08 Sveitarfélög og byggðamál

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð innviðaráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og megin­mark­miðum á málefnasviðinu er lýst í stefnumótandi áætlunum fyrir hvorn málaflokk. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnar­ráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 08 Sveitarfélög og byggðamál árið 2027 eru áætluð 41.080,2 m.kr. og aukast um 354,9 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 0,9%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 1.678,5 m.kr. milli ára eða sem svarar til 4,3%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Stefna stjórnvalda í málaflokknum er mörkuð í þingsályktunum um byggðaáætlun og um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga. Málefnasviðið tekur á sig 1% aðhald frá fjár­lögum 2026 sem dreift hefur verið hlutfallslega á bilinu 1–2% á verkefni málaflokksins.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

08.10 Framlög til sveitarfélaga

Starfsemi málaflokksins er í höndum innviðaráðuneytisins og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem er á ábyrgð innviðaráðherra en ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga voru samþykkt á Alþingi í júlí 2026. Hlutverk sjóðsins er að greiða sveitarfélögum framlög til jöfnunar á tekj­um þeirra og útgjaldaþörf á grundvelli laga, reglugerða og vinnureglna um starfsemi sjóðs­ins. Tilgangurinn er að sveitarfélögin standi á jafnari grunni, að teknu tilliti til land- og lýðfræði­legra þátta, auk fjárhagslegs styrks, til að sinna sínum lögbundnu verkefnum. Þá greiðir sjóður­inn framlög til samtaka sveitarfélaga, stofnana þeirra og annarra aðila í samræmi við ákvæði laga.

Í þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga er mörkuð stefna stjórn­valda til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Núgildandi stefna gildir fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028. Markmið stjórnvalda eru að sveitarfélög á Íslandi verði öflug og sjálfbær og ýti undir lýðræðislega virkni íbúa, ásamt því að sjálfstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt og að tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu. Stefnan er samhæfð við aðrar stefnur og áætlanir ráðuneytisins eins og við á hverju sinni. Endurskoðun gildandi stefnu og aðgerðaáætlunar í málefnum sveitarfélaga hefst haustið 2026.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Sveitarfélög á Íslandi verði öflugur og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi
Endurskoðun regluverks um reikningsskil sveitarfélaga.InnviðaráðuneytiInnan ramma
Þróun viðmiða um lágmarksþjónustu og verkefni sveitar­félaga.InnviðaráðuneytiInnan ramma
Mótun reglna vegna atvinnuþátttöku og fyrirtækja sveitarfélaga.InnviðaráðuneytiInnan ramma
Markmið 2: Sjálfstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt og að sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu verði tryggð
Endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokki sveitarfélaga.InnviðaráðuneytiInnan ramma
Einföldun regluverks á sviði lögmæltra verkefna sveitar­félaga.Innviðaráðuneyti í samstarfi við önnur ráðuneytiInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 39.182,1 m.kr. og hækkar um 813,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.319,1 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 3.269,8 m.kr. til lögbundins framlags í Jöfnun­arsjóð sveitarfélaga og þar af eru 1.319,1 m.kr. vegna almennra verðlagsbreytinga í samræmi við þjóðhagsspá.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 37,3 m.kr. og er færð á sérstök viðbótarframlög jöfnunarsjóðsins.
  3. Tímabundin framlög, tengd lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, falla niður. Sérstök viðbótarframlög jöfnunarsjóðsins lækka um 1.100 m.kr. vegna þessa.

08.20 Byggðamál

Málaflokkurinn skiptist í byggðaáætlun, sóknaráætlanir landshluta, Byggðastofnun, at­vinnuráðgjafa á landsbyggðinni og jöfnun flutningskostnaðar, sem heyra undir innviðaráð­herra, og framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur, sem heyrir undir forsætisráðherra. Unnið verður, með fyrirvara um samþykkt Alþingis, skv. þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027–2041 og fimm ára aðgerðaáætlun hennar fyrir árin 2027–2031. Hér má nálgast upplýsingar um framgang einstakra aðgerða fyrir tímabilið 2022–2026.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027, með fyrirvara um samþykkt Alþingis haustið 2026 á þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum mála­flokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Jafna aðgengi að þjónustu
Styrkja rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu.Innviðaráðuneyti, ByggðastofnunInnan ramma
Auka möguleika barna og ungmenna í dreifðum byggðum til þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi.Mennta- og barnamála­ráðuneyti, innviða­ráðuneytiInnan ramma
Jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu með því að virkja íviljanaheimildir í lögum um Menntasjóð náms­manna og fjölga þannig sérfræðingum á heilbrigðissviði á landsbyggðinni.1Heilbrigðisráðuneyti, ByggðastofnunInnan ramma
Markmið 2: Jafna tækifæri til atvinnu
Búsetufrelsi eflt með fjölgun atvinnu­tækifæra og auknum fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni, m.a. með því að veita ríkisstofnunum styrki til að ráða fólk í óstaðbundin störf á þeirra vegum utan höfuðborgarsvæðisins og að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.

Innviðaráðuneyti,

Byggðastofnun

Innan ramma
Efla umgjörð og starfsumhverfi hringrásariðgarða um allt land.

Forsætisráðuneyti

 

Innan ramma
Skapa traustan grunn fyrir stefnumótun um dreifðari orkuvinnslu með heildstæðri kortlagningu á möguleikum til að efla byggðir landsins..Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Markmið 3: Stuðla að sjálfbærri þróun byggða um land allt
Sóknaráætlanir landshluta verða þróaðar áfram sem far­vegur fyrir stuðning við svæði sem standa frammi fyrir lýð­fræðilegum og efnahagslegum áskorunum og fyrir þátttöku heimafólks í ráðstöfun opinberra fjármuna.InnviðaráðuneytiInnan ramma
Unnið með tilgreindum byggðarlögum að því að sporna við viðvarandi fólksfækkun, m.a. í gegnum verkefnið Brot­hætt­ar byggðir.Innviðaráðuneyti, ByggðastofnunInnan ramma
Efla þekkingu og getu innan sveitarfélaga til að skima fyrir áhættu vegna áhrifa loftslagsbreytinga og móta áætlanir og aðgerðir til aðlögunar.2Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, ByggðastofnunInnan ramma
  1. Verkefnið styður við málaflokk 24.30 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun, Heilbrigðisstefnu, stefnu fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2031, og málaflokk 21.30 Stuðningur við námsmenn, Menntastefnu til ársins 2031.
  2. Verkefnið styður við stefnu um aðlögun að loftslagsbreytingum, landsskipulagsstefnu og tillögur um landsáætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 1.916 m.kr. og lækkar um 1.151,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 6,1 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 400 m.kr. vegna tímabundins framlags til að styrkja verkefnið um sóknaráætlanir landshluta sem falla niður, þ.e. 120 m.kr. sem komu til móts við niðurfellingu fjárheimildar og 280 m.kr. sem var ætlað að breyta verklagi varðandi einstaka styrkveitingar fjárlaganefndar.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 35 m.kr. vegna tímabundinna verkefna undir atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni sem falla niður.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 23,5 m.kr., um 1% frá gildandi fjárlögum.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 692 m.kr. vegna niðurlagningar framkvæmda­nefndar um málefni Grindavíkur