24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa árið 2025 eru áætluð 96.049,6 m.kr. og aukast um 2.270,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 2,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 7.001,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 7,9%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
24.10 Heilsugæsla
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heilsugæslusviða heilbrigðisstofnana heilbrigðisumdæma og einkarekinna heilsugæslustöðva. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Skilvirkari þjónusta fyrir fólk sem leitar til heilsugæslu |
||
|
Nýta niðurstöður þjónustukönnunar til að auka skilvirkni heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um land allt |
Innan ramma |
|
Auka þverfaglegt samstarf og teymisvinnu í heilsugæslu. |
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og heilsugæslur um allt land |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Aðgengilegri þjónusta fyrir fólk sem leitar til heilsugæslu |
||
|
Undirbúa byggingu á seinni heilsugæslustöðinni á Akureyri í samræmi við þarfagreiningu.* |
Heilbrigðisráðuneyti |
-521,8 m.kr. |
|
Undirbúa stækkun á þremur heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu; Miðbær, Garðabær, Hafnarfjörður. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Undirbúa byggingu á heilsugæslustöð í Innri-Njarðvík. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Styrkja vegvísun í heilbrigðiskerfinu með samningum um Upplýsingamiðstöð og nýtingu fjarheilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Að auka ánægju skjólstæðinga með þjónustu á heilsugæslusvæðinu |
||
|
Uppfærsla þjónustukönnunar til hagnýtingar í stefnumótun þjónustunnar. |
Heilbrigðisráðuneyti og fjármálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu í verkefninu „Gott að eldast“. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 4: Skjólstæðingar noti heilsuvera.is í meira mæli til að bóka tíma á heilsugæslu |
||
|
Að jafna aðgengi notenda sem bóka tíma á heilsugæslu með samningum um Upplýsingamiðstöð. |
Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands |
Innan ramma |
*Fjárveitingar til verkefna geta verið breytilegar á milli ára. Sem dæmi getur lækkun fjárveitingar endurspeglað að tímabundin fjárveiting fellur niður, eða lækkun í samræmi við áætlun eins og endurspeglast í fjármálaáætlun.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 45.696,3 m.kr. og lækkar um 254,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 2.663,3 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Reiknaður raunvöxtur á veittri þjónustu innan málaflokksins er 767 m.kr.
- Fjárframlög til málaflokksins hækka um 100 m.kr. til að mæta áskorunum sem felast í öldrun þjóðarinnar, vinna niður biðlista o.fl.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. til að efla geðheilbrigðisþjónustu í samræmi við áætlun og geðheilbrigðisstefnu.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 617,8 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
- Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 319,6 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
- Millifærðar eru 885 m.kr. af fjárheimild málaflokksins vegna aukinnar greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu sem dreifist á aðra málaflokka.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 38,3 m.kr.
24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun
Starfsemi málaflokksins er í höndum sjálfstætt starfandi sérgreinalækna, tannlækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og ljósmæðra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1:Að efla þróun á starfsemi sérgreinalækna utan sjúkrahúsa |
||
|
Unnið að þróun á þjónustu sérgreinalækna í gegnum samstarfssamning SÍ og LÍ. Sérstaklega er horft til verklags í tengslum við þverfagleg teymi og forgangsröðun þjónustu m.t.t. þjónustuþarfar á landsbyggðinni. |
Sjúkratryggingar Íslandsog Læknafélag Íslands |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Efling fæðingarþjónustu sem miðar að eðlilegu fæðingarferli |
||
|
Styðja við fæðingaþjónustu á 1. eða 2. þjónustustigi. |
Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 35.455,9 m.kr. og hækkar um 2.176,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.480,4 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Framlög eru hækkuð um 800 m.kr. til að mæta eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu sem er umfram það sem áður hafði verið gert ráð fyrir í áætlunum um þróun útgjalda til heilbrigðisþjónustu sjúkratrygginga.
- Framlög eru hækkuð um 575 m.kr. til að lækka greiðsluþátttöku í tannlækningum sjúkratrygginga.
- Framlög eru hækkuð um alls 635,7 m.kr. til að mæta raunvexti innan málaflokksins.
- Framlög hækka um 90 m.kr. til að lækka greiðsluþátttöku vegna brottnáms brjóstapúða af læknisfræðilegum ástæðum.
- Framlög eru hækkuð um 76 m.kr. til að mæta auknum kostnaði við uppsetningu frystra fósturvísa í tengslum við krabbameinsmeðferð.
24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun
Starfsemi málaflokksins er í höndum sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og talmeinafræðinga. Einnig fellur Heyrnar- og talmeinastöð Íslands undir málaflokkinn. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Biðtími eftir þjónustu sjúkraþjálfara er <30 dagar skv. miðlægum biðlista |
||
|
Þróa ferli til að bregðast við ef markmið um tímanlega þjónustu nást ekki. |
Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 10.001 m.kr. og hækkar um 168,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 383,6 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Reiknaður raunvöxtur á veittri þjónustu innan málaflokksins er 171,2 m.kr.
- Hlutdeild málaflokksins í afkomubætandi ráðstöfunum er 2,8 m.kr.
24.40 Sjúkraflutningar
Starfsemi málaflokksins er í höndum rekstraraðila sem starfa samkvæmt samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Auk þess heyra réttindagreiðslur sjúkratrygginga til sjúkraflutninga og ferða innan lands til málaflokksins. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Skjótari viðbrögð við bráðaútköllum í dreifbýli |
||
|
Endurskipuleggja bráðaþjónustu og sjúkraflutninga samkvæmt aðgerðaáætlun til ársins 2025 og tillögum viðbragðsteymis. |
Heilbrigðisráðuneyti, LSH, heilbrigðisstofnanir og sjúkraflutningsaðilar |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Betri faglegur stuðningur á vettvangi |
||
|
Ljúka innleiðingu samræmdrar rafrænnar skráningar í sjúkrabílum. |
Embætti landlæknis og sjúkraflutningsaðilar |
Innan ramma |
|
Vinna að endurskoðun námskrár sjúkraflutninganáms m.t.t. flutnings þess inn í almenna skólakerfið. |
Heilbrigðisráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti, embætti landlæknis og sjúkraflutningsaðilar |
Innan ramma |
|
Auka þjálfunarmöguleika sjúkraflutningafólks í dreifbýli hjá stærri sjúkraflutningsaðilum. |
LSH, embætti landlæknis og sjúkraflutningsaðilar |
Innan ramma |
|
Tryggja faglegan sérhæfðan stuðning á vettvangi með fjarheilbrigðislausnum. |
LSH, Neyðarlínan og sjúkraflutningsaðilar |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Aukin þjónusta á vettvangi |
||
|
Vinna að samræmingu á starfi vettvangsliða á landsvísu, sér í lagi í dreifðari eða einangraðri byggðum. |
Heilbrigðisráðuneyti og Neyðarlínan |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 4.896,4 m.kr. og hækkar um 180,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 203,2 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Reiknaður raunvöxtur í málaflokknum er 84 m.kr.
- Framlag í varasjóð málaflokksins, 3,8 m.kr., er felld niður tímabundið vegna sértækra aðhaldsaðgerða.
- Framlög til málaflokksins eru hækkuð um alls 100 m.kr. til að fjölga ferðum sjúklinga til að sækja heilbrigðisþjónustu úr tveimur í fjórar.
Fjárlög fyrir árið 2025