Ábyrgir viðskiptahættir

Ensk útgáfa / English version

Ábyrgir viðskiptahættir tryggja að fyrirtæki og fjárfestar starfi í takt við þarfir samfélagsins. Það felur í sér að nýsköpun, fjárfestingar og rekstur fari fram með ábyrgum hætti og uppfylli hæstu gæðaviðmið í allri virðiskeðjunni hvar sem er í heiminum.

Ábyrgir viðskiptahættir snúast um að taka ábyrgð á starfsemi fyrirtækisins og vinna að því að takmarka neikvæð áhrif á fólk, umhverfi og samfélag. Rekstraraðilar fyrirtækja skulu leggja sig fram um að virða alþjóðlegar leiðbeiningar, meðal annars um mannréttindi, vinnuréttindi, umhverfi, loftslagsmál og spillingarvarnir.

Þetta á við um öll fyrirtæki, þeirra virðiskeðju og hvernig vörur þeirra eru notaðar og þeim fargað. Fyrirtæki bera ábyrgð á að tryggja að engin neikvæð áhrif verði á fólk, umhverfi og samfélag vegna aðgerða birgja, viðskiptavina eða annarra viðskiptafélaga.

Tengiliður á Íslandi

Skrifstofa viðskipta og markaða í atvinnuvegaráðuneytinu er tengiliður Íslands fyrir viðmiðunarreglur OECD um ábyrga viðskiptahætti fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki .

Tengiliðir aðstoða fyrirtæki og hagsmunaaðila  við að gera viðeigandi ráðstafanir til að efla fylgni við viðmiðunarreglurnar og vera sáttavettvangur til að leysa mál sem kunna að koma upp í sambandi við þessar leiðbeinandi reglur.

Viðmiðunarreglur OECD

Viðmiðunarreglur OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki eru ráðleggingar frá stjórnvöldum um ábyrga viðskiptahætti, óháð því hvar í heiminum þau starfa. Þær fjalla m.a. um mannréttindi, réttindi starfsmanna, umhverfi, loftslag og baráttu gegn spillingu.
Markmið reglnanna er að efla efnahagslega, félagslega og umhverfislega velferð og draga úr neikvæðum áhrifum af starfsemi fyrirtækja. Reglurnar veita sameiginlegan ramma sem auðveldar fyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum að samræma væntingar og stuðla að sjálfbærri þróun.

Upplýsingagjöf

  • Fyrirtæki standa frammi fyrir auknum kröfum um að miðla upplýsingum um sjálfbærni. Þau ættu að veita upplýsingar um alla þætti sem geta haft áhrif á mat fjárfesta á virði fyrirtækisins. Mikilvægt er að miðla trúverðugum upplýsingum um áreiðanleikakannanir og áhrif starfsemi, vöru og þjónustu á fólk, náttúru og samfélag.

Mannréttindi

  • Fyrirtæki ættu að forðast að valda eða stuðla að mannréttindabrotum og skulu bregðast við ef þau koma upp. Einnig að vinna gegn neikvæðum áhrifum sem þau tengjast í gegnum viðskiptasambönd. Mannréttindakaflinn í leiðbeiningunum er að fullu samræmdur við leiðbeinandi reglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi.
  • Fyrirtæki ættu að forðast ólögmæta starfshætti í vinnumarkaðs- og stéttarfélagsmálum. Þau skulu virða rétt starfsmanna til að stofna eða ganga í stéttarfélög og semja sameiginlega. Þau skulu stuðla að afnámi barnavinnu og nauðungarvinnu, tryggja jöfn tækifæri og öruggt, heilnæmt vinnuumhverfi. Kaflinn er í samræmi við yfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um grundvallarréttindi í vinnu.
  • Fyrirtæki skulu virða rétt starfsmanna til að stofna og ganga í stéttarfélög, útrýma nauðungar- og barnavinnu og tryggja öruggt vinnuumhverfi.

Umhverfi

  • Fyrirtæki skulu framkvæma áreiðanleikakannanir til að takast á við neikvæð umhverfisáhrif starfsemi, vöru og/eða þjónustu. Þetta felur í sér áhrif á loftslag, líffræðilega fjölbreytni, vistkerfi á landi og hafi, skógarhögg, mengun lofts, vatns og jarðvegs og úrgangsstjórnun, þar með talið meðferð hættulegra efna. Þau skulu tryggja að losun gróðurhúsalofttegunda sé í samræmi við alþjóðleg loftslagsmarkmið og taka mið af félagslegum áhrifum í umhverfisstjórnun.

