15 Orkumál
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála. Einn málaflokkur heyrir undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 15 Orkumál samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2027 eru 8.785,0 m.kr. og lækka um 3.280,0 m.kr. á föstu verðlagi eða sem svarar til 27,5% lækkun. Launa- og verðlagsbreytingar ársins nema 119,9 m.kr. en að þeim meðtöldum nemur lækkun ársins 26,5%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
15.10 Stjórnun og þróun orkumála
Starfsemi málaflokksins er í höndum Umhverfis- og orkustofnunar sem heldur utan um verkefni Loftslags- og orkusjóðs og auk þess heyra niðurgreiðslur á húshitun og jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku undir málaflokkinn.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Tryggt orkuöryggi fyrir alla landsmenn | ||
| Aukið áfallaþol og úrræði Raforkueftirlitsins til að tryggja orkuöryggi. | Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið | Innan ramma |
| Greining og mótun fjármögnunar og fyrirkomulags öryggisbirgða jarðefnaeldsneytis. | Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið | Innan ramma |
| Aukin hagkvæmni í tengingu nýrra orkukosta auk flutnings- og dreifikerfisins. | Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið | Innan ramma |
| Framlagning og eftirfylgni orkuöflunaráætlunar. | Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið | Innan ramma |
| Einföldun leyfisferla til flýtingar uppbyggingar raforkuinnviða. | Umhverfis- og orkustofnun | Innan ramma |
| Treysta umgjörð heilbrigðs orkumarkaðar. | Umhverfis- og orkustofnun | Innan ramma |
| Átaksverkefni um leit og nýtingu jarðhita. | Loftslags- og orkusjóður | Innan ramma |
| Stuðningur við ýmis verkefni sem stuðla að bættri orkunýtni, s.s. ör- og smávirkjanir og orkusamfélög. | Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið / Loftslags- og orkusjóður | Innan ramma |
| Markmið 2: Aukið hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkubúskap landsins | ||
| Stuðningur við kaup á ökutækjum er ganga fyrir hreinni orku, loftslagsvænna almenningssamgangna og virkra ferðamáta og uppbyggingu innviða. | Loftslags- og orkusjóður | Innan ramma |
| Greining á stöðu innviða fyrir orkuskipti og uppfærð orkuskipta- og innviðaáætlun. Þar með taldir innviðir við ferðamannastaði, gististaði og þjóðvegi sem og innviði fyrir rafvæðingu þyngri ökutækja á völdum stöðum landsins. Ásamt greiningu á orkuskiptum í höfnum og rafvæðingu strandsiglinga. | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti | Innan ramma |
| Mótun stefnu og styrkjafyrirkomulags fyrir óhefðbundin eldsneyti. | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti | Innan ramma |
| Orkuskipti og aðgerðaáætlun loftslagsmála. | Loftslags- og orkusjóður | Innan ramma |
| Verkefni hringrásarhagkerfisins. | Loftslags- og orkusjóður | Innan ramma |
| Markmið 3: Jöfnun orkukostnaðar á landsvísu | ||
| Jöfnun á kostnaði við dreifingu raforku á landsbyggðinni. | Umhverfis- og orkustofnun | Innan ramma |
| Aukin neytendavernd og samkeppni á raforkumarkaði. Niðurgreiðslur hitun íbúðarhúsnæðis. | Umhverfis- og orkustofnun ofl. | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 samkvæmt fjárlögum er 8.785,0 m.kr. og lækkar um 3.160,1 m.kr. milli ára.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 3.200 m.kr. í samræmi við 1.200 m.kr. sértækrar aðhaldsráðstöfunar í fjármálaáætlun auk 2.000 m.kr. óskiptrar aðhaldsráðstöfunar á málefnasviðið sem útfærð er á sjóðinn í heild sinni. Samkvæmt núgildandi fjármálaáætlun hækkar útgjaldaheimild sjóðsins um 1.000 m.kr. að ári liðnu.
- Framlög til niðurgreiðslna á húshitun lækkar um 80 m.kr.
- Jöfnunargjald ársins getur enn tekið breytingum.
Fjárlög fyrir árið 2027