Norsk-íslenskt menningarsamstarf

Þeir sem starfa á sviði lista og menningar í Noregi og á
Íslandi geta sótt um styrki til samstarfsverkefna sem stuðla að fjörbreytilegu
samstarfi á því sviði og koma á varanlegum tengslum milli listamanna, þeirra
sem starfa að menningarmálum og menningarstofnana í báðum löndum. Norska
menningarráðið (Norsk Kulturdirektoratet)
og menningar-,
nýsköpunar og háskólaráðuneytið taka umsóknir til umfjöllunar.

Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins. Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytis og Kulturdirektoratet. Hið árlega framlag er nú um 2.000.000 norskar krónur.

Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi Noregs og Íslands. Bæði norskir og íslenskir listamenn, þeir sem starfa að menningarmálum, menningarstofnanir og samtök geta sótt um styrk. Verkefni sem fá styrk verða að teljast mikilvæg í báðum löndum, þurfa að vera skipulögð sem samstarfsverkefni þar sem aðilar í báðum löndum leggja til menningarlegt innihald og/eða úrvinnslu og framkvæmd. Verkefni þar sem lögð er áhersla að leiða til varanlegra tengsla milli einstaklinga, samtaka og stofnana, einnig eftir að verkefni lýkur, hafa forgang. Verkefnin skulu endurspegla fjölbreytt listræn form og hafa í senn skírskotun til sögunnar og samtímans.

Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem eru hluti af kjarnastarfsemi menningarstofnana. Að öllu jöfnu eru ekki veittir ferðastyrkir til þátttöku í tónleikaferðum, hátíðum, tónleikum eða öðrum fyrirfram skipulögðum viðburðum nema þegar slík þátttaka er hluti af  samstarfsverkefni. Að jafnaði er áhugamannahópum svo sem kórum og hljómsveitum ekki veittur ferðastyrkur. Ekki er greiddur heildarkostnaður verkefna.

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Umsækjendur skulu fylla út umsóknareyðublað sem er á vef norska menningarráðsins með upplýsingum um markmið verkefnisins ásamt verkefnis-, framkvæmdar-, fjárhags- og fjármögnunaráætlun. Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum vef Norsk Kulturdirektoratet.

Umsóknir skulu vera á norsku, dönsku, sænsku eða ensku.