrirhyggju að maður þoli nokkur áföll og því þarf að undirbúa jarðveginn vel ef umsókn í Báru á að leiða til stærra verkefnis. Í Báru leita þeir frumkvöðlar, og fyrirtæki sem eru með árlega veltu undir 300 milljónum króna, sem vilja skoða hugmynd, hráefni eða aðferðir sem stuðla að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.
KELDA
Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Orðið kelda kemur úr forn norrænu og merkir uppspretta. Kelda er uppspretta nýrrar þekkingar. Tilgangur Keldu er að veita rannsóknastyrki til að hægt sé að afla nýrrar þekkingar sem stuðlar að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu
AFURÐ
Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð. Líta má á þennan flokk styrkja sem tækifæri til að móta og þróa afurð úr með hráefnum sem tengjast matvælaframleiðslu og gera hana verðmætari í ferlinu. Afurðirnar eiga að auka nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla-framleiðslu. Verkefnin geta verið á ólíkum stað í ferlinu, á byrjunarreit eða lokastigum.
FJÁRSJÓÐUR
Fjársjóður styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á framfæri. Skilyrði Fjársjóðs er að varan sé afurð úr íslenskur hráefnum sem ætlað er til matvælaframleiðslu. Tilgangurinn er að veita styrk til fyrirtækja til að styrkja markaðsinnviði og markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu og stuðla þannig að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.
Tímalína sjóðsins:
Stjórn Matvælasjóðs hefur þessi verkefni með höndum;
- gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum að fenginni umsögn fagráðs sem stjórnin skipar til fjögurra ára í senn.
- mótar stefnu fyrir sjóðinn og ber undir ráðherra til samþykktar.
- hefur umsjón með rekstri sjóðsins.
- skilar ársreikningi og reglulegu yfirliti um störf sín til ráðherra.
- setur starfsreglur um auglýsingar, meðferð og mat umsókna, framkvæmd úthlutunar, fagráð o.fl.
Stjórnin er þannig skipuð:
Aðalmenn:
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, formaður, án tilnefningar,
Guðlaugur Sigrúnarson Kristmundsson, án tilnefningar,
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, samkvæmt tilnefningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi,
Axel Sæland, samkvæmt tilnefningu Bændasamtaka Íslands,
Varamenn:Kolbeinn Árnason, án tilnefningar,
Sigurður Eyþórsson, án tilnefningar,
Heiðmar Guðmundsson, samkvæmt tilnefningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi,
Herdís Magna Gunnarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Bændasamtaka Íslands.
Lokaskýrslum fyrir verkefni sem fengu úthlutað árið 2020 og 2021 er skilað með tölvupósti til sjóðsins. Lokaskýrslum verkefna síðan 2022 og síðar er skilað í gegnum umsóknarkerfi sjóðsins.
Fagráð Matvælasjóðs eru skipuð eftirfarandi einstaklingum:
Bára
Jan Eric Jessen – formaður
Halldór Runólfsson
Arnór Bohic
Guðrún Brynleifsdóttir
Trausti Harðarson
Halldór Óli Kjartansson
Anna Margrét Guðjónsdóttir
Kelda IPáll Arnar Hauksson, formaður
Charlotta Oddsdóttir
Berglind Heiðar Andrésdóttir
Helgi Eyleifur Þorvaldsson
Guðjón Þorkelsson
Kelda IISæmundur Sveinsson, formaður
Ólafur Ögmundarson
Laufey Haraldsdóttir
Sigurjón Arason
Bjarnheiður Guðmundsdóttir
Afurð I
María Kristín Gylfadóttir, formaður
Sigurður Ari Sigurjónsson
Guðrún Hulda Pálsdóttir
Hólmfríður Sveinsdóttir
Afurð IIBrynjólfur Eyjólfsson, formaður
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir
Ásgeir Helgi Jóhannsson
Þyrí Halla Steingrímsdóttir
Fjársjóður IHafliði Halldórsson, formaður
Kristinn Björnsson
Tjörvi Bjarnason
Guðbjörg Inga Aradóttir
Fjársjóður IIJóna Björg Hlöðversdóttir, formaður
Dagbjört Hákonardóttir
Sindri Sigurðsson
Laufey Kristín Skúladóttir
Matvæli og matvælaöryggi