Viðurkenning erlendrar menntunar
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið fer með ábyrgð á málaflokknum viðurkenning faglegrar menntunar og hæfis til starfa hér á landi skv. forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 5/2025.
Þau sem óska eftir viðurkenningu á menntun til starfa hér á landi geta leitað svara á þjónustugáttinni Ísland.is.
ENIC-NARIC skrifstofan liðsinnir við akademískt mat á námi - www.enicnaric.is. Skrifstofan veitir einstaklingum, háskólum, vinnuveitendum, fagfélögum og stofnunum upplýsingar um prófgráður, menntakerfi og matsferli í samræmi við þær matsaðferðir sem þróaðar hafa verið af ENIC og NARIC samstarfsnetunum. Skrifstofan tekur einnig við og afgreiðir umsóknir um viðurkenningu menntunar og starfsreynslu iðnaðarmanna sem koma erlendis frá.
Sjá einnig:
Lög um viðurkenningu faglegrar menntunar og hæfis til starfa hér á landi nr. 26/2010Reglugerð nr. 477/2020 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landiReglugerð um viðurkenningu á menntun og starfsreynslu til starfa i löggiltri iðn hér á landiMenntamál