14 Ferðaþjónusta
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra. Einn málaflokkur heyrir undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 14 Ferðaþjónusta árið 2027 eru áætluð 2.663,1 m.kr. og hækka um 149,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 180,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 7,2%. Fyrirhugað er að nýta uppsafnaðan afgang á safnlið ferðamála til eflingar markaðssetningar á Íslandi sem ferðamannastaðar með áherslu á dreifingu ferðamanna og jöfnun árstíðasveiflu, og eflingar rannsókna og gagnaöflunar á sviði ferðaþjónustu. Einnig stendur til að nýta uppsafnaðan afgang á fjárlagalið Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Útfærsla aðhaldskröfu á málefnasviðinu felur bæði í sér sértækar og almennar ráðstafanir, auk þess sem unnið er að verkefnum hjá ráðuneytinu sem stuðla eiga að aukinni skilvirkni og bættri nýtingu opinbers fjár.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
14.10 Ferðaþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytis, Ferðamálastofu, Flugþróunarsjóðs og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Unnið er að forgangsröðun verkefna í aðgerðaáætlun ferðamálastefnu til 2030 til að tryggja megi framkvæmd þeirra, auk verkefna á sviði ferðaþjónustu sem tengjast aðgerðaáætlun Atvinnustefnu Íslands 2026–2027.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Aukin verðmætasköpun | ||
| Einföldun á regluverki og stjórnsýslu í ferðaþjónustu. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Viðvarandi markaðssetning á Íslandi sem áfangastað ferðamanna. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Efling gagnaöflunar og rannsókna í ferðaþjónustu. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Lögfesting Flugþróunarsjóðs. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Jákvæðari upplifun heimamanna og ferðamanna | ||
| Efling Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til að stuðla að dreifingu ferðamanna og jafnari árstíðasveiflu. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Lagaumgjörð um ábyrgð, öryggi og aðgengi á ferðamannastöðum. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Endurskoðun á gæða- og umhverfisvottun fyrir ferðaþjónustu. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 3: Aukin umhverfisleg sjálfbærni í ferðaþjónustu | ||
| Þróun Jafnvægisáss ferðamála til að meta álag og þolmörk áfangastaða. | Atvinnuvegaráðuneyti | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.663,1 m.kr. og hækkar um 149,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 31,1 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Gert er ráð fyrir tímabundnu 330 m.kr. framlagi í eitt ár til að ráðast í átak um neytendamarkaðssetningu í þágu íslenskrar ferðaþjónustu sem Íslandsstofa mun bera ábyrgð á. Kostnaður við verkefnið er áætlaður um 630 m.kr. á árinu 2026 en þar af er gert ráð fyrir að ráðuneytið muni nýta 330 m.kr. af uppsöfnuðum afgangi á safnlið ferðamála til verkefnisins, sem myndast hefur þar sem innleiðing aðgerðaáætlunar um ferðamálastefnu hefur tafist. Er tillögu þessari ætlað að fjármagna þann hluta.
- Tímabundið 100 m.kr. framlag til Flugþróunarsjóðs fellur niður sem veitt var í fjárlögum 2026 til eins árs.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 127,1 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2027