16 Markaðseftirlit og neytendamál

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahags­ráðherra. Tveir málaflokkar heyra undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármála­áætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mæla­borði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Heildargjöld málefnasviðs 16 Markaðseftirlit og neytendamál árið 2027 eru áætluð 4.873,3 m.kr. og lækka um 19,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 0,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 24,4 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 0,5%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

16.10 Markaðseftirlit og neytendamál

Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytis, Samkeppniseftirlitsins, Neytendastofu og Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Aukið gagnsæi, virkari samkeppni og heilbrigðari viðskiptahættir fjármála- og viðskiptalífs
Eftirfylgni aðgerðaáætlunar þings­ályktunar um stefnu í neytendamál­um til 2030.AtvinnuvegaráðuneytiInnan ramma.
Endurskoðun löggjafar til að efla neytendavernd og treysta umgjörð neytendamála.AtvinnuvegaráðuneytiInnan ramma
Sameining stofnana og verkefna á sviði viðskipta-, samkeppnis- og neytendamála.AtvinnuvegaráðuneytiInnan ramma
Áframhaldandi endurskoðun á reglu­verki á fjármálamarkaði og undir­búningur lagafrumvarps með ein­földun að markmiði.Fjármála- og efnahagsráðuneyti og Seðlabanki ÍslandsInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 4.635 m.kr. og lækkar um 7,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 43,4 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Gert er ráð fyrir að 50 m.kr. tímabundið framlag til Neytendasamtakanna falli niður sem veitt var til eins árs til stuðnings við leigjendaaðstoð.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 58,7 m.kr. í samræmi við rekstraráætlun Fjár­málaeftirlits Seðlabanka Íslands. Fjárveiting úr ríkissjóði er jafn há áætluðum tekjum af eftirlitsgjaldi til að standa undir rekstri Fjármálaeftirlitsins. Sjá nánari umfjöllun í frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 13,3 m.kr.

16.20 Stjórnsýsla atvinnumála og nýsköpunar

Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytis. Undir málaflokkinn fellur einn fjárlagaliður sem er ýmis verkefni og þar undir eru ýmis viðskipta- og bankamál um­svifamest.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 238,3 m.kr. og lækkar um 11,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 0,2 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins snúa að útfærslu aðhaldskröfu sem sam­tals nemur 11,5 m.kr.