23 Sjúkrahúsþjónusta
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 23 Sjúkrahúsþjónusta árið 2025 eru áætluð 176.020,4 m.kr. og aukast um 5.742,3 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 3,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 15.027 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 9,3%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Þess má geta að í lögum um heilbrigðisþjónustu heitir sérhæfð sjúkrahúsþjónusta nú 3. stigs þjónusta. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Efla mönnun |
||
|
Vinna áfram með þær tillögur sem enn eru í vinnslu frá vinnu fjögurra vinnuhópa frá árinu 2020, m.a. í samstarfi með Landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Áfram unnið að greiningu á mönnun heilbrigðiskerfisins og hugað að breytingum tengt verkaskiptingu heilbrigðisstarfsmanna. |
Heilbrigðisráðuneyti og stofnanir sem sinna sjúkrahúsþjónustu |
Innan ramma |
|
Unnið að mannauðsstefnu í heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Vinnu við meðferðarkjarna haldið áfram skv. áætlun ásamt framkvæmdum við nýbyggingu endurhæfingardeildar við Grensás.* |
Nýr Landspítali ehf. |
-951 m.kr. |
|
Framkvæmdir hefjast við byggingu nýrrar legudeildarbyggingar SAk. |
Nýr Landspítali ehf. |
1.174 m.kr. |
|
Markmið 2: Sjúklingar fái heilbrigðisþjónustu á réttu þjónustustigi |
||
|
Vinna áfram að eflingu fjölþættra úrræða fyrir sjúklinga utan sérgreinasjúkrahúsa. |
Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
|
Vinna úr tillögum starfshóps um stöðu markmiðs í heilbrigðisstefnu um rétta þjónustu á réttum stað. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Sjúklingar í brýnni þörf fái heilbrigðisþjónustu innan ásættanlegs biðtíma |
||
|
Vinna að því að koma á fót samræmdum biðlistum fyrir sem flesta þætti þjónustu innan sérgreinasjúkrahúsa. |
Embætti landlæknis, LSH og Sjúkrahúsið á Akureyri |
Innan ramma |
|
Áframhaldandi vinna við útvistun þeirra verkefna sem leysa má á öðrum þjónustustigum en sérgreinasjúkrahúsum og auka þannig getu sérgreinasjúkrahúsa til að anna þeim verkefnum sem þau ein geta leyst. |
Heilbrigðisráðuneyti, LSH, Sjúkrahúsið á Akureyri og SÍ |
Innan ramma |
* Fjárveitingar til verkefna geta verið breytilegar á milli ára. Sem dæmi getur lækkun fjárveitingar endurspeglað að tímabundin fjárveiting fellur niður eða lækkun í samræmi við áætlun eins og endurspeglast í fjármálaáætlun.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 154.299,8 m.kr. og hækkar um 5.310,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 8.104 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er lækkuð um 951 m.kr. í samræmi við framkvæmdaáætlun Nýs Landspítala sem hljóðar upp á um 23,2 ma.kr. á árinu.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.174 m.kr. vegna byggingar nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri.
- Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar er 2.137,9 m.kr.
- Almennt útgjaldasvigrúm málaflokksins er 980 m.kr.
- Útgjaldaheimild málaflokksins er aukin um 1.767,6 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á rekstrartekjum stofnana.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið um 300 m.kr. vegna átaks í lýðheilsutengdum aðgerðum.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.000 m.kr. til styrkingar ýmissa verkefna í heilbrigðisþjónustunni. Nánari útfærsla mun liggja fyrir við afgreiðslu fjárlaga.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 800 m.kr. til þjónustutengdrar fjármögnunar (DRG).
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 906 m.kr. vegna niðurfellinga tímabundinna fjárveitinga og millifærslna á aðra málaflokka.
