Vinnum gullið - ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi

Mennta- og barnamálaráðuneytið hélt ráðstefnuna Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn, 20. nóvember 2023 í Silfurbergi í Hörpu. Á ráðstefnunni voru kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk.

Upptaka

Vel á fjórða hundrað manns sóttu ráðstefnuna og komu um tvö þúsund inn á streymið. Mennta- og barnamálaráðuneytið safnaði spurningum þátttakenda og niðurstöðum úr hópvinnu sem innlegg í vinnu starfshóps um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks.

Dagskrá

Dagskrá ráðstefnu

Erindi

Hér eru birtar glærur frá ráðstefnunni (pdf). Kynningum með myndefni eingöngu er sleppt og vísað á streymið.

Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ og formaður starfshóps um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks

Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi

Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness

Svæðisstefna og nýsköpun í afreksmálum

Dr. Erlingur Jóhannsson, prófessor

Afreksmiðstöð – TEAM Iceland

Pia Mørk Andreassen, svæðisstjóri

Afreksíþróttamiðstöð Noregs í Bergen

Hér eru birtar niðurstöður hópvinnu á ráðstefnunni:

1. Spurning - Nefnið þau þrjú atriði sem sveitarfélög ættu að einblína á í eflingu á íþróttastarfi í nærumhverfi sínu2. Spurning - Nefnið þrjú atriði sem atvinnulífið gæti komið að til eflingar afreksíþróttastarfs á Íslandi3. Spurning - Hvernig geta fagaðilar frá Afreksmiðstöð - Team Iceland eflt afreksíþróttir á Íslandi? Hver eru þrjú mikilvægustu atriðin?4. Spurning - hvernig getur bætt samvinna íþróttafélaga, skóla og sveitarfélaga á Íslandi leitt til enn betri árangurs í íþróttum?