04 Utanríkismál
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð utanríkisráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 04 Utanríkismál árið 2027 eru áætluð 25.677,4 m.kr. og aukast um 2.063,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 8,7%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.006,6 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 12,7%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Mikilvægi þess að sinna alþjóðasamskiptum og hagsmunagæslu fyrir Ísland hefur sjaldan verið skýrara og á það við um öll svið alþjóðasamskipta, hvort sem það tengist viðskiptum, hagsmunagæslu eða samstarfi um öryggis- og varnarmál. Ástand heimsmála er með þeim hætti að nauðsynlegt er að horfa sérstaklega til öryggis- og varnarmála og endurspeglar sú forgangsröðun sem birtist í þessu fjárlagafrumvarpi þann veruleika.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála
Starfsemi málaflokksins er í höndum aðalskrifstofu ráðuneytisins og sendiskrifstofa erlendis. Utanríkisþjónustan öll sinnir hagsmunagæslu gagnvart erlendum ríkjum og á vettvangi alþjóðastofnana, þjónustu við íslenska ríkisborgara erlendis, viðskiptasamningum og markaðssetningu erlendis á íslenskum vörum, þjónustu og menningu. Þótt allt starf utanríkisþjónustunnar sem lýtur að utanríkisviðskiptum og kynningu á íslenskum vörum, þjónustu og menningu sé fjármagnað undir þessum málaflokki er gerð nánari grein fyrir markmiðum og aðgerðum þar að lútandi í kafla um málaflokk 04.20 Utanríkisviðskipti. Alþjóðalög, lýðræðisleg gildi, mannréttindi og fjölþjóðastofnanir hafa átt á brattann að sækja og þar sem Ísland á allt sitt undir því að alþjóðalög, lögsaga og landamæri séu virt felast lykilhagsmunir í virkri þátttöku í alþjóðlegu og svæðisbundnu samstarfi.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Standa vörð um grunngildi Íslands á vettvangi fjölþjóðlegrar samvinnu | ||
| Virkt málsvarastarf á vettvangi fjölþjóðastofnana og þátttaka í alþjóðlegu samstarfi í þágu mannréttinda, lýðræðis og þjóðaréttar.. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Aukin þátttaka í svæðisbundnu samstarfi Norðurlanda og norðurslóðaríkja. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Efling samstarfs þvert á fagráðuneyti og aukin þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um sjálfbæra nýtingu auðlinda, þ.m.t. á sviði hafréttar. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Eftirfylgni við jafnréttisáherslur Íslands á alþjóðavettvangi. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Standa vörð um hagsmuni íslenskra ríkisborgara | ||
| Styrking borgaraþjónustu, aukin upplýsingamiðlun til almennings á vef og innleiðing stafrænna lausna. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Rekstur öflugs nets kjörræðismanna sem þjónustar íslenska ríkisborgara erlendis. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 3: Standa vörð um hagsmuni Íslands með tvíhliða samvinnu við þjóðríki | ||
| Aukið pólitískt samráð við helstu samstarfsríki og kynning á afstöðu og áherslum Íslands. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 7.753,2 m.kr. og hækkar um 113,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 332,7 m.kr.
Ekki eru gerðar teljandi breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Framlög til málaflokksins hækka um 300 m.kr. til styrkingar hagsmunagæslu og alþjóðasamstarfi á óvissutímum, formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu og til eftirfylgni setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Þorra þessara framlaga, 230 m.kr., verður varið til eflingar aðalskrifstofu ráðuneytisins en hluta, 70 m.kr., verður varið á sendiskrifstofum Íslands erlendis.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 186,3 m.kr. Stór hluti aðhaldskröfunnar, 106,5 m.kr., er í formi sértækra aðhaldsaðgerða úr fjármálaáætlun. Almenn aðhaldskrafa er gerð sem nemur mismuninum, 79,8 m.kr., og verður útfærð við gerð rekstraráætlunar fyrir 2027.
