10 Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 10 Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála árið 2027 eru áætluð 23.862,8 m.kr. og lækka um 1.106,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 4,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa almennra launa- og verðlagsbreytinga lækka útgjöldin um 143,7 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 0,6%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum, sameiningar stofnana, lækkunar á varasjóðum málaflokka, fækkunar stöðugilda hjá ríkinu og aðhalds á aðalskrifstofu ráðuneytisins. Almennt aðhald málefnasviðsins er útfært með hlutfallslegri skiptingu milli stofnana og verkefna.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
10.10 Persónuvernd
Starfsemi málaflokksins er í höndum Persónuverndar. Stofnunin annast eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, og laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi, nr. 75/2019.
Í töflunni hér á eftir má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Aukið gagnsæi og skilvirkni tryggja samræmda vernd einstaklinga á EES-svæðinu | ||
| Þátttaka í evrópsku samræmingarkerfi persónuverndarstofnana. | Persónuvernd | Innan ramma |
| Framkvæmd frumathugana, frumkvæðisathugana og úttekta. | Persónuvernd | Innan ramma |
| Vinnsla ítarlegs fræðsluefnis á vefsíðu Persónuverndar. | Persónuvernd | Innan ramma |
| Stytting málsmeðferðatíma með endurskoðun á ferlum. | Persónuvernd | Innan ramma |
| Markmið 2: Aukið traust almennings til vinnslu persónuupplýsinga | ||
| Áframhaldandi uppbygging á virku sambandi milli persónuverndarfulltrúa og Persónuverndar. | Persónuvernd | Innan ramma |
| Aukin og endurbætt miðlun á upplýsingum í gegnum heimasíðu í umhverfi Island.is. | Persónuvernd | Innan ramma |
| Fjölgun frumathugana á vinnslu persónuupplýsinga hjá fyrirtækjum og stjórnvöldum. | Persónuvernd | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 390,7 m.kr. og lækkar um 21,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 18,2 m.kr.
Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 21,3 m.kr.
10.20 Trúmál
Undir málaflokkinn falla útgjöld til Þjóðkirkjunnar, kirkjumálasjóðs og kirkjugarða. Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa rekið bálstofu í Fossvogi frá árinu 1948. Einnig fellur undir málaflokkinn úthlutun sóknargjalda til skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 10.337,6 m.kr. og hækkar um 55,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 403,1 m.kr.
Helstu breytingar á málaflokknum eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar varanlega um 200 m.kr. vegna aukins framlags til sóknargjalda. Með breytingunni er tryggður fyrirsjáanleiki og stöðugleiki um fjármögnun sóknargjalda.
- Fjárheimild er aukin um 28,5 m.kr. vegna hækkunar á framlagi til kirkjugarða.
- Tímabundin fjárheimild, 126,3 m.kr., vegna sóknargjalda fellur niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 46,6 m.kr.
10.30 Sýslumaður
Starfsemi málaflokksins er í höndum sýslumanns. Embættið mun starfa samkvæmt lögum nr. 9/2026, um sýslumann sem taka gildi 1. janúar 2027. Fer sýslumaður með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins eftir því sem lög, reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Við gildistöku laganna fækkar stofnunum málaflokksins úr níu í eina. Með sameiningunni skapast aukin tækifæri til að samræma þjónustu og bæta aðgengi að henni óháð búsetu, jafnframt því að efla starfsemi um land allt og standa vörð um þjónustu og störf á landsbyggðinni. Í töflunni hér á eftir má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Að þjónustan verði eins góð og völ er á | ||
| Aukið framboð stafrænnar þjónustu og lausna (lagabreytingar, umbætur starfskerfa o.fl.).** | Dómsmálaráðuneyti og sýslumaður | Innan ramma |
| Innleiðing þjónustuvers.** | Sýslumaður | Innan ramma |
| Stefnumótun fyrir nýtt embætti.** | Dómsmálaráðuneyti og sýslumaður | Innan ramma |
| Jafnt aðgengi að þjónustu óháð búsetu. | Sýslumaður | Innan ramma |
| Útgáfa stefna í mannauðsmálum nýs embættis (s.s. starfsmanna- og fræðslustefnur). | Sýslumaður | Innan ramma |
| Markmið 2: Að styðja við áherslur byggðamála | ||
| Aukið framboð opinberrar þjónustu á landsbyggðinni (ný verkefni).* | Dómsmálaráðuneyti og sýslumaður | Innan ramma |
| Flutningur sérhæfðra og óstaðbundinna starfa á landsbyggðina.** | Dómsmálaráðuneyti og sýslumaður | Innan ramma |
| Betri nýting húsnæðis, m.a. með auknu samstarfi á milli starfsstöðva og við sveitarfélög, aðrar stofnanir og haghafa.** | Dómsmálaráðuneyti og sýslumaður | Innan ramma |
| Markmið 3: Að hámarka nýtingu fjárheimilda | ||
| Úrbætur og efling innri stoða starfskerfa og nýting gervigreindar í starfseminni.* og *** | Sýslumaður | Innan ramma |
| Bætt aðgengi og nýting á þjónustuvef.* | Sýslumaður | Innan ramma |
| Endurskoðun verkefnaskiptingar í nýju embætti.* og *** | Dómsmálaráðuneyti og sýslumaður | Innan ramma |
| Stöðlun ferla stafrænna umbóta (aukin skilvirkni og betri nýting á innleiddum lausnum).* | Sýslumaður | Innan ramma |
* Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 í málaflokki 10.30 Sýslumaður.
