12 Landbúnaður
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 12 Landbúnaður árið 2027 eru áætluð 28.063,8 m.kr. og hækka um 1.166,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 4,5%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.150,5 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 8,3%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Útfærsla aðhaldskröfu á málefnasviðinu felur bæði í sér sértækar og almennar ráðstafanir, auk þess sem unnið er að verkefnum hjá ráðuneytinu sem stuðla eiga að aukinni skilvirkni og bættri nýtingu opinbers fjár.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
12.10 Stjórnun landbúnaðarmála
Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytisins. Helstu verkefni sem falla undir málaflokkinn eru stjórnun landbúnaðarmála og framkvæmd búvörusamninga, stjórnsýsla Matvælastofnunar, nýting auðlinda lands og vöktun og eftirlit stjórnvalda. Matvælastofnun sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum, eftirliti, fræðslu og þjónustu við landbúnað, sjávarútveg, fiskeldi, fyrirtæki og neytendur í þeim tilgangi að stuðla að heilbrigði og velferð dýra, heilbrigði plantna og öryggi, heilnæmi og gæðum matvæla. Búvörusamningar móta að miklu leyti regluverk og stuðningsaðgerðir stjórnvalda í þágu landbúnaðar og hafa þar með talsverð áhrif á starfsskilyrði greinarinnar. Undir málaflokkinn falla m.a. búvörulög, nr. 99/1993, og búnaðarlög, nr. 70/1998. Í gildi eru matvælastefna og landbúnaðarstefna til ársins 2040. Samið hefur verið um framlengingu búvörusamninga óbreyttra út árið 2027. Lög vegna þess koma til afgreiðslu Alþingis á haustþingi 2026. Stofnun atvinnuveganna tekur við skyldum Matvælastofnunar þann 1. janúar 2027, sbr. lög nr. 85/2026.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Efla fæðuöryggi og standa vörð um heilbrigði plantna og dýra, velferð dýra og öryggi matvæla | ||
| Efling kornræktar til aukningar á innlendri framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis. Unnið verður að aðgerðum skv. aðgerðaáætluninni Bleikir akrar.1 Á meðal aðgerða eru fjárfestingastuðningur, framleiðslustuðningur og þróunarverkefni. | Atvinnuvegaráðuneyti | 82,6 m.kr. |
| Innleiðing verndandi arfgerða gegn riðuveiki í íslenska sauðfjárstofninum. | Atvinnuvegaráðuneyti | -30 m.kr. |
| Heildstæð stefnumótun um dýralækna og heilbrigði dýra ásamt endurskoðun viðeigandi laga. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Útboð og útfærsla á söfnunarkerfi dýraleifa.2 | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Efling eftirlits með lagareldi með fjölgun stöðugilda og hugbúnaðar- og tækjakaupum.3 | Stofnun atvinnuveganna6 | Innan ramma |
| Markmið 2: Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna landbúnaðar og auka bindingu | ||
| Efling rannsókna og bætt þekking á loftslagsáhrifum íslensks landbúnaðar í samræmi við alþjóðlegar gæðakröfur um losunarbókhald.4 | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Innleiðing aðgerða í landbúnaði skv. aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.5 | Atvinnuvegaráðuneyti | -40 m.kr. |
| Markmið 3: Skapa skilyrði til fjölbreyttari landbúnaðarframleiðslu með sjálfbærni og verðmætasköpun að leiðarljósi | ||
| Heildarendurskoðun á stuðningskerfi í landbúnaði. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
1. Á árinu 2027 er gert ráð fyrir 460,6 m.kr. framlagi til verkefnisins sem hækkar um 82,6 m. kr. frá fjárlögum 2026 að teknu tilliti til 17,4 m.kr. aðhaldsráðstöfunar.
2 . Að öllu óbreyttu verður útboð klárað fyrir lok árs 2026 og mun þá liggja fyrir nánari útfærsla verkefnisins.
3. Verkefnið styður við markmið 2 á málefnasviði 13.
4. Í gildi er samningur atvinnuvegaráðuneytisins og Landbúnaðarháskóla Íslands um rannsóknir, þróunarvinnu og sérhæfða ráðgjöf á sviði landbúnaðar- og matvælaframleiðslu. Fjárheimild samningsins er vistuð á málefnasviði 21.
5. Á árinu 2027 er gert ráð fyrir 87 m.kr. framlagi til verkefnisins að teknu tilliti til 40 m.kr. aðhaldsráðstöfunar.
5. Stofnun atvinnuveganna tekur til starfa 1. janúar 2027 við sameiningu MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Stofnunin verður vistuð á málefnasviði 12 en sinnir einnig verkefnum sem fjallað er um í umfjöllun um málefnasvið 13.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 25.706,9 m.kr. og hækkar um 1,236,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 894,2 m.kr.
Rekstrarframlög hækka um 1.276,1 m.kr. að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum sem skýrist fyrst og fremst af millifærslu fjárheimilda af málefnasviði 13 í tengslum við nýja Stofnun atvinnuveganna. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.282,7 m.kr. vegna millifærslu fjárheimilda af málefnasviði 13 yfir á málefnasvið 12 í tengslum við nýja Stofnun atvinnuveganna. Hin nýja stofnun tekur til starfa 1. janúar 2027 með sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Samhliða gildistöku laga um nýja Stofnun atvinnuveganna er mikilvægt að tekið verði tillit til uppsafnaðrar stöðu eldri fjárlagaliða, sem eftir atvikum gæti þurft að bregðast við í fjárauka þessa árs.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 125 m.kr. í samræmi við uppfærða tekjuáætlun Matvælastofnunar.
- Gert er ráð fyrir 30 m.kr. lækkun á framlagi á árinu 2027 til að mæta kostnaði við arfgerðargreiningu til hraðrar innleiðingar verndandi aðgerða í íslenska sauðfjárstofninn. Verður framlag til verkefnisins þá 147,5 m.kr. á árinu 2027. Verkefnið er í samræmi við markmið 1 í málaflokki 12.10
- Fjárheimild málaflokksins er óbreytt að raungildi í samræmi við ákvæði samninga um starfsskilyrði í nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju og rammasamnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins. Á móti er gert ráð fyrir samtals 830,8 m.kr. hækkun til fyrrgreindra búvörusamninga í samræmi við verðlagsforsendur frumvarpsins.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 140,9 m.kr.
12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum
Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytisins. Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum varða aðgerðir stjórnvalda til að stuðla að sjálfbærri hagnýtingu auðlinda, þróun nýrra afurða og aukinni verðmætasköpun matvælaframleiðslu.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 876,3 m.kr. og lækkar um 28,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 22,6 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 100 m.kr. til aðgerða sem eiga að stuðla að aukinni innlendri framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis. Á móti þeirri hækkun kemur sértæk 17,4 m.kr. lækkun vegna aðhaldsráðstafana. Framlög til verkefnisins eru vistuð undir málaflokki 12.1 og þarf að flytja fyrrgreint framlag þangað við 2. umræðu frumvarpsins.
- Tímabundið 100 m.kr. framlag til Matís fellur niður sem skilyrt var sem mótframlag við styrki úr erlendum samkeppnissjóðum.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 28,7 m.kr.
12.60 Stjórnsýsla atvinnuvegaráðuneytisins
Undir málaflokkinn heyrir stjórnsýsla atvinnuvegaráðuneytisins. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 1.480,6 m.kr. og lækkar um 41,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 67,2 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 20,6 m.kr. vegna millifærslu er nemur einu stöðugildi yfir til innviðaráðuneytisins í tengslum við flutning verkefna á sviði strandveiða.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 21 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2027