13 Sjávarútvegur og fiskeldi
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 13 Sjávarútvegur og fiskeldi árið 2027 eru áætluð 7.865,7 m.kr. og lækka um 1.431,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 16%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 1.098,4 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 12,2%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Útfærsla aðhaldskröfu á málefnasviðinu felur bæði í sér sértækar og almennar ráðstafanir, auk þess sem unnið er að verkefnum hjá ráðuneytinu sem stuðla eiga að aukinni skilvirkni og bættri nýtingu opinbers fjár.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
13.10 Stjórnsýsla fiskveiða og fiskeldis
Undir málaflokkinn heyrir rekstur Fiskræktarsjóðs, Umhverfissjóðs sjókvíaeldis, Fiskeldissjóðs og alþjóðlegt samstarf í sjávarútvegi. Þá má nefna að Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs, sem áður heyrðu undir þennan málaflokk, sameinast ásamt Matvælastofnun inn í nýja Stofnun atvinnuveganna frá 1. janúar 2027 og mun nýja stofnunin heyra undir málefnasvið 12, Landbúnað. Málefni Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs munu þó áfram heyra undir stjórnsýslu fiskveiða og fiskeldis ásamt verkefnum Matvælastofnunar á sviði fiskeldis.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Bæta skilyrði sjávarútvegs til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi | ||
| Efling hafrannsókna og bætt stjórnsýsla hafrannsókna. | Atvinnuvegaráðuneyti og Hafrannsóknastofnun | Innan ramma1 |
| Efling fiskveiðieftirlits með aukinni tæknivæðingu og bættu aðgengi að rafrænum útflutningsgögnum. | Stofnun atvinnuveganna | Innan ramma2 |
| Skilgreining verndarsvæða í hafi á grunni rannsókna og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Bæta skilyrði fiskeldis til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi | ||
| Bæta lagaumgjörð fiskeldis. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Efling sjókvíaeldisbyggða. | Atvinnuvegaráðuneyti | 33 m.kr. |
| Efling ferskvatnsrannsókna og vöktun umhverfisáhrifa vegna sjókvíaeldis. | Hafrannsóknastofnun | Innan ramma |
- Hafrannsóknastofnun fékk 220 m.kr. ótímabundið framlag á síðasta ári vegna þessa verkefnis.
- Stofnun atvinnuveganna tekur til starfa 1. janúar 2027 við sameiningu MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Stofnunin verður vistuð á málefnasviði 12 og er fjárveiting vegna hennar því ekki til umfjöllunar í þessum kafla.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 918,9 m.kr. og lækkar um 1.301 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 2,1 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 1.282,7 m.kr. vegna millifærslu fjárheimilda af málefnasviði 13 yfir á málefnasvið 12 í tengslum við nýja Stofnun atvinnuveganna.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 33 m.kr. til eflingar Fiskeldissjóðs vegna aukinnar innheimtu gjalda samkvæmt lögum nr. 89/2019, um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Í lögunum er miðað við að 1/3 af gjaldinu fari til Fiskeldissjóðs, sbr. greinargerð með lögunum. Markmiðið með hækkun framlagsins er að stuðla að enn frekari uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Verkefnið er í samræmi við markmið 2 í málaflokki 13.10.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 52,2 m.kr.
13.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi og fiskeldi
Undir málaflokkinn falla verkefni Hafrannsóknastofnunar, Verkefnasjóðs sjávarútvegsins og framlög til ýmissa samninga og verkefna í sjávarútvegi og fiskeldi, s.s. vegna rannsókna, þróunar og nýsköpunar.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 6.946,8 m.kr. og lækkar um 130,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 331 m.kr.
Helstu breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins felast í breytingu á hagrænni skiptingu fjárveitingar Verkefnasjóðs sjávarútvegsins í þá veru að 400 m.kr. færast af fjármagnstilfærslum yfir á fjárfestingu. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins snúa að útfærslu aðhaldskröfu sem samtals nemur 130,5 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2027