32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála árið 2025 eru áætluð 12.263,5 m.kr. og lækka um 310,1 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 2,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 334,1 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 2,8%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, embættis landlæknis, Geislavarna ríkisins og Lyfjastofnunar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Efling heilsu og heilbrigðra lifnaðarhátta |
||
|
Innleiðing aðgerða á sviði lýðheilsu- og geðheilbrigðisstefnu. |
Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis |
Innan ramma |
|
Sameiginlegt átak til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi. |
Heilbrigðisráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti |
Innan ramma |
|
Hvatning og stuðningur við heilsueflingu og forvarnir sem hluta af allri heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti, embætti landlæknis, heilbrigðisstofnanir og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins |
Innan ramma |
|
Innleiðing krabbameinsáætlunar með hliðsjón af heilbrigðisstefnu, lýðheilsustefnu og krabbameinsáætlun ESB. |
Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Aukið öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks |
||
|
Mannaflaþörf greind fyrir fjölmennustu heilbrigðisstéttir í heilbrigðisþjónustunni. Yfirlit um stöðu mönnunar uppfært í rauntíma. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Gefnar verða út faglegar lágmarkskröfur fyrir ákveðin svið heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis |
Innan ramma |
|
Vinna við endurbætur klínískra leiðbeininga. |
Heilbrigðisráðuneyti, embætti landlæknis og LSH |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Aukin gæði og efling rafrænnar heilbrigðisþjónustu |
||
|
Áfram unnið að samþættingu á rafrænni sjúkraskrá og innleiðingu verkefna á sviði stefnu um stafræna heilbrigðisþjónustu. |
Embætti landlæknis |
Innan ramma |
|
Áfram unnið að samþættingu á rafrænni sjúkraskrá, stafrænni skráningu og stafrænum skilum heilbrigðisgagna. Unnið að sameiningu Sögugrunna. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Aukið við fjarheilbrigðisþjónustu á öllum stigum heilbrigðisþjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 3.422,8 m.kr. og lækkar um 250,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 179,8 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Niðurfellt er 150 m.kr. einskiptisframlag í fjárlögum 2024 til þróunar rafrænnar sjúkraskrár.
- Niðurfellt er 20 m.kr. einskiptisframlag í fjárlögum 2024 til Lýðheilsusjóðs.
- Útgjöld málaflokksins lækka um 25,2 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjuáætlunum stjórnsýslustofnana.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 34,7 m.kr. og er aðhald útfært hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
- Lækkun á framlagi til samkeppnis- og styrktarsjóða nemur 5 m.kr. og er hluti af sértækum aðhaldsaðgerðum.
- Sérstök viðbótaraðhaldskrafa nemur 15,2 m.kr. og er útfærð hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
32.20 Jafnréttismál
Starfsemi málaflokksins hefur verið á ábyrgð forsætisráðuneytis frá árinu 2019. Í samræmi við breytingar á forsetaúrskurði nr. 6/2022 frá 26. ágúst 2024, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, flytjast jafnréttis- og mannréttindamál frá forsætisráðuneyti til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis frá 1. september 2024. Samhliða flytjast Jafnréttisstofa og kærunefnd jafnréttismála til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Launajafnrétti verði náð – kynbundnum launamun verði útrýmt |
||
|
Tryggja áframhaldandi framfylgd jafnlaunavottunar í samræmi við lög nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. |
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti |
Innan ramma |
|
Unnið að og fylgt eftir tillögum aðgerðahóps um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði. |
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Sporna við kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni |
||
|
Framfylgd verkefna í þingsályktun nr. 37/150 um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. |
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og Jafnréttisstofa |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Réttindi hinsegin fólks tryggð |
||
|
Framfylgd verkefna í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks. |
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti |
Innan ramma
|
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 386,7 m.kr. og lækkar um 19 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 17,8 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 12 m.kr. vegna tímabundins framlags til Samtakanna '78 sem fellur niður.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 3 m.kr. vegna millifærslu til nýrrar Mannréttindastofnunar Íslands sem tekur til starfa samkvæmt lögum nr. 88/2024.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 4 m.kr.
32.30 Stjórnsýsla heilbrigðismála
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Sjúkratrygginga Íslands og vísindasiðanefndar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Skilvirk stjórnsýsla heilbrigðismála |
|
|
|
Unnið að vöruhúsi gagna. Innleiðing Power BI mælaborða á heilbrigðisstofnunum. |
Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Efling vísindarannsókna í heilbrigðisþjónustu |
|
|
|
Undirbúningur að stofnun heilbrigðisvísindasjóðs. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 4.446 m.kr. og lækkar um 23,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 240,5 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Útgjöld málaflokksins hækka um 0,4 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjuáætlunum stjórnsýslustofnana.
- Niðurfellt er tímabundið 5,3 m.kr. framlag til Alzheimersamtakanna.
- Tímabundin lækkun ráðstöfunarfjár ráðherra um 1 m.kr. gengur til baka.
- Almennt útgjaldasvigrúm málaflokksins er 25 m.kr.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 41,9 m.kr. og er aðhald útfært hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
- Sérstök viðbótaraðhaldskrafa á aðalskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins nemur 2,8 m.kr.
32.40 Stjórnsýsla félagsmála
Starfsemi málaflokksins er í höndum aðalskrifstofu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, auk þess sem rekstur úrskurðarnefndar velferðarmála, Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála og Tryggingastofnunar fellur undir málaflokkinn. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á |
|
Markmið 1: Skilvirkari stjórnsýsla félagsmála |
||
|
Fjölbreytt fræðsla fyrir starfsfólk ráðuneytis, t.d. um „EKKÓ“ og samskipti á vinnustað og námskeið um gagnagreiningu, framleiðni o.fl. |
Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 4.008 m.kr. og lækkar um 17,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 206,1 m.kr.
Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Útgjaldasvigrúm málaflokksins er aukið um 100 m.kr.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 30 m.kr. vegna hækkunar á sértekjum sem hækka um sömu fjárhæð.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 90 m.kr. vegna lækkunar á hluta innleiðingarkostnaðar vegna nýs kerfis örorku og endurhæfingar, sbr. umfjöllun í málaflokkum 27.1 og 30.1.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 14,1 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 49,3 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2025