Lóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Opið er fyrir umsóknir út 30. mars 2026

Lóu nýsköpunarstyrkir eru ætlaðir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi.

Við mat á nýnæmi verkefna er stuðst við skilgreiningu OECD um nýsköpun. Nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættrar vöru, þjónustu eða ferils, nýrrar aðferðar til markaðssetningar eða nýrrar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum.

Vakin er athygli á að styrkirnir eru einnig fyrir verkefni sem styðja við uppbyggingu á vistkerfi fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á forsendum svæðanna. Slík verkefni munu þó ekki nema meira en helmingi þeirra verkefna sem hljóta úthlutun.

Hlutverk styrkjanna:

  • Auka við nýsköpun á landsbyggðinni og styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum.

Um styrkina:

  • Styrkjunum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins.
  • Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.
  • Styrkjum er úthlutað til árs í senn, hvert verkefni getur hlotið að hámarki 20% af heildarúthlutun hvers árs.
  • Mótframlag frá umsækjanda þarf að lágmarki að vera 30%.
  • Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðla starf á forsendum svæðanna.
  • Matshópur metur umsóknir í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda.
  • Umsóknir berist rafrænt á minarsidur.hvin.is.

Heildarfjárhæð Lóu árið 2026 er 100 milljónir króna.

Umsóknarform má nálgast á minarsidur.hvin.is

Reglur Lóu og upplýsingar:

Handbók um Lóu - nýsköpunarstyrkiReglugerð fyrir Lóu- nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðinaLokaskýrslVerkefni sem hlutu Lóu - nýsköpunarstyrk árið 2025Verkefni sem hlutu Lóu - nýsköpunarstyrk árið 2023Verkefni sem hlutu Lóu - nýsköpunarstyrk árið 2022

Nánari upplýsingar veitir:

Lóa Auðunsdóttir: [email protected]

Matsnefnd Lóu:

Guðmundur Rafnkell Gíslason

Rannveig Björnsdóttir

Sigyn Jónsdóttir

Vinsamlegast hafið ekki beint samband við fulltrúa í matsnefnd. Fyrirspurnum og ábendingum skal beint til Lóu Auðunsdóttur ([email protected]) eða á [email protected].