Samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum
Um sáttmálann
Samningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum, stundum einnig nefndur Kvennasamningur Sameinuðu þjóðanna, var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 18. desember 1979. Samningurinn var undirritaður af hálfu Íslands 24. júlí 1980 og fullgiltur 18. júní 1985.
Samningurinn miðar að því að tryggja konum jöfn réttindi á við karla. Ákvæðum hans er gjarnan skipt í þrjá flokka: leiðréttingarreglur sem varða nauðsynlegar aðgerðir til að leiðrétta hlut kvenna, verndarreglur sem varða sérstaka stöðu kvenna (t.d. í tengslum við þungun og barneignir), og jafnréttisreglur sem varða jafnt aðgengi að samfélagslegum gæðum á borð við stjórnmálaþátttöku, menntun og heilbrigðisþjónustu.
Eftirlit
Eftirlit með samningnum er í höndum Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna en hlutverk hennar er að fylgjast með framkvæmd samningsins, auk þess sem hún gefur út almenn álit sem lúta að túlkun samningsins eða efnissviði hans og nefndinni þykir ástæða til að vekja sérstaka athygli aðildarríkja á.
Þau ríki sem hafa fullgilt samninginn skuldbinda sig til að senda nefndinni reglulega skýrslur um innleiðingu samningsins. Nefndinni gefst þá færi á að gera athugasemdir og leggja fram spurningar um efni skýrslunnar og aðildarríkið getur síðan lagt fram viðbótarupplýsingar. Í kjölfarið gefur nefndin út lokaathugasemdir sínar þar sem bent er á hvað megi betur fara í framkvæmd aðildarríkisins til þess að það geti fullnægt skuldbindingum sínum samkvæmt samningnum. Hér neðar á síðunni er að finna skýrslur Íslands og lokaathugasemdir Kvennanefndarinnar.
Nefndin getur tekið við kvörtunum frá einstaklingum og hópum einstaklinga á grundvelli valfrjálsrar bókunar við samninginn, en þó er almennt skilyrði að fullreynt hafi verið að fá leyst úr málinu með tiltækum leiðum innanlands. Ísland er aðili að bókuninni.
Valfrjálsar bókanir
Valfrjáls bókun um kæruleið fyrir einstaklinga og hópa til nefndarinnar vegna brota á samningnum var samþykkt og undirrituð af Íslands hálfu 10. desember 1999. Bókunin var fullgilt hér á landi árið 2001.
Framkvæmd
Dómsmálaráðuneytið ber meginábyrgð á skuldbindingum Íslands samkvæmt samningnum. Jafnrétti kynjanna kemur þó inn á málaflokka allra ráðuneyta með einum eða öðrum hætti.
Texti samningsins
Samningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum og valfrjáls bókun við samninginnSamningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum á vef Sþ - á enskuHelstu staðreyndir
Staða: |
|---|
Fullgiltur |
Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination against Women (CEDAW) |
Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna |
Til staðar samkvæmt valfrjálsri bókun við samninginn |
Helstu hugtök
|
Skýrslur
Skýrslur frá Íslandi
25 nóvember 2021
Sjöunda og áttunda skýrsla Íslands um framkvæmd Samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum (á ensku)
22 ágúst 2014
Sjötta skýrsla Íslands um framkvæmd Samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum (á ensku)
04 desember 2007
Skýrslur til Íslands
Lokaathugasemdir Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna við níundu skýrslu Íslands um framkvæmd samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum
30 ágúst 2023
Lokaniðurstöður Kvennanefndarinnar vegna sjöundu og áttundu skýrslu Íslands (á ensku)
10 mars 2016
Lokaniðurstöður Kvennanefndarinnar vegna fimmtu og sjöttu skýrslu Íslands (á ensku)
11 maí 2009