18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð forsætisráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál árið 2027 eru áætluð 25.912,9 m.kr. og hækka um 740,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 3,0%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 1.446,1 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 5,9% hækkunar.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhald á málefnasviðinu birtist í einföldun, straumlínulögun og nýtingu tækifæra til samlegðar og sameiningar auk hagræðingar hjá hverri stofnun fyrir sig.
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
18.10 Safnamál
Starfsemi málaflokksins er í höndum ríkis og sveitarfélaga, sjálfseignarstofnana og annarra aðila.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Að almenningur hafi betri aðgang að menningar- og náttúruarfi þjóðarinnar | ||
| Aukinn stuðningur við að bæta aðgengi landsmanna að menningu og listum óháð búsetu og efnahag. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Unnið að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneyti | Innan ramma. |
| Ljúka við uppbyggingu nýs sýningarhúsnæðis fyrir Náttúruminjasafn. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Áfram unnið að framtíðarlausn húsnæðismála og reksturs Listasafns Íslands. Tekin verður ákvörðun um framtíðarstaðsetningu. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | 85 m.kr. |
| Unnið að sameiningu Landsbókasafns Íslands og Hljóðbókasafns Íslands og rekstrargrundvöllur styrktur | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
| 54 m.kr. |
| Aukin framlög til Þjóðskjalasafns Íslands til stuðnings lögbundnum verkefnum. Með aukinni hagræðingu hjá ríkinu og niðurlagningu stofnana hefur umfang verkefna stofnunarinnar aukist. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | 50 m.kr. |
| Markmið 2: Bæta vernd á menningararfi þjóðarinnar í samræmi við alþjóðlegar kröfur | ||
| Unnið að áætlun um vernd menningarminja vegna aðsteðjandi hættu; náttúruvár, stríðsástands o.fl. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Unnið að áætlun um uppbyggingu og endurnýjun varðveislurýma fyrir safnkost í ríkiseigu í tengslum við innleiðingu á viðbragðsáætlunum safna vegna loftslags- og náttúruvár. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Markmið 3: Efla rannsóknir og skráningu | ||
| Unnið skv. áætlun um forgangsröðun skráninga og stafvæðingar safnkosts og gagnaöflunar. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 6.820,1 m.kr. og hækkar um 321,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 271,1 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar er lagt til að auka framlag til safna um 189 m.kr. til að styðja við lögbundin verkefni.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málaflokksins nemur 93,6 m.kr. og er útfærð með hlutfallslegri skiptingu niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
18.20 Menningarstofnanir
Starfsemi málaflokksins nær yfir opinberar stofnanir á sviði lista og menningar, s.s. Þjóðleikhúsið, Óperuna, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslenska dansflokkinn, Kvikmyndamiðstöð Íslands og Minjastofnun Íslands.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Að almenningur hafi betri aðgang að menningar- og náttúruarfi þjóðarinnar | ||
| Aukinn stuðningur við að bæta aðgengi landsmanna að menningu og listum óháð búsetu og efnahag. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Unnið að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneyti | Innan ramma. |
| Ljúka við uppbyggingu nýs sýningarhúsnæðis fyrir Náttúruminjasafn. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Áfram unnið að framtíðarlausn húsnæðismála og reksturs Listasafns Íslands. Tekin verður ákvörðun um framtíðarstaðsetningu. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | 85 m.kr. |
| Unnið að sameiningu Landsbókasafns Íslands og Hljóðbókasafns Íslands og rekstrargrundvöllur styrktur | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
| 54 m.kr. |
| Aukin framlög til Þjóðskjalasafns Íslands til stuðnings lögbundnum verkefnum. Með aukinni hagræðingu hjá ríkinu og niðurlagningu stofnana hefur umfang verkefna stofnunarinnar aukist. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | 50 m.kr. |
| Markmið 2: Bæta vernd á menningararfi þjóðarinnar í samræmi við alþjóðlegar kröfur | ||
| Unnið að áætlun um vernd menningarminja vegna aðsteðjandi hættu; náttúruvár, stríðsástands o.fl. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Unnið að áætlun um uppbyggingu og endurnýjun varðveislurýma fyrir safnkost í ríkiseigu í tengslum við innleiðingu á viðbragðsáætlunum safna vegna loftslags- og náttúruvár. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Markmið 3: Efla rannsóknir og skráningu | ||
| Unnið skv. áætlun um forgangsröðun skráninga og stafvæðingar safnkosts og gagnaöflunar. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 8.996,7 m.kr. og lækkar um 274,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 339,3 m.kr.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helsta breyting á fjárheimildum málaflokksins er eftirtalin:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 50 m.kr. til að hefja framkvæmdir viðbyggingar við Þjóðleikhúsið.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málaflokksins nemur 143,1 m.kr. og er skipt niður á stofnanir og safnlið málaflokksins.
