Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins
Um Barnasáttmálann
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins eða Barnasáttmálinn, eins og hann er iðulega nefndur í daglegu tali, var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989. Samningurinn var undirritaður af hálfu Íslands 26. janúar 1990, fullgiltur 28. október 1992. Texti samningsins og valfrjálsra bókana við hann var síðar lögfestur í heild sinni árið 2013 með lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.
Barnasáttmálinn tryggir öllum börnum innan lögsögu aðildarríkisins öll þau réttindi sem kveðið er á um í samningnum. Mörg þessara réttinda er jafnframt að finna í öðrum mannréttindasamningum, svo sem ýmis borgaraleg, stjórnmálaleg, félagsleg, efnahagsleg og menningarleg réttindi. Önnur taka mið af því að börn eru viðkvæmur hópur sem þarnast sérstakrar verndar.
Eftirlit
Eftirlit með samningnum er í höndum Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna en hlutverk hennar er að fylgjast með framkvæmd samningsins, auk þess sem hún gefur út almenn tilmæli um túlkun hans. Hefur nefndin meðal annars gefið út að öll ákvæði Barnasáttmálans skuli túlka út frá fjórum grundvallarreglum sem er að finna í 2., 3., 6. og 12. grein samningsins:
- Að öllum börnum innan lögsögu aðildarríkis skuli tryggð þau réttindi sem kveðið er á um í samningnum, án mismununar af nokkru tagi (2. gr.).
- Að ávallt skuli tekið mið af því sem er barni fyrir bestu þegar yfirvöld taka ákvarðanir eða gera ráðstafanir sem varða börn (3. gr.).
- Að réttur sérhvers barns til lífs og þroska sé tryggður (6. gr.).
- Að barni sé tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í öllum málum sem það varða, og að tekið sé réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska (12. gr.).
Þau ríki sem hafa fullgilt Barnasáttmálann skuldbinda sig jafnframt til að senda Barnaréttarnefndinni reglulega skýrslur um innleiðingu samningsins. Nefndinni gefst þá færi á að gera athugasemdir og leggja fram spurningar um efni skýrslunnar og aðildarríkið getur síðan lagt fram viðbótarupplýsingar. Í kjölfarið gefur nefndin út lokaathugasemdir sínar þar sem bent er á hvað megi betur fara í framkvæmd aðildarríkisins til þess að það geti fullnægt skuldbindingum sínum samkvæmt samningnum. Hér neðar á síðunni er að finna skýrslur Íslands og lokaathugasemdir nefndarinnar.
Barnaréttarnefndin um tekur einnig við kvörtunum frá einstaklingum um að aðildarríki hafi brotið á réttindum þeirra samkvæmt samningnum, að því gefnu að ríkið hafi átt aðild að samningnum og samsvarandi valfrjálsri bókun við hann þegar brotið átti sér stað, og að öðrum skilyrðum samkvæmt bókuninni sé fullnægt. Ísland er ekki aðili að bókuninni.
Valfrjálsar bókanir
Gerðar hafa verið þrjár valfrjálsar bókanir við samninginn og hefur Ísland fullgilt tvær þeirra. Fyrstu tvær bókanirnar voru samþykktar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 25. maí 2000. Annars vegar bókun um börn í vopnuðum átökum, sem Ísland fullgilti 9. júlí 2001, og hins vegar um sölu á börnum, barnavændi og barnaklám, sem Ísland fullgilti 1. október 2001. Þriðja bókunin var samþykkt 19. desember 2011 og varðar hún kæruleið fyrir einstaklinga og hópa til nefndarinnar vegna brota á samningnum og fyrstu tveimur bókununum við hann. Ísland er ekki aðili að bókuninni.
Framkvæmd
Dómsmálaráðuneytið ber meginábyrgð á skuldbindingum Íslands samkvæmt Barnasáttmálanum en málefni sem varða börn og þau réttindi sem njóta verndar sáttmálans snerta vinnu flestra ráðuneyta. Auk félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins bera mennta- og barnamálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, forsætisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið þó sérstaka ábyrgð á framkvæmdinni.
Texti samningsins og valfrjálsra bókana
Barnasáttmálinn og valfrjálsar bókanir sem Ísland á aðild aðBarnasáttmálinn í styttri útgáfuBarnasáttmálinn á vef Sameinuðu þjóðanna - á enskuTexti valfrjálsrar bókunar um sölu á börnum, barnavændi og barnaklám - á enskuTexti valfrjálsrar bókunar um börn í vopnuðum átökum - á enskuHelstu staðreyndir
Staða: |
|---|
Lögfestur |
Convention on the Rights of the Child (CRC) |
Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna |
Til staðar samkvæmt 3. valfrjálsu bókun við samninginn, en Ísland er ekki aðili að bókuninni |
Helstu hugtök
|
Skýrslur
Skýrslur frá Íslandi
15 febrúar 2019
Barnaskýrsla um framkvæmd barnasáttmálans, feb. 2019
15 febrúar 2019
Þriðja og fjórða skýrsla Íslands um framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, nóv. 2009 (á ensku)
29 nóvember 2009
Skýrslur til Íslands
Lokaathugasemdir Barnaréttarnefndar við sameinaðar fimmtu og sjöttu reglubundnu skýrslur Íslands
29 nóvember 2022
Lokaathugasemdir Barnaréttarnefndarinnar vegna þriðju og fjórðu skýrslu Íslands
23 janúar 2012
Lokaathugasemdir Barnaréttarnefndarinnar vegna annarrar skýrslu Íslands
31 janúar 2003