6 Fjárreiður ríkisaðila í A2- og A3-hluta

Flokkun ríkisaðila í A2- og A3-hluta má sjá í meðfylgjandi töflu. Helstu breytingar frá fyrra ári eru þær að hlutafélagið Vaðlaheiðargöng hf. verður að innviðafélaginu Göng og brú ohf., auk þess sem ÍL-sjóður fellur út í kjölfar slita á sjóðunum.

Tafla 6.1 Flokkun ríkisaðila í A2- og A3-hluta

 

6.1 Áætlanir A2-hluta ríkisaðila

Til A2-hluta ríkisaðila teljast lána- og fjárfestingarsjóðir og önnur starfsemi sem er rekin undir stjórn ríkisins og stendur undir sér með sölu á vöru eða þjónustu, leigu og lánastarfsemi. Yfirlit um þessi félög má sjá í töflu 6.2 þar sem fram koma helstu tölur úr ársreikningum þeirra vegna ársins 2025. Í töflu 6.3 má sjá yfirlit yfir áætlaðar lykilstærðir þessara aðila á næsta ári. Helsta breytingin á samsetningu A2-hlutans er að ÍL-sjóður telst ekki lengur A2-ríkisaðili í árslok 2025 eftir að uppgjör skulda hans fór fram á fyrri hluta árs 2025 og sjóðnum var í kjöl­farið slitið.

Breytingin á samsetningu A2-hlutans hefur veruleg áhrif á samanburð heildartalna milli ára. Sé ÍL-sjóður undanskilinn tölum ársins 2024 jukust eignir annarra A2-aðila um 4,5%, skuldir um 1,5% og eigið fé um 13,0% milli ára. Eiginfjárstaða þeirra styrktist því og saman­lögð afkoma batnaði úr rúmlega 5 ma.kr. afgangi árið 2024 í rúmlega 11 ma.kr. árið 2025.

Samanlagðar eignir A2-hluta aðila námu 579 ma.kr. í árslok 2025, skuldir voru 416 ma.kr. og eigið fé því 163 ma.kr. Afkoma þeirra var jákvæð um 11,4 ma.kr. þrátt fyrir halla á rekstri Eignasafns ríkiseigna. Afkoman batnaði um 6 ma.kr. frá fyrra ári, einkum vegna bættrar af­komu Menntasjóðs námsmanna en Náttúruhamfaratrygging Íslands skilaði einnig góðri af­komu. Helsti drifkraftur afkomu þessara ríkisaðila er vegna bókhaldslegra þátta, s.s. mats­breytinga eigna og verðbóta verðtryggða eigna og skulda.

Tafla 6.2 Helstu tölur úr ársreikningum A2-hluta ríkisaðila fyrir árið 2025

 

Tafla 6.3 Áætlaðar lykilstærðir A2-hluta ríkisaðila fyrir árið 2027

 

Á árinu 2027 er gert ráð fyrir að samanlagður afgangur af rekstri A2-hluta aðila nemi 10,1 ma.kr. sem er sambærilegt horfum yfirstandandi árs eða 0,8 ma.kr. lækkun. Rekstrartekjur aukast um 1,2 ma.kr. og rekstrargjöld um 0,5 ma.kr. en sú þróun vegur ekki að fullu upp á móti 1,4 ma.kr. lakari niðurstöðu fjármagnsliða. Framlag til rekstrar úr ríkissjóði helst nær óbreytt og nemur 1,5 ma.kr.

Handbært fé frá rekstri er áætlað 11,8 ma.kr. og lækkar um 7,1 ma.kr., einkum vegna breyt­inga á rekstrartengdum eignum og skuldum. Fjárfestingarhreyfingar haldast nær óbreyttar og nema 14,9 ma.kr. útstreymi. Fjármögnunarhreyfingar verða hins vegar jákvæðar um 6,8 ma.kr., samanborið við 2,2 ma.kr. nettóafborgun árið áður, vegna aukinnar lántöku og lægri afborgana. Handbært fé hækkar því um 3,7 ma.kr. og er áætlað 50,7 ma.kr. í árslok 2027.