18.30 Menningarsjóðir
Starfsemi málaflokksins felst í fjárveitingum ríkisins sem er úthlutað í gegnum lögbundna sjóði. Undir málaflokkinn heyra m.a. launasjóðir listamanna og ýmsir sjóðir á sviði menningar og lista. Markmið málaflokksins eru að auðga nýsköpun í skapandi greinum, einfalda umhverfið, efla þjónustu og vinna að sameiningu þar sem við á. Í því felst m.a. að styrkja innlenda sköpun og stuðla að auknum útflutningi íslenskrar menningar og lista.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Bætt aðgengi að menningu og listum | ||
| Aukinn stuðningur við að bæta aðgengi landsmanna að menningu og listum óháð búsetu og efnahag. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Markmið 2: Efla stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls í samfélaginu | ||
| Efling íslensku með áherslu á börn og ungmenni. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | 150 m.kr. |
| Unnið skv. aðgerðaáætlunum í málefnum íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Unnið skv. áætlun stjórnvalda á sviði máltækni og gervigreindar en áherslur endurmetnar m.t.t. breytinga í starfsumhverfi, þar á meðal nýrrar miðstöðvar um gervigreind og máltækni og annarra breytinga á tækni eða regluverki. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Markmið 3: Hagnýting máltæknilausna fyrir almenning | ||
| Þróun íslensks risamállíkans og stækkun risamálheildar til að styðja við þróun og hagnýtingu gervigreindarlausna fyrir íslenskt samfélag. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Markmið 4: Tryggja tölfræði og kyngreind gögn um menningarsjóði | ||
| Skilgreining og birting lykiltalna um menningarstarf og skapandi greinar. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Unnið að samþættingu og skilvirkni sjóðakerfis lista, menningar og skapandi greina. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Áfram unnið að eftirfylgd fyrir núgildandi stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði listgreina. Innleiðing á bókmenntastefnu og sviðslistastefnu. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma. |
| Kortlagning og skráning strandminja í hættu. | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Minjastofnun Íslands | 55 m.kr. |
| Viðhald kirkjubygginga sem falla undir lög um menningarminjar. | Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti | 75 m.kr. |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 5.678,6 m.kr. og lækkar um 251,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 68,5 m.kr.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 650 m.kr. til verkefna í tengslum við máltækni og gervigreind. Lagt er til að 350 m.kr. af framlaginu verði varið til verkefna gervigreindar með millifærslu á málefnasvið 7 – Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar. Heildaráhrif á málaflokk 18.30 eru því 300 m.kr. aukning.
- Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 300 m.kr. til að auka framlag til menningarsjóða og listamannalauna.
- Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 150 m.kr. til eflingar íslenskunni.
- Tímabundin millifærsla 300 m.kr. fjárheimildar milli málefnasviða frá fjárlögum 2026 gengur til baka á málefnasvið 7 – Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 259,2 m.kr. og er útfærð með hlutfallslegri skiptingu niður á safnlið, stofnanir og verkefni málaflokksins.
18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál
Starfsemi í málaflokknum er að mestu leyti á hendi frjálsra félaga og félagasamtaka í samstarfi við ríki og sveitarfélög og veltur starfsemi þeirra að hluta til á sjálfboðastarfi en að mestu á ráðnu starfsfólki sem sinnir faglegu starfi. Meginmarkmið aðgerða ríkis og sveitarfélaga skv. íþróttalögum er að stuðla að því að allir landsmenn eigi þess kost að iðka íþróttir við sem hagstæðust skilyrði og tilgangur æskulýðslaga er að styðja börn og ungmenni til þátttöku í æskulýðsstarfi og skapa sem bestar aðstæður fyrir þau til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Vinna er hafin við gerð ungmennastefnu sem mun skapa sameiginlega sýn stjórnvalda á málefni ungs fólks. Ríki og sveitarfélög styðja starfsemi íþrótta- og æskulýðssamtaka með ýmsum hætti og vinna að því að skapa trausta umgjörð um starfsemina.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Efla umgjörð og stuðning við afreksíþróttafólk | ||
| Efla heildarumgjörð afreksíþrótta með áframhaldandi innleiðingu nýs fyrirkomulags afreksíþróttastarfs. | Mennta- og barnamálaráðuneyti, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands | Innan ramma. |
| Þróun samstarfsvettvangs gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum í samræmi við alþjóðasamning Evrópuráðsins. | Mennta- og barnamálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, ríkislögreglustjóri og hagsmunaaðilar | Innan ramma. |
| Markmið 2: Bæta umgjörð og auka gæði í skipulögðu æskulýðsstarfi | ||
| Fylgjast með þátttöku barna með annað móðurmál en íslensku í íþrótta- og æskulýðsstarfi og setja áherslur í samninga við íþrótta- og æskulýðssamtök og sjóði sem stuðla að aukinni þátttöku iðkenda í þessum hópi. | Mennta- og barnamálaráðuneyti, Menntavísindasvið HÍ og íþrótta- og æskulýðsfélög | Innan ramma. |
| Undirbúningur seinni aðgerðaáætlunar tómstunda- og félagsstarfs barna og ungmenna til 2031. | Mennta- og barnamálaráðuneyti, Æskulýðsráð, Samband íslenskra sveitarfélaga, umboðsmaður barna og hagaðilar | Innan ramma. |
| Unnið að gerð ungmennastefnu og endurskoðun æskulýðslaga. | Mennta- og barnamálaráðuneyti, Æskulýðsráð, Samband íslenskra sveitarfélaga, umboðsmaður barna og hagaðilar | Innan ramma. |
| Markmið 3: Bæta umgjörð og auka gæði í skipulögðu íþróttastarfi | ||
a. Unnið að framkvæmdum við Þjóðarhöll. b. Unnið að undirbúningi vegna þjóðarleikvangs í knattspyrnu. c. Unnið að undirbúningi vegna þjóðarleikvangs í frjálsíþróttum. | Mennta- og barnamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, forsætisráðuneyti, ÍSÍ og sérsambönd | Innan ramma. |
| Endurskoðun íþróttalaga | Mennta- og barnamálaráðuneyti | Innan ramma.
|
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 4.417,5 m.kr. og hækkar um 945,4 frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 26,7 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.184 m.kr. vegna framkvæmda við Þjóðarhöll.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 210 m.kr. vegna tímabundinna framlaga sem falla niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 28,6 m.kr. og lækkar fjárheimild málaflokksins sem því nemur. Skiptist aðhaldið niður á milli verkefna innan málaflokksins.
Fjárlög fyrir árið 2027