Tryggingagjald

Tryggingagjald er gjald sem launagreiðendum ber að standa skil á til ríkisins og er það reiknað af heildarlaunum starfsmanna, þar á meðal endurgjaldi sem launagreiðendum ber að reikna sér fyrir vinnu sína við reksturinn. Tryggingagjald er innheimt í staðgreiðslu og skiptist í almennt tryggingagjald og atvinnutryggingagjald.

Önnur launatengd gjöld í staðgreiðslu eru markaðsgjald og gjald í Ábyrgðasjóð launa, en þau eru innheimt í staðgreiðslu samhliða innheimtu tryggingagjalds. Í framkvæmd er markaðsgjald og gjald í Ábyrgðasjóð launa gefið upp sem hluti af tryggingagjaldi. Sérstök trygging vegna sjómanna á fiskiskipum bætist við almennt álagningarhlutfall.

Lög nr. 113/1990 um tryggingagjaldLög nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjaldaReglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðsluUm tryggingagjald á vef Skattsins