Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki

Fjármálafyrirtæki sem hafa fengið starfsleyfi sem viðskiptabanki, sparisjóður eða lánafyrirtæki og aðrir þeir sem taka við innlánum greiða 0,376% af heildarskuldum samkvæmt skattframtali, umfram 50 milljarða kr., í sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki.

Skatturinn er lagður á með það markmið að leiðarljósi að afla ríkinu tekna til að mæta þeim mikla kostnaði sem fallið hefur á ríkissjóð vegna hruns íslenska fjármálakerfisins og hins vegar að draga úr áhættusækni fjármálafyrirtækja vegna þeirrar kerfisáhættu með tilheyrandi kostnaði sem áhættusöm starfsemi þeirra getur haft í för með sér fyrir þjóðarbúið.

Umfjöllun á vef Skattsins um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki o.fl.Lög um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki