17 Umhverfismál

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 17 Umhverfismál árið 2027 eru áætluð 38.602,9 m.kr. og lækka um 961,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 2,4%. Launa- og verðlagsbreytingar ársins nema 777,1 m.kr. en að þeim meðtöldum nemur lækkun ársins 0,5%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Samkvæmt áherslum ríkisstjórnarinnar er auknum fjármunum forgangsraðað í þágu markvissrar uppbyggingar varnarmannvirkja gegn ofanflóðum. Samhliða verður hættumatsvinnu flýtt vegna eldgosa, vatns- og sjávarflóða sem og kortlagningu skriðuhættu í óstöðugum hlíðum. Markmiðið er að auka öryggi, bæta viðbúnað og auka aðlögunarhæfni til að bregðast við vaxandi hættu á náttúruvá, m.a. vegna loftslagsbreytinga. Vegna þess aukast fjárheimildir um 300 m.kr. Einnig er fjármunum forgangsraðað innan núverandi fjárheimilda til að leggja áherslu á aðgerðir sem hafa margþættan umhverfislegan ávinning, þar á meðal aukin verndun hafsvæða og endurheimt vistkerfa, til þess að vinna samtímis að líffræðilegri fjölbreytni, árangri í loftslagsmálum og náttúruvernd. Enn fremur er lögð áhersla á að efla hollustuháttamál m.t.t. einföldunar, samræmingar og betri þjónustu.

Almenn aðhaldskrafa og aðrar sértækar aðhaldsráðstafanir á árinu nema alls 501,6 m.kr. fyrir málefnasviðið í heild.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla

Starfsemi málaflokksins er í höndum Náttúruverndarstofnunar, Lands og skógar, sem og Þjóðgarðsins á Þingvöllum (sem fellur undir viðfangsefni forsætisráðuneytis). Helstu verkefni sem falla undir málaflokkinn eru: umsjón og rekstur náttúruverndarsvæða, verndun líffræðilegrar fjölbreytni, innviðauppbygging og landvarsla, gróður- og jarðvegsvernd, stöðvun eyðingar jarðvegs og gróðurs, eftirlit með nýtingu lands, endurheimt raskaðra vistkerfa, þ.m.t. birkiskóga og mýrlendis, og uppbygging og sjálfbær nýting skógarauðlindar. Um verkefni innan málaflokksins gilda einkum lög um náttúruvernd, lög um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, lög um landgræðslu og lög um skóga og skógrækt.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Að bæta ástand áfangastaða innan náttúruverndarsvæða
Stuðningur við uppbyggingu innviða á ferða­mannastöðum í samræmi við landsáætlun um innviði til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Reglubundið mat á ástandi skilgreindra áfanga­staða innan náttúruverndarsvæða.Náttúruverndarstofnun, Þjóðgarðurinn á ÞingvöllumInnan ramma
Markmið 2: Að auka árlegt umfang uppgræðslu og endurheimtar vistkerfa og nýskógræktar
Endurheimt vistkerfa á ríkisjörðum.1Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Innleiðing reglugerðar nr. 670/2025 um sjálfbæra landnýtingu.Land og skógurInnan ramma
Rannsóknir á samspili landnotkunar og loftslagsmála.Land og skógurInnan ramma
Þróun stuðnings við verndun og endurheimt vistkerfa og nýskógrækt.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Skilgreining svæða með virka endurheimt í skilningi Samnings SÞ um líffræðilega fjölbreytni.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

 

Innan ramma
Markmið 3: Að efla náttúruvernd með friðlýsingu náttúruverndarsvæða2
Kortlagning óbyggðra víðerna skv. reglugerð.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Innleiðing stefnu og aðgerðaráætlun um verndun líffræðilegrar fjölbreytni.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Friðlýsingar á grunni náttúruminjaskrár og í samstarfi við umsjónaraðila lands.NáttúruverndarstofnunInnan ramma
Vinnsla stjórnunar- og verndaráætlana fyrir friðlýst svæði.NáttúruverndarstofnunInnan ramma
Markmið 4: Að auka þekju verndarsvæða í skilningi Samnings SÞ um líffræðilega fjölbreytni
Greining á því hvaða landsvæði teljast verndarsvæði í skilningi samnings SÞ um líffræðilega fjölbreytni.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Greining á því hvaða hafsvæði ættu að njóta verndar eða vera undir annarri virkri svæðisvernd.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Friðlýsing eða önnur verndun svæða.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Efling rannsókna á vistkerfum hafs og vatna.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
  1. Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 í málaflokki 17.5 um að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
  2. Markmiðið heyrði áður undir málflokki 17.50.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 samkvæmt fjárlögum er 8.524,6 m.kr. og hækkar um 702,9 m.kr. milli ára.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Hækkun á sértekjuáætlun Náttúruverndarstofnunar um 319,0 m.kr.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 228,8 m.kr. vegna tímabundinna verkefna og vegur þar þyngst náttúrumiðaðar lausnir í einkalöndum og styrking átaks til endurheimtar á ríkisjörðum.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 335.0 m.kr.
  4. Hækkun vegna launa- og verðlagsbreytingar er 276,2 m.kr.