  • Fyrirtæki skulu framkvæma áreiðanleikakannanir til að takast á við neikvæð umhverfisáhrif starfsemi, vöru og/eða þjónustu og samræma starfsemi loftslagsmarkmiðum og taka mið af félagslegum áhrifum í umhverfisstjórnun.Barátta gegn mútum og spillingu (Combating Bribery and Corruption)Fyrirtæki skulu koma sér upp aðgerðum til að koma í veg fyrir, greina og bregðast við mútum og annarri spillingu, bæði innan starfseminnar og í viðskiptatengslum.

Neytendamál

  • Fyrirtæki skulu beita sanngjörnum markaðsháttum, tryggja gæði og áreiðanleika vöru og þjónustu og veita réttar, skýrar og nægilegar upplýsingar sem gera neytendum kleift að taka upplýstar ákvarðanir. Fullyrðingar um vörur og umhverfisáhrif skulu byggjast á fullnægjandi gögnum.
  • Fyrirtæki skulu tryggja gæði og áreiðanleika vöru, sanngjarna markaðssetningu og réttar, skýrar upplýsingar fyrir neytendur.

Vísindi, tækni og nýsköpun

  • Tækni hefur víðtæk áhrif á sjálfbæra þróun, mannréttindi, lýðræði, samfélagslega samheldni, loftslag og vinnumarkaði. Fyrirtæki skulu framkvæma áreiðanleikakannanir til að koma í veg fyrir og bregðast við neikvæðum áhrifum sem tengjast þróun, notkun og viðskiptum með tækni og nýsköpun.
  • Fyrirtæki skulu framkvæma áreiðanleikakannanir til að koma í veg fyrir neikvæðum áhrifum sem tengjast tækni og nýsköpun, t.d. á mannréttindi, lýðræði og loftslag.

Samkepnni

  • Fyrirtæki skulu starfa í samræmi við gildandi samkeppnislög og forðast samninga eða aðgerðir sem hafa skaðleg áhrif á markaðssamkeppni, bæði innanlands og á alþjóðlegum mörkuðum.

Skattar

  • Fyrirtæki skulu greiða skatta á réttum tíma í viðkomandi ríkjum og styðja þannig við opinber fjármál. Skattgagnsæi er mikilvægt til að styrkja trú á skattkerfið og sýna fram á að fyrirtæki fylgi bæði bókstaf og anda skattalaga. Stjórnir fyrirtækja skulu innleiða stefnu og ferla um skattaáhættu til að draga úr fjárhagslegri, lagalegri og orðsporslegri áhættu tengdri skattamálum.
  • Fyrirtæki skulu standa skil á skattgreiðslum á réttum tíma og tryggja gagnsæi sem styður traust og lögmæti skattkerfis.

Skýrslur OECD

Leggja fram kvörtun á Íslandi varðandi ábyrga viðskiptahætti

Til að leggja fram kvörtun til tengiliðs OECD á Íslandi varðandi ábyrga viðskiptahætti, þarf að fylla út [kvörtunarform (PDF-eyðublað opnast)](https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/ATRN/Fylgiskjol-med-frettum/Ábyrgir viðskiptahættir - kvörtun.pdf).

Í kvörtuninni þarf að koma fram:

  • Upplýsingar tengiliðs, s.s. nafn, kennitala, netfang og símanúmer þess sem  leggur fram kvörtun.
  • Fyrir hönd hvaða aðila kvörtunin er lögð fram.
  • Nafn, heimilisfang og aðrar viðeigandi upplýsingar um fyrirtækið, yfirvaldið eða stofnunina sem kvörtunin beinist að.
  • Rök fyrir kvörtuninni, þar á meðal lýsing á atburðum, framkomu og hlutverki hlutaðeigandi fyrirtækis. Einnig tilvísun í þann kafla leiðbeinandi reglna OECD fyrir alþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti sem  talið er að  fyrirtækið hafa ekki farið eftir.
  • Afrit af gögnum sem styðja kvörtunina.
    Ef þörf er á aðstoð eða leiðbeiningum varðandi kvörtunarferlið ber að senda tölvupóst á [email protected]. Skrifstofa viðskipta og markaða í atvinnuvegaráðuneytinu er tengiliður OECD á Íslandi varðandi ábyrga viðskiptahætti.

