Leiðin áfram
Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi hefur gefið út fræðslumyndbönd sem ganga undir heitinu Leiðin áfram. Myndböndunum er skipt eftir aldri brotaþola, fyrir 14 ára og yngri og 15 ára og eldri. Þar er farið í gegnum ferlið innan réttarvörslukerfisins eftir að kynferðisbrot hefur átt sér stað.
Markmið Vitundarvakningarinnar með gerð myndanna er að veita upplýsingar sem auðvelda þolendum og aðstandendum þeirra að sækja sér aðstoð.
Ofbeldi gegn börnum - Fræðsluefni