04.20 Utanríkisviðskipti
Starfsemi málaflokksins er í höndum aðalskrifstofu ráðuneytisins, sendiskrifstofa og Íslandsstofu en fjárheimildir undir málaflokkinn renna eingöngu til starfa Íslandsstofu. Íslandsstofu er falið að sjá um markaðssetningu og kynningarstarf erlendis á íslenskum vörum, þjónustu og menningu í samstarfi við ráðuneytið. Markmið og aðgerðir málaflokksins skarast að einhverju leyti við markmið og aðgerðir málaflokks 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála en alþjóðlegt og tvíhliða samstarf um utanríkisviðskipti, tengd hagsmunagæsla og samningagerð um utanríkisviðskipti eru fjármögnuð undir málaflokki 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála. Markmiðasetning fellur þó undir málaflokk 04.20 Utanríkisviðskipti.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Tryggja íslenskum fyrirtækjum sem bestan aðgang að alþjóðlegum mörkuðum | ||
| Framfylgja Framtíðarstefnu fyrir íslenskan útflutning. Þar hafa verið skilgreind mælanleg árangursviðmið sem verða notuð til að meta árangur af starfi. | Utanríkisráðuneyti og Íslandsstofa | Innan ramma |
| Styrkja viðskiptaþjónustu sendiskrifstofa við fyrirtæki í samræmi við stefnumarkandi áherslur í Framtíðarstefnu fyrir íslenskan útflutning og atvinnustefnu stjórnvalda* | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Koma íslenskri menningu og skapandi greinum á framfæri í tvíhliða samskiptum og með samstarfi við Íslandsstofu.** | Utanríkisráðuneyti og Íslandsstofa | Innan ramma |
| Markmið 2: Bæta vaxtarskilyrði fyrir íslenskt athafnalíf og nýsköpun og tryggja velsæld | ||
| Vinna að hagsmunagæslu í EES-samstarfi, m.a. á grundvelli forgangslista ríkisstjórnarinnar í hagsmunagæslu við mótun EES-löggjafar. | Utanríkisráðuneyti og fagráðuneyti | Innan ramma |
| Efla þekkingu á EES-samningnum og hlúa að mannauði sem kemur að framkvæmd hans, s.s. með endurskoðun EES-handbókar, bættri samhæfingu og aukinni fræðslu. | Utanríkisráðuneyti og fagráðuneyti | Innan ramma |
| Bæta frammistöðu við upptöku og innleiðingu EES-gerða. | Utanríkisráðuneyti og fagráðuneyti | Innan ramma |
| Fjölga fríverslunarsamningum og öðrum viðskiptasamningum, s.s. tvísköttunarsamningum og loftferðasamningum. Tryggja góða framkvæmd gildandi samninga. | Utanríkisráðuneyti og fagráðuneyti | Innan ramma |
| Starfrækja viðskiptavakt sem fyrirtæki geta leitað til vegna hnökra í alþjóðaviðskiptum. | Utanríkisráðuneyti og fagráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 3: Bæta vaxtarskilyrði fyrir íslenskt athafnalíf og nýsköpun og tryggja velsæld | ||
| Greiða fyrir aðgengi íslenskrar tækniþekkingar, grænna lausna og nýsköpunar á erlendum mörkuðum. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
* Verkefnið styður jafnframt við markmið 2.
** Verkefnið styður jafnframt við markmið 3 í málaflokki 4.10.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 1.237,1 m.kr. og lækkar um 12,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Að teknu tilliti til almennra launa- og verðlagsbreytinga sem nema 68,2 m.kr. hækka framlögin sem nemur 55,5 m.kr. Í kjölfar breytinga á lögum um Íslandsstofu í tengslum við fjárlög ársins 2026 fylgja framlög til Íslandsstofu ekki lengur sjálfkrafa þróun markaðsgjalds, sem lagt er á stofn tryggingagjalds. Í stað þess njóta framlögin verðlagsuppfærslu eins og önnur rekstrargjöld og sæta aðhaldi.
Ekki eru gerðar breytingar á fjárheimildum málaflokksins aðrar en áðurnefnd hlutdeild hans í aðhaldskröfu á málefnasviðið, sem nemur 12,7 m.kr.
