05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka í eftirfarandi töflu. Þar er jafnframt fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu eru á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla árið 2027 eru áætluð 31.589 m.kr. og hækka um 129 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 0,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 1.205,2 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 4%. Myndin endurspeglar útfærslu og forgangsröðun sem kemur fram í stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027-2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Breyting á fjárheimildum málefnasviðsins er í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar fyrir málefnasviðið í fjármálaáætlun 2027–2031 um betri og hagkvæmari ríkisrekstur. Hagræðingarkröfum er mætt með áherslum á aukna stafvæðingu þjónustu, aukinni skilvirkni í störfum og þjónustu við almenning. Forgangur er aðhald og hagræðing í rekstri, bætt skilvirkni og einföldun stjórnsýslu.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
05.10 Skattar og innheimta
Skattframkvæmd er á hendi Skattsins og yfirskattanefndar. Fjármála- og efnahagsráðherra er æðsti yfirmaður skattamála og fer hann með stefnumótun, almenn samskipti og eftirlit með stofnunum sem sinna skattframkvæmd.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Bæta skattskil og tekjuöflun til sameiginlegra útgjalda | ||
| Áfram verður unnið að eflingu skattrannsókna og skatteftirlits með áherslu á áhættumiðað eftirlit auk samtímaeftirlits samhliða eflingu stafræns umhverfis. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Skatturinn | Innan ramma |
| Reglur um reiknuð laun og reglugerð um frádrátt frá tekjum í atvinnurekstri verða teknar til skoðunar. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Skatturinn | Innan ramma |
| Unnið verður að breytingum á ákvæðum laga um virðisaukaskatt, um uppgjörstímabil og uppgjör virðisaukaskatts og annarra gjalda í tolli. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Skatturinn | Innan ramma |
| Markmið 2: Efla þjónustu og upplýsingagjöf við einstaklinga og fyrirtæki | ||
| Unnið verður áfram að stafvæðingu þjónustu skattkerfisins með skilvirkara kerfi og færri undanþágum ásamt áherslu á stöðlun gagna og sjálfvirknivæðingu. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Skatturinn | Innan ramma |
| Markmið 3: Skattkerfi styðji við stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og nýsköpun | ||
| Umbætur í regluverki, stjórnsýslu og fjárhagslegri umgjörð um stuðningskerfi við rannsóknir og þróun verður fram haldið. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 11.460,9 m.kr. og lækkar um 384,5.kr. eða um 3,4% frá gildandi fjárlögum, að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum sem nema 494,1 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 50 m.kr. Veitt hafði verið tímabundin fjárveiting til verkefnis um aukið eftirlit með rannsókna- og þróunarverkefnum sem er færð til baka á málaflokk 05.40 stjórnsýsla ríkisfjármála.
- Tekju- og gjaldaheimild er lækkuð um 68 m.kr. í samræmi við áætlanir Skattsins.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins og sértækum aðhaldsráðstöfunum nemur 266,5 m.kr.
05.20 Eignaumsýsla ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með yfirumsjón og fyrirsvar eigna í eigu ríkisins, þ.m.t. í félögum, fasteignum, jörðum og auðlindum, auk þess að vera ábyrgðaraðili opinberra framkvæmda. Starfsemi sem hér fellur undir er að hluta falin Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum. Í almennri eigendastefnu fyrir félög í eigu ríkisins og eigandastefnu vegna jarða, landa, lóða og auðlinda í ríkiseigu eru lagðar línur um hvernig standa skuli að eignaumsýslu og eftirliti með þeim eignum.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Bætt yfirsýn, aukið gagnsæi,samfélagslega arðbær og ábyrgur rekstur eigna í eigu ríkisins | ||
| Mat á eignasafni ríkisins í félögum og endurskoðun á forsendum eignarhalds. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Arðsemis- og áhættumat á eignasafni ríkisins í félögum. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Eigendastefna endurskoðuð og viðaukar birtir fyrir fjármála- og orkufyrirtæki. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Markmið 2: Markvissari stýring á fjárfestingum ríkisins | ||
| Ný umgjörð innleidd fyrir stærri fjárfestingar ríkisins vegna endurskoðunar á núgildandi lagaramma. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Aukin hagkvæmni í umsýslu með húsnæði ríkisstofnana með bættri nýtingu, auknum samrekstri og virkri stýringu eignasafns ríkiseigna. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir | Innan ramma |
| Undirbúningur að yfirfærslu fasteigna hjá Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri í miðlæga eignaumsýslu. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og NLSH ohf. | Innan ramma |
| Markmið 3: Aukin sjálfbærni og hagkvæm nýting lands, náttúru og auðlinda í umráðum ríkisins | ||
| Aukin auðlindanýting á ríkisjörðum þar sem endurgjald til ríkissjóðs tekur mið af markaðsforsendum. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir | Innan ramma |
| Greining á möguleikum á auglýsingu sérleyfa eða annarrar samningsgerðar til uppbyggingar á starfsemi eða innviðum á ríkislandi. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.816,8 m.kr. og lækkar um 232,9 m.kr. eða 7,8% frá gildandi fjárlögum, að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 65,9 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Tekju- og gjaldaheimild lækkar um fjárhæð 43 m.kr. til samræmis við áætlanir FSRE.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 189,9 m.kr.