17.20 Rannsóknir og vöktun á náttúru Íslands

Starfsemi málaflokksins er í höndum Náttúrufræðistofnunar og Veðurstofu Íslands. Helstu verkefni sem falla undir málaflokkinn eru vöktun og grunnrannsóknir á öllum þáttum þeirra málefnasviða er ráðuneytinu tilheyra og mynda grundvöll fyrir góða og upplýsta ákvarðanatöku, s.s. vöktun náttúru og líffræðilegra þátta, auðlinda (þ.m.t. orkuauðlinda), náttúruvár, áhrifa loftslagsbreytinga, landnýtingar og umhverfisþátta. Enn fremur miðlun og hagnýting rannsókna. Um verkefni innan málaflokksins gilda einkum lög um náttúruvernd, lög um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur, lög um um verndun Mývatns og Laxár,  lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, lög um loftslagsmál, lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar og lög um Veðurstofu Íslands.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Að efla vöktunarkerfi vegna náttúruvár
Átak í gerð áhættu- og hættumats.Veðurstofa ÍslandsInnan ramma
Bætt vöktun náttúruvár með áreiðanlegri og lengri viðvörunartíma og bættu rekstraröryggi vöktunarkerfa.Veðurstofa ÍslandsInnan ramma
Styrking reksturs og efling mælakerfis fyrir veður, vatn og jörð.Veðurstofa ÍslandsInnan ramma
Endurnýjun og uppbygging veðursjárkerfis.Veðurstofa ÍslandsInnan ramma
Uppbygging upplýsingatækni og netöryggisinnviða.Veðurstofa ÍslandsInnan ramma
Markmið 2: Að efla rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga
Rannsóknir, vöktun og miðlun á loftslagsbreytingum og þeim afleiðingum sem þær kunna að valda.Veðurstofa ÍslandsInnan ramma
Rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á súrnun sjávar.1Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Kortlagning á skriðum.NáttúrufræðistofnunInnan ramma
  1. Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 í málaflokki 17.5 um að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og er jafnframt fjármagnað af þeim lið.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 6.854,6 m.kr. og hækkar um 805,0 m.kr. frá gildandi fjárlögum.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. 100 m.kr. vegna átaks í gerð áhættu- og hættumats vegna eldgosa á Reykjanesi fellur niður.
  2. 450 m.kr hækkun vegna hættumats, vöktunar og rýmingaráætlunar vegna ofan-, vatns-  og sjávarflóða.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 146.0 m.kr.
  4. Hækkun vegna launa- og verðlagsbreytingar er 278,2 m.kr.

17.30 Meðhöndlun úrgangs

Helsta verkefni málaflokksins er að draga úr sóun með því að koma í veg fyrir myndun úrgangs og auka endurnotkun, stuðla að bættri meðhöndlun úrgangs með endurvinnslu og annarri endurnýtingu og stuðla þannig að sem minnstri förgun, í anda hringrásarhagkerfis. Eftirtaldir aðilar falla undir málaflokkinn: Úrvinnslusjóður og Endurvinnslan hf.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Að auka endurvinnslu heimilisúrgangs 
Framkvæmd aðgerða á grundvelli stefnunnar „Í átt að hringrásarhagkerfi, stefna í úrgangsmálum 2021–2032“.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti o.fl.Innan ramma
Framkvæmd aðgerða á grundvelli úrgangsforvarnastefnunnar ,,Saman gegn sóun“.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Umhverfis- og orkustofnun o.fl.Innan ramma
Framkvæmd aðgerða á grundvelli aðgerðaáætlunar í plastmálefnum frá árinu 2020.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti o.fl.Innan ramma
Framkvæmd aðgerða gegn matarsóun á grundvelli aðgerðaáætlunar gegn matarsóun frá árinu 2021.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Umhverfis- og orkustofnun o.fl.Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 samkvæmt fjárlögum er 12.039,1 m.kr. og hækkar um 464,0 m.kr. frá gildandi fjárlögum.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins vegna Endurvinnslunnar hækkar um 351,9 m.kr. Byggt er á áætlun um magnaukningu og hækkun á skila- og umsýslugjaldi.
  2. Fjárheimild málaflokksins vegna Úrvinnslusjóðs er aukin um 112 m.kr. vegna áætlunar um magnaukningu og hækkun á úrvinnslugjaldi. Úrvinnslugjald ársins getur enn tekið breytingum.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 0 m.kr.
  4. Hækkun vegna launa- og verðlagsbreytingar er 2,0 m.kr. m.kr.