04.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál
Starfsemi málaflokksins er í höndum aðalskrifstofu ráðuneytisins og sendiskrifstofa erlendis. Þá annast Landhelgisgæsla Íslands framkvæmd ýmissa rekstrarverkefna á sviði öryggis- og varnarmála á grundvelli þjónustusamnings og ríkislögreglustjóri annast tiltekin verkefni á sviði öryggis- og varnarmála á grundvelli þjónustusamnings. Málaflokkurinn skiptist í þrjú meginsvið: fjölþjóðasamstarf um öryggis- og varnarmál; fjölþáttaógnir; og rekstur og fjármögnun varnartengdra rekstrarverkefna og yfirumsjón með öryggis- og varnarsvæðum á Íslandi. Þá heyrir rekstur tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og undirbúningur og framkvæmd varnaræfinga sem haldnar eru á íslensku yfirráðasvæði einnig undir málaflokkinn.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Tryggja varnir og viðbúnaðargetu Íslands | ||
| Uppbygging og viðhald á varnarmannvirkjum og kerfum á öryggissvæðunum. | Utanríkisráðuneyti og Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Bætt mönnun, aukin sérfræðiþekking, þjálfun og endurmenntun starfsfólks sem sinnir varnartengdum verkefnum. | Utanríkisráðuneyti og Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Markmið 2: Efla þátttöku Íslands í öryggis- og varnarsamstarfi | ||
| Stuðningur við Úkraínu vegna innrásarstríðs Rússlands með þátttöku Íslands í kaupum á nauðsynlegum hergögnum og birgðum, ásamt sértækum þjálfunarverkefnum. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Virk þátttaka Íslands í starfi NATO, ÖSE, NORDEFCO, Norðurhópsins, JEF og SÞ á sviði öryggis- og varnarmála, m.a. með þátttöku í fundum og æfingum. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 3: Efla gistiríkjastuðning Íslands | ||
| Auka og þétta loftrýmisgæslu á Íslandi. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Fjölga þjónustubyggingum, þ.á m. gistirýmum á öryggissvæðunum. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 12.782,2 m.kr. og hækkar um 1.962,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 501,5 m.kr.
Lítils háttar breyting er gerð á hagrænni skiptingu málaflokksins, sem felst í því að gerð er breyting á heimild til öflunar sértekna, til samræmis við raunþörf málaflokksins, og lækkar hún um 136,9 m.kr. og gjaldaheimild lækkuð til samræmis.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 2.300 m.kr. til styrkingar öryggis- og varnarmálum, aukinnar þátttöku í alþjóðlegu samstarfi og endurbóta og uppbyggingu innviða á varnarsvæðunum.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 172,7 m.kr. og verður útfærð við gerð rekstraráætlunar fyrir árið 2027.
- Við yfirfærslu á verkefnum CERT-IS til utanríkisráðuneytisins með fjárlögum fyrir 2026 voru yfirfærðar fjárheimildir ofreiknaðar sem nemur 25 m.kr. og er það leiðrétt sem skýrir 25 m.kr. lækkun fyrir málaflokkinn.
04.50 Samningsbundin framlög vegna fjölþjóðasamstarfs
Undir málaflokkinn falla skylduframlög og aðildargjöld Íslands til alþjóðastofnana sem hafa þann tilgang að styðja alþjóðakerfið og þátttöku Íslands á vettvangi viðkomandi stofnana. Framlögin eru þess eðlis að þau sveiflast nokkuð á milli ára, m.a. vegna breytinga á hlutdeild Íslands í samræmi við reiknireglur viðkomandi stofnunar og fjárhagsáætlana alþjóðastofnana.
Þátttaka Íslands í fjölþjóðasamstarfi fellur þvert á verkefni og fer stefnumótun fram undir öðrum málaflokkum sem falla undir málefnasvið 04 Utanríkismál.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 3.904,9 m.kr. og er óbreytt milli ára, að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum sem nema 40,4 m.kr. vegna gengisþróunar. Hagræn skipting innan málaflokksins er óbreytt á milli ára.
Fjárlög fyrir árið 2027