Málsmeðferðarreglur

[Málsmeðferðarreglur](https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/ATRN/Fylgiskjol-med-frettum/Tengiliður Íslands (NCP) - Málsmeðferðarreglur v. kvörtunar - 10.10.2025 (002).pdf) eru til að koma á sanngjörnu, gagnsæju og skilvirku kerfi fyrir framlagningu og meðhöndlun kvartana hjá tengiliði Íslands á grundvelli viðmiðunarreglna OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti. Túlka skal málsmeðferðarreglurnar í samræmi við framangreindar viðmiðunarreglur OECD, sem og aðrar viðeigandi alþjóðlegar leiðbeiningar og venjur sem gilda um tengiliði ríkja við umræddar viðmiðunarreglur OECD (NCP).

[Tengill á málsmeðferðarreglur.](https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/ATRN/Fylgiskjol-med-frettum/Tengiliður Íslands (NCP) - Málsmeðferðarreglur v. kvörtunar - 10.10.2025 (002).pdf)

Ferli kvörtunar

 

Stig

Tímarammi

1

Staðfesting á móttöku kvörtunar

Innan sjö daga frá móttöku kvörtunar

2

Frummat

Innan þriggja mánaða frá móttöku kvörtunar

3

Úrlausn ágreinings og sáttamiðlun

Hafi kvörtun gefið til efni til frekari athugunar og kvörtun samþykkt er venjulegur tímarammi sex mánuðir

4

Lokaskýrsla

Innan þriggja mánaða frá lokum sáttamiðlunar

5

Eftirfylgni

Í lokaskýrslu skal taka fram hvenær eftirfylgni skuli fara fram. Tímarammi eftirfylgni og birting eftirfylgniskýrslu eru þrír mánuðir

     

Flæðirit yfir ferli kvörtunar

Stýrihópur um ábyrga viðskiptahætti

Stýrihópi um ábyrga viðskiptahætti er ætlað að vera vettvangur samtals og samráðs um framkvæmd, beitingu og kynningu viðmiðunarreglna OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti.

Starfslýsing stýrihóps um ábyrga viðskiptahætti.

Fulltrúar í stýrihópi um ábyrga viðskiptahætti:

  • Harpa Theodórsdóttir, formaður, atvinnuvegaráðuneyti
  • Halldór Oddsson, Alþýðusamband Íslands
  • Hugrún Elvarsdóttir, Samtökum atvinnulífsins
  • Magnús Dige Baldursson, umhverfisráðuneyti
  • María Guðjónsdóttir, utanríkisráðuneyti
  • Rósa Guðrún Erlingsdóttir, forsætisráðuneyti
  • Þröstur Olaf Sigurjónsson, Festa, miðstöð um sjálfbærni

Alþjóðlegt samstarf

Haldnir eru reglulegir fundir með öllum tengiliðum OECD í 52 ríkjum. Þar er rætt hvernig styrkja megi ábyrga viðskiptahætti í heiminum. Þar er farið er yfir stöðu mála í hverju landi og þau mál sem upp hafa komið.

Tengiliðir OECD fyrir ábyrga viðskiptahætti eru í 52 löndum.

Ísland er einnig í samstarfi við aðra tengiliði á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum.

Tengiliðir Íslands, Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna samankomnir í Reykjavík.

Viðburðadagatal

Fjórði ársfjórðungur 2025

  • Kynning fyrir meistaranema í endurskoðun
    Reglur ESB um sjálfbærnireikningsskil og kynning á viðmiðunarreglum OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti. Markhópur: Meistaranemar í endurskoðun og sjálfbærnireikningsskilum.

  • Fréttatilkynning
    Kynnt ný heimasíða og íslensk þýðing á viðmiðunarreglunum OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti (2023).
    Markhópur: Almenningur, atvinnulíf, fræðasamfélag, frjáls félagasamtök og fjölmiðlar.

  • Kynning hjá skrifstofu auðlinda (sjávarútvegur og ferðaþjónusta)
    Kynning á viðmiðunarreglum OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti, með áherslu á mikilvægi þessara atvinnugreina.
    Markhópur: Opinberir starfsmenn, stefnumótandi aðilar og hagaðilar í sjávarútvegi og ferðaþjónustu.

  • Kynning fyrir sendiráð Íslands (í samstarfi við utanríkisráðuneytið)
    Viðmiðunarreglur OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti og hlutverk tengiliða (National Contact Points).
    Markhópur: Sendiráð Íslands og starfsfólk í utanríkisþjónustu.