8 Fjárreiður ríkisaðila í B-hluta
Til B-hluta teljast fyrirtæki og lánastofnanir sem eru undir beinni stjórn ríkisins og rekin eru á ábyrgð ríkissjóðs og ekki teljast til A-hluta. Þessir aðilar starfa á markaði og standa að stærstum hluta undir kostnaði við starfsemi sína með tekjum af sölu á vöru eða þjónustu til almennings og fyrirtækja. Einungis þrjú fyrirtæki og einn sjóður teljast til B-hluta. Það eru Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR), Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ), Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Nýsköpunarsjóðurinn Kría. Framsetning á fjárreiðum aðila í B-hluta er eins og í reikningsskilum fyrirtækja í sambærilegum rekstri og reikningsskil þeirra skulu uppfylla kröfur laga um ársreikninga.
Á árinu 2027 er gert ráð fyrir því að afgangur verði af rekstri þessara aðila sem nemur 1,6 ma.kr. Í töflu 8.1 eru birtar nokkrar lykilstærðir úr fjárreiðum B-hluta aðila sem byggjast á fjárhagsáætlunum þeirra fyrir komandi ár. Arðgreiðslur B-hluta aðila í ríkissjóð eru áætlaðar 750 m.kr. en einungis einn B-hluta aðili, ÁTVR, greiðir arð í ríkissjóð. Áætlað er að Happdrætti Háskóla Íslands endurláni Fasteignum Háskóla Íslands 1,2 ma.kr. á næsta ári sem nýttir verði til framkvæmda og viðhalds fasteigna félagsins.
Tafla 8.1 Áætlaðar lykilstærðir B-hluta ríkisaðila fyrir árið 2027
Í töflu 8.2 er samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit fyrir ríkisaðila í B-hluta í heild. Árið 2027 er gert ráð fyrir 1,5 ma.kr. afgangi af rekstri sem er 1,5 ma.kr. lakari afkoma en skv. horfum ársins 2026. Rekstrartekjur dragast saman um 5,4 ma.kr. og rekstrargjöld um 4,2 ma.kr. Þá versnar afkoma fjármagnsliða um 0,3 ma.kr. Handbært fé frá rekstri lækkar því um 1,6 ma.kr. og er áætlað 1,7 ma.kr.
Fjárfestingarhreyfingar verða nærri jafnvægi en voru jákvæðar um 3,2 ma.kr. samkvæmt horfum ársins 2026. Breytingin skýrist einkum af lægra innstreymi vegna ávöxtunarsamninga og áhættufjármuna. Neikvæðar fjármögnunarhreyfingar minnka hins vegar verulega, aðallega vegna þess að greiðsla til Háskóla Íslands lækkar milli ára. Handbært fé lækkar um 0,3 ma.kr. og er áætlað 5,4 ma.kr. í árslok 2027.
Tafla 8.2 Samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit B-hluta ríkisaðila
Fjárlög fyrir árið 2027