Fjársýsluskattur og sérstakur fjársýsluskattur

Fjársýsluskattur

Fjármálafyrirtæki, verðbréfafyrirtæki og tryggingafélög, auk Íbúðalánasjóðs, greiða 5,5% fjársýsluskatt af öllum tegundum skattskyldra launa og þóknana. Skattinum skal skilað mánaðarlega í staðgreiðslu.

Upplýsingar um fjársýsluskatt á vef Skattsins 

Sérstakur fjársýsluskattur

Sérstakur fjársýsluskattur er 6% viðbótartekjuskattur á tekjuskattsstofn umfram 1.000 milljónir króna, án tillits til samsköttunar og yfirfæranlegs taps. Skattskyldir eru þeir sömu og bera fjársýsluskatt. Skatturinn er innheimtur fyrirfram mánaðarlega.

Leiðbeiningar um rafræn skil á vef Skattsins