02 Dómstólar
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 02 Dómstólar árið 2027 eru áætluð 4.805,6 m.kr. og lækka um 7,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 0,2%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 199,8 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 4,3%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur í sér sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og lækkunar á varasjóðum málaflokka. Málefnasviðið er undanþegið almennri aðhaldskröfu.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
02.10 Hæstiréttur
Starfsemi málaflokksins er í höndum Hæstaréttar. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.
Verkefni í málaflokknum má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 630,9 m.kr. og lækkar um 1,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 27,5 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum málefnasviðsins sem nemur 1,2 m.kr.
02.20 Héraðsdómstólar
Starfsemi málaflokksins er í höndum héraðsdómstólanna. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.
Verkefni í málaflokknum má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.619,4 m.kr. og lækkar um 4,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 116,8 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsaðgerðum málefnasviðsins sem nemur 4,4 m.kr.
02.30 Landsréttur
Starfsemi málaflokksins er í höndum Landsréttar. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.
Verkefni í málaflokknum má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 1.070 m.kr. og lækkar um 1,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 44,6 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsaðgerðum málefnasviðsins sem nemur 1,8 m.kr.
02.40 Dómstólasýslan
Starfsemi málaflokksins er í höndum dómstólasýslunnar. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í II. kafla laganna er kveðið á um hlutverk og helstu verkefni dómstólasýslunnar. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.
Í töflunni hér á eftir má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Réttlát og opinber málsmeðferð | ||
| Efla öryggi í húsnæði dómstóla. | Dómstólasýslan | Innan ramma |
| Greina réttarfarslöggjöf og verklag hjá dómstólum með það að markmiði að stytta málsmeðferðartíma. Þjónar einnig markmiði nr. 2. | Dómstólasýslan | Innan ramma |
| Bæta aðstöðu túlka í dómsal og taka nýjan tækjabúnað í notkun. | Dómstólasýslan og dómstólar | Innan ramma |
| Markmið 2: Aukin skilvirkni og gæði | ||
| Undirbúningur og þróun stafrænnar málsmeðferðar í ákveðnum tegundum einkamála, m.a. með það að markmiði að einfalda málsmeðferð og bæta upplýsingagjöf. | Dómstólasýslan | Innan ramma |
| Innleiðing talgreinis til að rita upp skýrslutökur fyrir dómi. | Dómstólasýslan í samvinnu við dómsmálaráðuneytið | Innan ramma |
| Þróun sjálfvirknilausna með gervigreind, m.a. til grunnhreinsunar á dómum. | Dómstólasýslan og dómstólar | Innan ramma |
| Þróun málaskrár samhliða þróun réttarvörslugáttar. | Dómstólasýslan | Innan ramma |
| Eftirfylgni með úttekt á öryggi upplýsingatæknikerfa og innleiðing verklagsreglna í samræmi við öryggisstefnu. | Dómstólasýslan | Innan ramma |
| Markmið 3: Aukið traust til dómstóla | ||
| Kynning á starfsemi dómstóla og bætt upplýsingagjöf um starfsemi þeirra. | Dómstólasýslan | Innan ramma |
| Bætt framsetning tölfræðiupplýsinga og miðlun þeirra. | Dómstólasýslan | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 485,3 m.kr. og lækkar um 0,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 18,6 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum málefnasviðsins sem nemur 0,3 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2027