Sérfræðiráðgjöf og handleiðsla

Rannís

Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar Íslands-Rannís er að veita stuðning við rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu og listir og æskulýðsstarf og íþróttir. Rannís stuðlar að þróun þekkingarsamfélagsins með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum auk þess að greina og kynna áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag.

Atvinnuþróunarfélög

Í landinu er starfandi átta atvinnuþróunarfélög sem öll tengjast landshlutasamtökum sveitarfélaga. Hlutverk atvinnuþróunarfélaga veita ráðgjöf við stofnun og rekstur fyrirtækja á starfssvæðinu, svo sem markaðssókn, vöruþróun, fjármögnun, kynningu, endurskipulagningu, erlend samskipti o.fl. Áhersla skal að jafnaði lögð á nýstofnuð fyrirtæki, fyrirtæki í nýjum atvinnugreinum og fyrirtæki sem hafa afgerandi áhrif á atvinnulíf lítilla byggðarlaga. Félögin veita upplýsingar um mögulega fyrirgreiðslu og aðstoð annarra aðila og leita samstarfs við stofnanir í stoðkerfi atvinnulífs, fyrirtæki og aðra aðila sem vinna ráðgjafar- og leiðbeiningarstarf í atvinnumálum.

Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) býður bændum og öðrum aðilum upp á fjölbreytta ráðgjöf og þjónustu.

Sjá einnig: