06 Hagskýrslugerð og grunnskrár

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð forsætisráðherra og dómsmálaráðherra. Undir það heyrir einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 06 Hagskýrslugerð og grunnskrár árið 2027 eru áætluð 3.446,8 m.kr. og lækka um 263,4 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 7,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 112,1 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 3,1%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum, fyrirhugaðrar sameiningar stofnana, fækkun stöðugilda hjá ríkinu auk almennrar aðhaldskröfu á málefnasviðið.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með frumvarpi til fjárlaga.

 

06.10 Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál

Undir málaflokknum eru tvær stofnanir og verkefni þeirra. Hagstofa Íslands heyrir undir forsætisráðherra og Þjóðskrá Íslands heyrir undir dómsmálaráðherra.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Bæta aðgengi og tímanleika hagtalna
Endurbætur á þjóðhagsreikningum með áherslu á framleiðsluuppgjör.Hagstofa ÍslandsInnan ramma
Frekari þróun á fyrirtækjaskrá með upplýsingum um starfsstöðvar.Hagstofa ÍslandsInnan ramma
Innleiðing á samræmdum gagnaarkitektúr og styrking rekstraröryggis tækniinnviða.Hagstofa ÍslandsInnan ramma
Nýtt þjóðskrárkerfi (uppfærsla gagnagrunna og innfærsla nýrra skráningarupplýsinga) sem vistað er í skýi.Þjóðskrá ÍslandsInnan ramma
Markmið 2: Bæta gæði, framboð og aðgengi að opnum gögnum
Afhending skilríkja og skírteina á aðgengilegum stað með rúman opnunartíma. Þjónusta til hagsbóta fyrir fólkið í landinu.  Þjóðskrá ÍslandsInnan ramma
Skilríki; innleiðing nýrra vegabréfa með öryggiskröfum í samræmi við alþjóðastaðla, ásamt hugbúnaði og tækjum til persónugerðar.Þjóðskrá ÍslandsInnan ramma
Ný skilríkjaskrá (gagnagrunnur)Þjóðskrá ÍslandsInnan ramma
Markmið 3: Auka framboð öruggrar, stafrænnar þjónustu
Þróun á rafrænni kjörskrá.Þjóðskrá Íslandsinnan ramma
Þróun á samræmdu auðkenni, „gerviauðkenni“, fyrir stofnanir eins og heilbrigðisstofnanir og löggæslu vegna einstaklinga sem ekki með eru með íslenska kennitölu.Þjóðskrá ÍslandsInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 3.446,8 m.kr. og lækkar um 263,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 151,3 m.kr.

Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild að fjárhæð 113 m.kr. vegna hagtölugerðar um lífeyrismál fellur niður.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 95,1 m.kr. og er skipt niður á stofnanir og verkefni málaflokks.