09 Almanna- og réttaröryggi
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra og forsætisráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðun breytinga á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum. Nánar er fjallað um breytingarnar í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 09 Almanna- og réttaröryggi árið 2027 eru áætluð 52.495,5 m.kr. og lækka um 133,9 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 0,3%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.190,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 4,4%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum, lækkunar á varasjóðum málaflokka og fækkunar stöðugilda hjá ríkinu. Málefnasviðið er undanþegið almennri aðhaldskröfu.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er lýst í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
09.10 Löggæsla
Starfsemi málaflokksins er í höndum ríkislögreglustjóra og níu lögregluembætta. Undir málaflokkinn falla auk almennrar löggæslu, m.a. landamæraeftirlit, menntun lögreglumanna, almannavarnir og leit og björgun á landi.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Aukið traust og ánægja með störf lögreglunnar | ||
| Mótun viðmiða um málshraða og gæði rannsókna í forgangsmálaflokkum. | Stofnanir réttarvörslukerfisins | Innan ramma |
| Efling afbrotavarna og samfélagslöggæslu og átak gegn endurteknum brotum. | Embætti lögreglu | Innan ramma |
| Mótun verklagsreglna og leiðbeininga um bætt upplýsingasamskipti lögreglu við aðrar stofnanir. | Embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu | Innan ramma |
| Markmið 2: Bætt þjónusta lögreglunnar | ||
| Breytingar á skipulagi lögregluembætta með öflugri og stærri embættum og aukinni sérhæfingu. | Dómsmálaráðuneyti og embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu | Innan ramma |
| Mótun stefnu og áætlun um húsnæði og tæknibúnað lögreglu | Dómsmálaráðuneyti og embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu | Innan ramma |
| Aukin notkun tækni við löggæslu s.s. stafræn málsmeðferð og snjalllausnir. | Embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu | Innan ramma |
| Markmið 3: Almenningur upplifi sig öruggari í samfélaginu | ||
| Áframhaldandi innleiðing nýrra landamærakerfa og skoðun á fækkun landamærastöðva. | Embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu, Landhelgisgæsla Íslands, Skatturinn o.fl. | Innan ramma |
| Innleiðing landsáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi. | Embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu | Innan ramma |
| Innleiðing á rafrænu eftirliti með nálgunarbanni og brottvísun af heimili. | Embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu | Innan ramma |
| Endurskoðun laga um öryggisþjónustur. | Dómsmálaráðuneyti og embætti ríkislögreglustjóra og lögreglu | Innan ramma |
| Lögfesting nýrra heildarlaga um almannavarnir og eflingu áfallaþols. | Dómsmálaráðuneyti | Innan ramma |
| Uppbygging brottfararstöðvar. | Embætti lögreglu | Innan ramma |
| Aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi – efling samstarfs og breytingar á lögum, m.a. öflugri lagaumgjörð varðandi upptöku fjárhagslegs ágóða af brotum og koma á miðlægri einingu um endurheimt ávinnings. | Héraðssaksóknari | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 30.448,1 m.kr. og lækkar um 495,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.527,6 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 200 m.kr. vegna fjölgunar lögreglumanna. Kemur það til viðbótar framlagi að fjárhæð 1.250 m.kr. í fjárlögum 2026.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið um 150 m.kr. vegna aðgerða til að vinna á móti ofbeldi barna gegn börnum.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 120 m.kr. vegna reksturs og innleiðingar landamærakerfa samkvæmt skuldbindingum Schengen-samstarfsins.
- Tímabundin fjárheimild að fjárhæð 598 m.kr. vegna samfélagslöggæslu, fellur niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldsráðstöfunum, 367,1 m.kr., er deilt niður á verkefni og stofnanir málaflokksins.