05.30 Fjármálaumsýsla ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með yfirstjórn ríkisrekstrar og vinnur að gagnsæjum rekstri ríkisins og einföldu skipulagi sem tryggir góða þjónustu. Hlutverk ráðuneytisins í umbótum í ríkisrekstri er víðtækt og nær m.a. til stafvæðingar hins opinbera, hagræðingar í ríkisrekstri, mannauðsstjórnunar og árangursstjórnunar. Undir málaflokkinn falla stofnanir sem annast rekstrarlega innviði ríkiskerfisins og veita miðlæga grunnþjónustu til ríkisstofnana í mannauðsmálum, fjármálum, innkaupum og upplýsingatækni, þ.e. Fjársýsla ríkisins og Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og Verkefnastofa um Stafrænt Ísland.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Betri og skilvirkari þjónusta ríkisstofnana | ||
| Innleiðing stefnu um opinbera þjónustu og eftirfylgni með aðgerðaáætlun. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Kortlagning á tækifærum í forvirkri þjónustu hins opinbera. | Stafrænt Ísland | Innan ramma |
| Grunnurinn lagður að tæknisamstæðu grunnskráa og sameiginlegs gagnavangs með áherslu á þjóð- og fyrirtækjaskrá. | Stafrænt Ísland | Innan ramma |
| Kortlagning aukinnar þjónustu við fyrirtæki á Island.is. | Stafrænt Ísland | Innan ramma |
| Markmið 2: Efla ríkið sem góðan vinnustað og styrkja hæfni þess til að veita góða opinbera þjónustu | ||
| Yfirfara og skilgreina lykilmælikvarða í mælaborði um mannauð, nauðsynlegar skráningar og aðferðir við útreikninga. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Gefin verða út leiðbeinandi viðmið fyrir stofnanir fyrir viðveru, fjarveru, og fyrirkomulag fjarvinnu til að nýta viðmótun viðverustefnu. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Gefin verða út viðmið og leiðbeiningar fyrir regluleg starfsmannasamtöl og endurgjöf. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Markmið 3: Öflugri og vistvænni rekstur ríkisstofnana | ||
| Efling miðlægra stofnana í samrekstri til að auka hagræðingu í ríkisrekstri. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Endurskoðun kærumeðferðar og viðurlaga vegna brota á lögum um opinber innkaup. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Áframhaldandi fjárfesting í eldri upplýsingakerfum og stuðningi Stafræns Íslands. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Ísland.is | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 7.077,1 m.kr. og hækkar um 72,1 m.kr., eða 1,1% frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 214,8 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild Umbru – þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins hækkar um 179,4 m.kr., sem skýrist helst af 415 m.kr. hækkun vegna aukins umfangs MS samnings og hins vegar 197 m.kr. lækkun fjárheimildar þar sem samrekstur skýjageira hefur ekki þróast líkt og áætlanir gerðu ráð fyrir. Ofangreindar breytingarnar hafa ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs þar sem þær hafa samsvarandi áhrif á tekjuhlið.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 110,9 m.kr.
05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála
Undir málaflokkinn fellur aðalskrifstofa fjármála- og efnahagsráðuneytis, ráðstöfunarfé og ýmis önnur verkefni sem ekki verða auðveldlega felld undir önnur málefnasvið eða málaflokka. Fjárveiting til Stafræns Íslands fellur undir málaflokkinn en gerð er grein fyrir markmiðum og áherslum þessara verkefna í málaflokki 5.3.
Í töflunni hér fyrir neðan eru helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Skýrari tengingar milli stefnu, fjármuna og árangurs | ||
| Áframhaldandi þróun á árangursmælaborði á vef Stjórnarráðsins. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Birting miðlægra lykilárangursmælikvarða (KPIs) í rekstri og þjónustu ríkisins, þvert á stofnanir og þjónustu ríkisins. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Markmið 2: Bætt upplýsingagjöf um fjármál og rekstur ríkisins | ||
Uppfæra opnirreikningar.is með nýju viðmóti og skilvirkari gögnum. | Fjársýsla ríkisins | Innan ramma |
Séryfirlit í ríkisreikningi birt á vef gegnum Power BI Skýrslur. | Fjársýsla ríkisins | Innan ramma |
| Markmið 3: Bætt áætlanagerð og eftirfylgni með fjármunum ríkisins | ||
| Bætt umgjörð og samræmd málsmeðferð vegna fjárfestinga ríkisins. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
| Innleiða reglugerð um innri endurskoðun hjá ríkinu í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. | Fjármála- og efnahagsráðuneytið | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 10.234,1 m.kr. og hækkar um 674,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 301,5 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 120 m.kr. vegna áætlaðra loka tímabundinnar fjárveitingar vegna virðismats starfa.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 400 m.kr. vegna breytinga og tilfærslu á umsýslu hugbúnaðarleyfa.
- Framlög dómkröfuliðar hækka um 300 m.kr. í samræmi við rauntölur síðustu ára.
- Framlög til greiðslu höfundarréttargjalda hækka um 90 m.kr. í samræmi við áætlanir.
- Framlög hækka um 109,3 m.kr. vegna tilflutnings verkefna, annars vegar 59,3 m.kr. vegna miðlægs upplýsingatæknikostnaðar sem færist milli málefnasviða og 50 m.kr. sem veitt var til tímabundins verkefnis skattaeftirlits.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 105,1 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2027