** Verkefni styður jafnframt við markmið 3 í málaflokki 10.30 Sýslumaður.
*** Verkefni styður jafnframt við markmið 2 í málaflokki 10.30 Sýslumaður.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 4.232,5 m.kr. og lækkar um 206,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 197 m.kr.
Fjárheimild málaflokksins lækkar um 206,6 m.kr. vegna hlutdeildar hans í aðhaldskröfu málefnasviðsins.
10.40 Stjórnsýsla dómsmálaráðuneytis
Undir stjórnsýslu dómsmálaráðuneytisins fellur t.d. rekstur ráðuneytisins, Stjórnartíðindi og Schengen-landamærasjóður.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.654,2 m.kr. og lækkar um 198,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 98,7 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 75 m.kr. þar sem ekki er gert ráð fyrir kosningum á árinu 2027.
- Tímabundið 40 m.kr. framlag, sem fjárlaganefnd Alþingis veitti Afstöðu, félagi fanga, fellur niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 83,5 m.kr.
10.50 Útlendingamál
Starfsemi málaflokksins er í höndum Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála, ríkislögreglustjóra, dómsmálaráðuneytis, félags- og húsnæðismálaráðuneytis og Vinnumálastofnunar.
Í töflunni hér á eftir má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Skilvirk og hagkvæm stjórnsýsla | ||
| Breytingar á lögum um útlendinga með frumvarpi um innleiðingu reglugerðar ESB um endursendingar. | Dómsmálaráðuneyti, Útlendingastofnun og ríkislögreglustjóri | Innan ramma |
| Frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga sem felur í sér heildarendurskoðun á dvalarleyfakafla laganna. | Dómsmálaráðuneyti og Útlendingastofnun | Innan ramma |
| Áframhaldandi innleiðing á nýju upplýsingakerfi fyrir Útlendingastofnun. | Útlendingastofnun | Innan ramma |
| Áframhaldandi innleiðing á rafvæðingu umsókna um dvalarleyfi. | Útlendingastofnun | Innan ramma |
| Sameining starfsstöðva – skilvirkari og hagkvæmari nýting mannauðs. | Dómsmálaráðuneyti og Útlendingastofnun | Innan ramma
|
| Markmið 2: Bætt aðgengi að upplýsingum | ||
| Umsækjendur hafi aðgengi að upplýsingum um stöðu mála sinna í gegnum nýtt upplýsingakerfi. | Útlendingastofnun | Innan ramma |
| Betra aðgengi að tölfræði á vef stofnunarinnar. | Útlendingastofnun | Innan ramma |
| Áframhaldandi innleiðing stafræns pósthólfs. | Útlendingastofnun | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 6.247,8 m.kr. og lækkar um 735,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 246 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.700 m.kr. vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Á móti fellur niður tímabundin fjárheimild að fjárhæð 1.000 m.kr. sem veitt var í fjárlögum 2026.
- Tímabundin fjárheimild málaflokksins að fjárhæð 700 m.kr. vegna málsmeðferðar umsækjenda um alþjóðlega vernd fellur niður.
- Tímabundin fjárheimild málaflokksins að fjárhæð 100 m.kr. vegna átaks í útgáfu mála á leyfasviði Útlendingastofnunar fellur niður.
- Tímabundin fjárheimild, 75 m.kr., vegna flutnings verkefna frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, fellur niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins er 560,9 m.kr. og er útfært með hlutfallslega skiptingu niður á stofnanir og verkefni málaflokks.
Fjárlög fyrir árið 2027