03 Æðsta stjórnsýsla
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð forsætisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 03 Æðsta stjórnsýsla árið 2027 eru áætluð 4.319,9 m.kr. og aukast um 965,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 29,8%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 1.080,8 m.kr. milli ára eða sem svarar til 33,4 %.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
03.10 Embætti forseta Íslands
Undir málaflokkinn fellur rekstur forsetaembættisins. Viðvarandi verkefni er að tryggja að umgjörð og starfsemi embættis forseta Íslands taki mið af hlutverki forseta sem þjóðhöfðingja og geri embættinu kleift að sinna verkefnum sínum innan lands og erlendis með fullnægjandi hætti.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 433,6 m.kr. og lækkar um 7,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 19,4 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Hlutdeild málaflokksins í almennri aðhaldskröfu og sértækum hagræðingarkröfum málefnasviðsins nemur 7,8 m.kr.
03.20 Ríkisstjórn
Undir málaflokkinn falla laun ráðherra í ríkisstjórn og aðstoðarmanna þeirra. Liðurinn tekur breytingum í samræmi við fjölda ráðherra og aðstoðarmanna á hverjum tíma.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 1.138,8 m.kr. og hækkar um 230 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 54 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 230 m.kr. vegna breytingar á fyrirkomulagi greiðslu launa ráðherra en nú falla öll laun ráðherra undir sama málaflokkinn.
03.30 Forsætisráðuneyti
Undir þennan málaflokk fellur aðalskrifstofa forsætisráðuneytisins og tengd verkefni sem ekki verða auðveldlega felld undir önnur málefnasvið og málaflokka. Margar áskoranir kalla á aukna og skilvirka samhæfingu innan Stjórnarráðsins og samstarf á vettvangi ráðherranefnda. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal helstu verkefni, áskoranir og tækifæri.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Aukin velferð og verðmætasköpun1. | ||
| Innleiðing atvinnustefnu Íslands til 2035 og aðgerðaáætlun sem miða að vexti útflutnings, alþjóðlegri samkeppnishæfni og aukinni framleiðni atvinnulífsins. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
| Markviss móttaka stórfjárfestinga til atvinnuþróunar um allt land. Stafræn upplýsingagátt fyrir fjárfesta sett á laggirnar. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Skilvirkt og samhent stjórnkerfi | ||
| Mótun og innleiðing áætlunar um að styrkja umgjörð um starfsemi kæru- og úrskurðarnefnda, m.a. með því að koma á fót nefndahúsi. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
| Áframhaldandi gerð leiðbeininga um vandaða stjórnsýsluhætti, m.a. gerð handbóka fyrir ráðherra og embættismenn. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
| Efling vandaðrar stefnumótunar og samhæfingar vinnubragða með reglubundinni fræðslu og hagnýtum leiðbeiningum í samstarfi við stefnuráð Stjórnarráðsins. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 3: Samhæfing stefnumála og verkstjórn | ||
| Samhæfing verkefna stjórnvalda vegna Grindavíkur og efling samstarfs við íbúa um örugga endurreisn bæjarins. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
| Efla samhæfingu stjórnvalda til að styrkja áfallaþol stjórnkerfisins og samfélagsins. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
| Mótun framtíðarfyrirkomulags samþættrar þjónustu fyrir börn og ungmenni með vímuefnavanda. | Forsætisráðuneyti | Innan ramma |
Orðalagsbreyting á markmiði 1 í fjármálaáætlun 2027-2031.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.747,5 m.kr. og hækkar um 743,0 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 42,2 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið um 800 m.kr. til nýbyggingar við Stjórnarráðshúsið. Upphæðin kemur til viðbótar 515 m.kr. sem veittar voru í fjárlögum 2026.
- Hlutdeild málaflokksins í almennri aðhaldskröfu og sértækum hagræðingarkröfum málefnasviðsins nemur 58 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2027