Þjóðhátíðargjöf Norðmanna
Þjóðhátíðargjöf Norðmanna
Í tilefni 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974 gaf norska stórþingið Íslendingum peningagjöf. Gjöf þessi myndar stofnfé sjóðsins Þjóðhátíðargjafar Norðmanna. Styrkir voru fyrst veittir úr sjóðnum árið 1976. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 279/1975, ásamt síðari breytingum.
Tilgangur sjóðsins er að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum, skipulögðum hópum og einstaklingum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum, eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli. Segir enn fremur að lögð sé áhersla á að veita styrki sem renna til beins ferðakostnaðar.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið annast umsýslu sjóðsins og verður auglýst eftir umsóknum á vefsíðu ráðuneytisins.
Menningarmál