Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn var stofnaður 1995 í kjölfar gjafar Svía til Íslendinga á 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins 1994. Þjóðargjöf þessi var peningagjöf að upphæð 3 milljóna sænskra króna og skyldi varið til menningarskipta þjóðanna.
Samkvæmt stofnskrá er fé veitt úr sjóðnum til samstarfs á breiðum grundvelli; til vísinda, félagsstarfs, kennslumála og fleira en þó einkum til menningarmála. Ekki má snerta höfuðstól en veitingar úr sjóðnum byggja á árlegum arði.
Ferðastyrkir eru veittir vegna verkefna sem stuðla að gagnkvæmum kynnum og samvinnu milli þjóðanna.
Sjóðsstjórn skipa sex einstaklingar, þrír frá hvoru landi og skiptast löndin á um að hafa á hendi formennsku.
Úr sjóðnum er veitt einu sinni á ári, að jafnaði í mars eða apríl en auglýst er eftir umsóknum í kringum áramót.
Upplýsingar, leiðbeiningar og umsóknareyðublöð eru á vef sjóðsins
Menningarmál