Tölfræði íþrótta

Ýmsum tölfræðiupplýsingum tengdum íþróttum og iðkun þeirra er safnað saman hér á landi. Meðal þess sem vert er að benda á eru eftirtaldar upplýsingalindir:

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands heldur utanum tölfræði iðkunar íþrótta úr starfsskýrslum íþróttahreyfingarinnar. Starfsskýrslum ber að skila fyrir 15. apríl ár hvert vegna starfsemi undangengins árs. Tölfræðin er birt með gagnvirkum hætti á vef ÍSÍ þar sem hægt er að skoða þátttöku í íþróttum út frá ýmsum breytum.

Íslenska æskulýðsrannsóknin (ÍÆ) er rannsókn sem HÍ framkvæmir fyrir Mennta- og barnamálaráðuneyti á grundvelli 12. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Markmiðið með framkvæmd rannsóknarinnar er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungs fólks og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun. Frá skólaárinu 2021-2022 er könnunin lögð fyrir á hverju ári í grunnskólum, annað hvert ár í framhaldsskólum og fjórða hvert ár verður framkvæmd símakönnun meðal ungs fólks utan skóla.

Kynjajafnrétti í íþróttum er viðfangsefni samstarfsverkefnis Evrópuráðsins og Evrópusambandsins. Þar eru til skoðunar sex vísar um kynjajafnrétti í íþróttum. Könnun var framkvæmd árið 2019 og aftur árið 2023. Sjá niðurstöður ársins 2023, niðurstöður sem eiga við um Ísland.

Á vef Byggðastofnunar má finna þjónustukort sem sýnir aðgengi landsmanna að allri almennri þjónustu hins opinbera og einkaaðila til að bæta yfirsýn og með því skapa grundvöll fyrir aðgerðir til að tryggja íbúum þjónustu og jafna kostnað. Á þjónustukortinu má sjá staðsetningu íþróttahúsa, sundlauga og golfvalla í landinu auk tengils á vef sé hann til staðar á sveitarfélag eða aðila sem ber ábyrgð á mannvirkinu.