12 Yfirlit yfir lagabreytingar
Lagabreytingar vegna tekjuhliðar fjárlagafrumvarpsins:
Lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Lögð verður til lækkun endurgreiðsluhlutfalls virðisaukaskatts til byggjenda og eigenda íbúðarhúsnæðis af vinnu manna á byggingarstað.
Lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Lagt verður til að aðgangseyrir að baðlónum o.fl. verði færður í almennt skatthlutfall virðisaukaskatts.
Lög nr. 90/2003, um tekjuskatt. Lagt verður til að tímabundnar útreikningsreglur og viðmiðunarfjárhæðir barnabóta verði framlengdar óbreyttar um eitt ár.
Lög nr. 90/2003, um tekjuskatt. Lögð verður til uppfærsla framleiðniviðmiðs skattleysis- og þrepamarka í tekjuskatti einstaklinga.
Lög nr. 100/2025, um kílómetragjald á ökutæki. Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki hækki um 15,9%, þ.e. 5,2% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027 auk 4 ma.kr. tekjuauka til samræmis við markmið um að tekjur af ökutækjum og eldsneyti nemi 1,7% af VLF.
Lög nr. 39/1988, um bifreiðagjald. Lagt verður til að bifreiðagjald hækki um 5,2% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Lög nr. 155/2010, um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki. Lögð verður til hækkun sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki.
Lög nr. 129/2009, um umhverfis- og auðlindaskatta. Lagt verður til að fjárhæðir kolefnisgjalds verði hækkaðar um 5,2% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Lögð verður til framlenging á ákvæði til bráðabirgða sem kveður á um að framlag lífeyrissjóða skv. lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012, á árinu 2027 verður ekki núvirt við tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðanna.
Lög nr. 96/1995, um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl. Lagt verður til að áfengis-, tóbaks- og nikótíngjald hækki um 5,2% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Lög nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. Lögð verður til 5,2% hækkun á sérstöku gjaldi til Ríkisútvarpsins í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Lög nr. 125/1999, um málefni aldraðra. Lögð verður til 5,2% hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Lög nr. 162/2002, um úrvinnslugjald. Lögð verður til breyting á fjárhæðum úrvinnslugjalds í samræmi við tillögu stjórnar Úrvinnslusjóðs.
Lög nr. 113/1990, um tryggingagjald. Lögð verður til framlenging á afnámi tekna hjá starfsendurhæfingarsjóðum sem starfræktir eru á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, af almennu tryggingagjaldi.
Lög nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs. Lögð verður til hækkun gjalda fyrir umsóknir um skammtímadvalarleyfi og ríkisborgararétt.
Lög nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs. Lögð verður til niðurfelling á umsóknargjaldi fyrir dvalarleyfi Fulbright-styrkþega og aðstandenda þeirra.
Lög nr. 96/2023, um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Lagt verður til að fjárhæð losunargjalds vegna gjaldskyldrar losunar sem á sér stað árið 2027 skv. 4. mgr. 20. gr. verði breytt til samræmis við breytingar á meðalverði losunarheimilda á Evrópska efnahagssvæðinu eins og það er á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður.
Lög nr. 87/2011, um gistináttaskatt og innviðagjald. Lagt verður til að gistináttaskattur og innviðagjald hækki um 5,2% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027.
Lög nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku. Lögð verður til hækkun jöfnunargjalds raforku.
Raforkulög, nr. 65/2003. Lögð verður til hækkun raforkueftirlitsgjalds.
Lög nr. 84/2023, um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Lögð verður til framlenging á forvarnagjaldi vegna innviða á Reykjanesskaga um eitt ár.
Frumvarp um náttúru- og innviðagjald. Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um náttúru- og innviðagjald sem mæla fyrir um skýra lagaumgjörð um auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum landsins.
Frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Með frumvarpinu verður lögð til heildarendurskoðun laga um vitamál, nr. 132/1999. Lagt er til nýtt öryggisgjald siglinga sem verði lögfest með frumvarpinu og komi í stað vitagjalds.
Lagabreytingar vegna gjaldahliðar fjárlagafrumvarpsins:
Lög nr. 91/1987, um sóknargjöld o.fl. Lagt verður til að festa að fjárhæð sóknargjalda hækki úr 1.221 kr. á mánuði fyrir hvern skráðan einstakling árið 2026 í 1.270 kr. á mánuði árið.
Lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Lögð verður til framlenging á ákvæði til bráðabirgða til að sporna við því að víxlverkanir örorkubóta almannatrygginga og örorkulífeyris lífeyrissjóða hefjist að nýju.
Lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Lögð verður til framlenging á framlagi ríkissjóðs til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða.
Lög nr. 113/1990, um tryggingagjald. Lögð verður til framlenging á ákvæði til bráðabirgða til að sporna við því að víxlverkanir örorkubóta almannatrygginga og örorkulífeyris lífeyrissjóða hefjist að nýju.
Lög nr. 113/1990, um tryggingagjald. Lögð verður til framlenging á framlagi ríkissjóðs til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða.
Lög nr. 166/2011, um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Lögð verður til breyting á hlutfalli af álagningarstofni sem gjaldskyldir aðilar skulu greiða miðað við áætlaðan rekstrarkostnað stofnunarinnar fyrir árið 2027 með hliðsjón af áætlaðri stöðu í árslok 2026.
Lög nr. 99/1999, um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald. Lagðar verða til breytingar á eftirlitsgjaldi, gjaldi vegna skilavalds og fastagjöldum vegna sérstakra aðgerða til að standa undir áætluðum kostnaði við rekstur Fjármálaeftirlitsins og skilavalds innan Seðlabanka Íslands.
Lög nr. 60/2012, um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Lögð verður til framlenging á bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið er annars vegar á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi á árinu 2027 og hins vegar að atvinnurekendur, þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi og lífeyrissjóðir greiði áfram sama hlutfall af stofni til iðgjalds á árinu 2027, eða 0,10%.
Lög nr. 137/2019, um Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Lögð verður til heimild til að selja eða ráðstafa eignum og tekjum Húsnæðissjóðs til annarra verkefna en heyra undir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
Lög nr. 125/1999, um málefni aldraðra. Lagt verður til að ákvæði sem snýr að stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra verði fellt brott í tengslum við umbreytingu á hlutverki sjóðsins.
Fjárlög fyrir árið 2027