 Tafla 6.4 Samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit A2-hluta ríkisaðila

 

6.2 Áætlanir A3-hluta ríkisaðila

Til A3-hluta ríkisaðila telst starfsemi hlutafélaga sem eru að meiri hluta í eigu ríkissjóðs en sinna hlutverkum á sviði opinberrar þjónustu. Þessi félög eru sjálfstæðir lögaðilar en starfsemi þeirra er ekki byggð á markaðslegum forsendum. Í töflu 6.5 koma fram helstu lykilstærðir úr ársreikningum stærstu aðilanna, þ.e. þeirra sem áttu eignir yfir 3 ma.kr. og/eða höfðu tekjur yfir 1 ma.kr.

Samanlagðar eignir A3-hluta aðila námu um 273 ma.kr. í árslok 2025, skuldir um 212 ma.kr. og eigið fé því um 62 ma.kr. Samanlagður halli þeirra af rekstri nam 2,1 ma.kr., saman­borið við 18,3 ma.kr. árið áður. Bætt afkoma skýrist einkum af því að neikvæð afkoma Fast­eignafélagsins Þórkötlu dróst verulega saman milli ára. Afkoma félagsins árið 2024 markaðist af um 17 ma.kr. neikvæðri virðisbreytingu á eignasafni þess.

Innviðafélaginu Göngum og brú ohf. var komið á fót með lögum um mitt árið 2026 í sam­ræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um að auka fjárfestingar í samgöngum og rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð. Megintilgangur félagsins er að hrinda í framkvæmd uppbyggingu stórra þjóð­hagslega mikilvægra samgönguverkefna og tryggja fjármögnun og hraðari framvindu slíkra framkvæmda. Félagið byggir á grunni Vaðlaheiðarganga hf. og til staðar er heimild til að færa félaginu eignarhald samgöngumannvirkja við Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrúar til viðbótar. Með því að færa félaginu fleiri mannvirki er leitast við að tryggja að það hafi fullnægjandi tekjustreymi til að undirbúa næstu verkefni þess sem áætlað er að verði Sundabraut, tvöföldun Hvalfjarðarganga og Fljótagöng. Þá er einnig mikilvægt að félagið komi sem fyrst að fram­kvæmd Ölfusárbrúar og fjármögnun þess verkefnis sem að öðrum kosti yrði gjaldfært hjá A1-hluta ríkissjóðs við afhendingu árið 2028. Vaðlaheiðargöng hf. voru flokkuð í A3-hluta ríkis­sjóðs en markmið Ganga og brúar ohf. er að það uppfylli alþjóðlega þjóðhagsreikningastaðla um að flokkast utan hins opinbera sem C-hluta félag eins og t.d. Landsvirkjun og ISAVIA flokkast í dag.

Tafla 6.5 Helstu tölur úr ársreikningum stærstu A3-hluta ríkisaðila fyrir árið 2025

 

Árið 2027 er gert ráð fyrir að samanlagður halli af rekstri A3-hluta ríkisaðila nemi 3,8 ma.kr., samanborið við 1,3 ma.kr. skv. horfum yfirstandandi árs. Lakari afkoma skýrist einkum af auknum rekstrargjöldum Nýs Landspítala í tengslum við vaxandi umsvif og framvindu upp­byggingarverkefnisins. Fjárfestingar félagsins aukast verulega milli ára eftir því sem fram­kvæmdum vindur fram.

Handbært fé frá rekstri þessara félaga verður neikvætt um 1,4 ma.kr. en fjárfestingar­hreyfingar nema 17,5 ma.kr. útstreymi. Jákvæðar fjármögnunarhreyfingar vega að mestu á móti útstreymi vegna rekstrar og fjárfestinga. Handbært fé lækkar því um 0,6 ma.kr. og er áætlað 4,7 ma.kr. í árslok 2027.

 Tafla 6.6 Samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit A3-hluta ríkisaðila