09.20 Landhelgi
Starfsemi málaflokksins er í höndum Landhelgisgæslu Íslands.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Aukin viðbragðs og björgunargeta. | ||
| Móta fjárfestingaáætlun til næstu 30 ára sbr. aðgerð í Landhelgisgæsluáætlun 2026-2030 | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Vaktir í flugskýli verði tryggðar til framtíðar | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Útkallsbílar til forgangsaksturs fyrir þyrluáhafnir | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Markmið 2: : Bætt eftirlit og öryggi | ||
| Aukin greining gagna, m.a. með gervigreind | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Skilgreind þróunarverkefni á sviði ómannaðra eftirlitstækja | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Aukin nýting séraðgerðabáta í landamæraeftirlit og skyndiskoðanir | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Markmið 3: Viðhalda trausti til Landhelgisgæslunnar | ||
| Komið verði á fót ferli fyrir reglubundið mat á viðbragðs- og björgunargetu, þar sem framgangur aðgerða, nýting tækjakosts og þróun áhættumats eru metin | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Viðhalda öflugri upplýsingamiðlun til hagaðila | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
| Formfesting og endurskoðun samstarfsramma við innlenda samstarfsaðila | Landhelgisgæslan | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 8.887,6 m.kr. og lækkar um 897,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 456,2 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 665 m.kr. vegna niðurfellingar tímabundins framlags sem veitt var til tveggja ára.
- Hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum, 212,8 m.kr. er á verkefni og stofnanir málaflokksins.
09.30 Ákæruvald og réttarvarsla
Starfsemi málaflokksins er í höndum embættis ríkissaksóknara og embættis héraðssaksóknara, ríkislögmanns og lögreglustjóraembættanna hvað varðar meðferð ákæruvalds.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Réttlát og örugg málsmeðferð | ||
| Þróun á réttarvörslugátt þar sem áherslan er á koma á aðgengi að gögnum og upplýsingum um stöðu mála fyrir aðila máls. | Dómsmálaráðuneyti og stofnanir réttarvörslukerfisins | Innan ramma |
| Frágangur sektargerða í gegnum stafræna pósthólfið/Ísland.is | Dómsmálaráðuneyti og stofnanir réttarvörslukerfisins | Innan ramma |
| Markmið 2: Aukin skilvirkni og gæði | ||
| Aukið rafrænt gagnaflæði við birtingar ákæra í gegnum réttarvörslugáttina. | Dómsmálaráðuneyti og stofnanir réttarvörslukerfisins | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.667,1 m.kr. og lækkar um 8,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 132,2 m.kr. Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins ráðast af aðhaldsráðstöfunum að fjárhæð 8,5 m.kr. sem deilt er niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
09.40 Réttaraðstoð og bætur
Til málaflokksins heyrir fjárhagslegur stuðningur ríkisins við þá sem leita þurfa réttar síns fyrir dómstólum en hafa ekki til þess fjárhagslegt bolmagn, greiðslur til brotaþola vegna líkamstjóns og miska sem leiðir af broti á almennum hegningarlögum og greiðsla kostnaðar sem embætti lögreglustjóra, héraðsdómstólar og embætti ríkissaksóknara greiða öðrum en starfsmönnum viðkomandi embætta vegna rannsóknar og reksturs opinberra mála.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.765,2 m.kr. og eru óbreyttar frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 39 m.kr.
09.50 Fullnustumál
Starfsemi málaflokksins er í höndum Fangelsismálastofnunar. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Örugg fangelsi og virk varnaðaráhrif | ||
| Bygging nýs fangelsis að Stóra-Hrauni. | Dómsmálaráðuneyti og Framkvæmdasýsla ríkisins | 1.300 m.kr |
| Þarfagreining á tæknimálum Fangelsismálastofnunar | Fangelsismálastofnun | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 7.727,5 m.kr. og hækkar um 1.267,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 169,2 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið um 3.300 m.kr. vegna fyrirhugaðra framkvæmda vegna byggingar nýs fangelsis að Stóra-Hrauni. Á móti lækkar fjárheimild málaflokksins tímabundið um 2.000 m.kr. vegna hliðrunar á framkvæmdum vegna byggingar nýs fangelsis að Stóra-Hrauni í samræmi við uppfærða tímalínu verkefnisins.
- Hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum, 32,5 m.kr., er deilt niður á verkefni og stofnanir málaflokksins.
Fjárlög fyrir árið 2027