17.40 Varnir gegn náttúruvá

Helstu verkefni sem falla undir málaflokkinn eru gerð hættumats vegna ofanflóða, eldgosa, vatns- og sjávarflóða, frumathugun og hönnun varnarmannvirkja, uppbygging, viðhald og vöktun varnarmannvirkja.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Að tryggja fullnægjandi öryggi fyrir íbúa landsins gegn ofanflóðum
Uppbyggingu snjóflóðavarnargarða undir Gilsbakkagili og Milligiljum á Bíldudal, undir Nes- og Bakkagiljum í Neskaupstað, undir Bjólfi á Seyðisfirði og á Flateyri undir Innra-Bæjargili og Skollahvilft. Endurgerð upptaka stoðvirkja í Drangagili í Neskaupstað. Fyrsti áfangi skriðuvarna undir Botnum á Seyðisfirði.Ofanflóðasjóður300 m.kr.
Viðhald og efling mannvirkja  Fáskrúðsfirði, Ísafirði og í Neskaupstað.OfanflóðasjóðurInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 samkvæmt fjárlögum er 4.862,5 m.kr. og lækkar um 161,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins eykst tímabundið um 300 m.kr. Um er að ræða tilfærslu fjárheimilda frá 2029 til 2027 til að flýta framkvæmd á uppbyggingu snjóflóðavarna undir Nes- og Bakkagiljum í Neskaupstað.
  2. Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar var fjárheimild málaflokksins aukin ótímabundið um 250 m.kr. árið  2026 til að hraða uppbyggingu varnarvirkja vegna ofanflóða, sbr. markmið nr. 1. Um var að ræða fyrsta áfanga á lengri vegferð en samkvæmt fjármálaáætlun 2027–2031 er gert ráð fyrir að auka enn frekar við þessar fjárheimildir þannig að þær hafi aukist um 1 ma.kr. árlega undir lok gildistíma áætlunarinnar.
  3. 450 m.kr. er millifærðar á Veðurstofu Íslands vegna hættumats, vöktunar og rýmingaráætlana vegna ofan-, vatns-  og sjávarflóða.
  4. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 0 m.kr.
  5. Hækkun vegna launa- og verðlagsbreytingar er 13 m.kr.

17.50 Stjórnsýsla umhverfismála

Helstu verkefni sem falla undir málaflokkinn eru loftslagsmál, stjórnsýsla umhverfis- og orkumála, að tryggja heilnæmt umhverfi og öruggar neysluvörur og mat á umhverfisáhrifum, miðlun upplýsinga til almennings, þátttökuréttindi almennings og að tryggja réttláta málsmeðferð, stjórn vatnamála og fráveitumál.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda í sam­ræmi við markmið Íslands í loftslagsmálum
Stefnumótun á sviði loftslagsmála, t.d. skilgreining á kolefnishlutleysi.Umhverfis-, orku- og lofts­lagsráðuneytiInnan ramma
 Stuðningur við orkuskipti og verkefni á sviði loftslagsmála.Loftslags- og orkusjóðurInnan ramma
Samtal við ESB um hert markmið í loftslags­málum og innleiðing regluverks því tengdu.Umhverfis-, orku- og lofts­lagsráðuneytiInnan ramma
Úrbætur á losunarbókhaldi fyrir landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt (LULUCF) með hliðsjón af reglum ESB og Loftslagssamningi SÞ.Umhverfis-, orku- og lofts­lagsráðuneyti,
Umhverfisstofnun, Land og skógur
Innan ramma
Innleiðing aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum og aðlögunaráætlun vegna áhrifa loftslagsbreytinga.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytiInnan ramma
Markmið 2: Að efla hreinsun fráveitu
Átak í fráveitumálum sveitarfélaga.Umhverfis-, orku- og lofts­lagsráðuneytiInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 samkvæmt fjárlögum er 7.098,4 m.kr. og lækkar um 1.995,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Útgjaldasvigrúm málaflokksins lækkar varanlega um 1.660 m.kr. vegna lækkunar á ráðstöfun losunarheimilda.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 532 m.kr. vegna fjármögnunar ýmissa tímabundinna verkefna á öðrum málaflokkum á sama málefnasviði.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 115,0 m.kr.
  4. Hækkun vegna launa- og verðlagsbreytingar er 206,5 m.kr.