Stattu með þér

Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi hefur látið gera forvarnar- og fræðsluefnið Stattu með þér!, sem er 20 mínútna löng stuttmynd ætluð nemendum á miðstigi grunnskóla. Myndinni er ætlað að spyrna gegn kynferðisofbeldi og klámvæðingu með sjálfsvirðingu og jákvæðni að leiðarljósi. Stattu með þér! er fyrsta fræðsluefni sinnar tegundar fyrir þennan aldurshóp og standa vonir til að kennarar og foreldrar nýti það til að efla 10-12 ára börn í; að standa með sér gegn staðalímyndum og útlitsdýrkun og rækta sjálfsvirðingu í mannlegum samskiptum.

Leikstjórn var í höndum Brynhildar Björnsdóttur og handritið skrifaði Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. Þær unnu einnig að Fáðu já ásamt Páli Óskari Hjálmtýssyni fyrir Vitundarvakninguna en hún er ætluð unglingum og fjallar um mörkin milli kynlífs og ofbeldis.

  • Stattu með þér! - Horfa á myndina eftir köflum-
UpphafÚtlitFyrirmyndirLíkaminnOfbeldiAð setja mörkStattu með þér

Stuttmyndin skiptist í sjö tengda en sjálfstæða hluta. Hér fyrir ofan má nálgast þá með því að smella á titlana.

Kennsluleiðbeiningar
  • Stattu með þér! -
Lag myndarinnar, texti og myndband
  • Stattu með þér! -
Háskerpuútgáfa

(3.3Gb)

Textaðar útgáfur

Hægri smelltu á krækjurnar hér að neðan til að sækja myndina í heild sinni og veldu „Vista sem.../ Save Link/Target as...“.

Ofbeldi gegn börnum - Fræðsluefni