26 Lyf og lækningavörur
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka, lyf, lækningavörur og hjálpartæki, sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 26 Lyf og lækningavörur árið 2025 eru áætluð 44.147,4 m.kr. og aukast um 1.336,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar 3,2%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.316,4 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 5,5%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
26.10 Lyf
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala, Lyfjastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands. Embætti landlæknis sér um eftirlit með lyfjaávísunum. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Bætt geðheilsa með því að vinna gegn mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja |
||
|
Ljúka innleiðingu reglugerða sem tengjast nýjum lyfjalögum. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Auka vitund og þekkingu á áhrifum lyfja (Lyf án skaða). |
Heilbrigðisráðuneyti, Lyfjastofnun og embætti landlæknis |
Innan ramma |
|
Ljúka gerð lyfjalista fyrir heilbrigðisstofnanir og heilsugæslu og innleiðingu þeirra.
|
Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Aukin gæði |
||
|
Innleiða aukna lyfjafræðilega þjónustu í samræmi við niðurstöður tilraunaverkefna og tillögur hvítbókar. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Rafvæðing til lækkunar á lyfjakostnaði |
||
|
Halda áfram innleiðingu á miðlægu lyfjakorti.* |
Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis |
Innan ramma |
* Verkefnið styður jafnframt við markmið 2.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 35.585,9 m.kr. og hækkar um 1.032,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 721,2 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um alls 354,8 m.kr. til að mæta auknum kostnaði í almennum lyfjum, leyfisskyldum lyfjum og hjálpartækjum vegna lýðfræðilegra þátta (öldrun og fjölgun þjóðarinnar).
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 357 m.kr. til að mæta veikleika í almennum lyfjum.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 321 m.kr. til að mæta kerfislægum vexti í kostnaði vegna leyfisskyldra lyfja.
26.20 Lækningatæki
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis og Lyfjastofnunar sem annast eftirlit með lækningatækjum. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl. Engin útgjöld eru reikningsfærð á fjárlagalið málaflokksins en markmið var sett fyrir málaflokkinn í fjármálaáætlun 2025–2029.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Tryggja að ný tækni og nýjar aðferðir, sem fjármagnaðar eru af hinu opinbera, leiði til besta mögulegs árangurs fyrir sjúklinga og samfélagið |
||
|
Innleiða heilbrigðistæknimat (HTA). |
Heilbrigðisráðuneyti og Lyfjastofnun |
Innan ramma |
26.30 Hjálpartæki
Starfsemi málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá að mestu um úthlutun hjálpartækja. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Einfalda aðgang fólks að hjálpartækjum og tryggja jafnræði við notkun þeirra |
||
|
Skoða aukna aðkomu heilsugæslu að vali og ráðgjöf vegna hjálpartækja. |
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Sjúkratryggingar Íslands |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Bæta aðgang að heildstæðum upplýsingum um hjálpartæki |
||
|
Bæta upplýsingar um hjálpartæki á vefsíðu Sjúkratrygginga Íslands til fagaðila og einstaklinga. |
Sjúkratryggingar Íslands |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 8.561,5 m.kr. og hækkar um 304 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 258,4 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 160 m.kr. til að mæta kerfislægum vexti í notkun hjálpartækja.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 94 m.kr. til að auka réttindi barna, sem búa á tveimur heimilum, til hjálpartækja. Einnig eru aukin réttindi til hjálpartækja í frístundum.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 50 m.kr. vegna veikleika sem m.a. ræðst af því að raunvöxtur er hærri en almenn viðmið gera ráð fyrir.
Fjárlög fyrir árið 2025