- Hlutdeild málaflokksins í afkomubætandi ráðstöfunum ríkissjóðs er samtals 989,6 m.kr. Aukin hagræðing í sameiginlegum innkaupum á heilbrigðisvörum er 618,2 m.kr. (4%) lækkun á ný, aukin verkefni í fjármálaáætlun 2025–2029 170 m.kr. og tímabundin niðurfelling fjárveitingar varasjóðs málaflokksins 201,4 m.kr.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 2,2 m.kr.
23.20 Almenn sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmum. Þess má geta að í lögum um heilbrigðisþjónustu heitir almenn sjúkrahúsþjónusta nú 2. stigs þjónusta. Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri veita 2. stigs sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa sem búa í heilbrigðisumdæmum höfuðborgarsvæðisins og á Norðausturlandi en allar fjárveitingar til þessara tveggja stofnana eru undir málaflokki 23.1. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Efla aðgengi sjúklinga að skilgreindri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum |
||
|
Skýra verklag um veitingu sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum í samstarfi heilbrigðisstofnana, Sjúkratrygginga Íslands og sérhæfðra sjúkrahúsa. |
Heilbrigðisráðuneyti, heilbrigðisstofnanir, Landspítali, Sjúkratryggingar og Sjúkrahúsið á Akureyri |
Innan ramma |
|
Unnið að stefnumótun um stafrænar lausnir við veitingu heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Efla sérhæfða ráðgjafarþjónustu til stuðnings við fagaðila sem sinna börnum og unglingum í heimabyggð |
||
|
Skýra verklag og samvinnu innan 2. stigs þjónustu og við sérgreinasjúkrahús. |
Heilbrigðisstofnanir, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri |
Innan ramma |
|
Þróa sérhæfða ráðgjöf og handleiðslu til heilbrigðisstofnana á landsvísu, m.a. vegna geðheilbrigðisþjónustu og tryggja þannig aðgengi að sérhæfðri þjónustu þegar við á. |
Heilbrigðisstofnanir, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Sjúklingar komist í liðskiptaaðgerðir innan ásættanlegs biðtíma miðað við viðmið embættis landlæknis |
||
|
Eftirfylgni við innleiðingu nýs vinnulags varðandi liðskiptaaðgerðir samkvæmt niðurstöðum starfshóps frá því í mars 2022. |
Heilbrigðisráðuneyti, embætti landlæknis, Landspítali, Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Vesturlands |
Innan ramma |
|
Samningar um liðskiptaaðgerðir til lengri tíma á vegum Sjúkratrygginga. |
Heilbrigðisráðuneyti, Sjúkratryggingar |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 17.338,5 m.kr. og hækkar um 347,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.078,5 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 142 m.kr. vegna endurheimtar heilbrigðisstarfsfólks og endurreisnar heilbrigðiskerfisins eftir Covid-19.
- Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins, m.a. vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar, er 280 m.kr.
- Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 29 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á rekstrartekjum.
- Hlutdeild málaflokksins í afkomubætandi ráðstöfunum ríkisins er samtals 103,3 m.kr., aukin hagræðing í opinberum innkaupum 81,8 m.kr. og tímabundin niðurfelling varasjóðs málaflokksins 21,5 m.kr.
23.30 Erlend sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá um samningagerð við erlend sjúkrahús ásamt því að hafa milligöngu um greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu milli landa þar sem milliríkjasamningar gilda. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða á árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Aðgerðir sem áður voru gerðar erlendis á grundvelli biðtímareglugerðarinnar eru framkvæmdar hérlendis |
||
|
Stytta biðlista með fjölgun aðgerða sem framkvæmdar eru hér á landi, bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila. Áætlun verði gerð um flutning aðgerða til landsins m.t.t. nýtingar bjarga hérlendis, þ.m.t. fjármagns sem nú er nýtt til þjónustu erlendis. |
Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands, sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 4.382,1 m.kr. og hækkar um 83,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa-, gengis- og verðlagsbreytingum en þær nema 102,2 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins er 83,9 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2025