19 Fjölmiðlun

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Undir það heyrir einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjár­hagslega þróun málefnasviðsins á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Heildargjöld málefnasviðs 19 Fjölmiðlun árið 2027 eru áætluð 8.137,3 m.kr. og aukast um 605 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 8%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 610,7 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 8,1%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

19.10 Fjölmiðlun

Starfsemi málaflokksins er í höndum Fjölmiðlanefndar, Ríkisútvarpsins ohf. og einka­rekinna fjölmiðla.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Stuðningur við einkarekna fjölmiðla efli ritstjórnir fjölmiðla
Styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla með því að innleiða aðgerðir í aðgerðaáætlun um málefni fjölmiðla 2025–2030.Menningar- , nýsköpunar- og háskólaráðuneytiInnan ramma
Stuðla að umbótum sem styrkt geta fjölmiðlafrelsi á Íslandi.Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytiInnan ramma
Markmið 2: Sjálfstætt ríkisútvarp sem nýtur trausts og sinnir vandaðri og aðgengilegri fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu
Áhersla á leikið íslenskt efni til að auka framboð og gæði á leiknu íslensku sjónvarpsefni skv. þjónustusamningi.RÚVInnan ramma
Áfram verði unnið að því að nýta gervigreind til upp­byggingar á máltæknilausnum og sjálfvirkri textun í rauntíma á íslensku tal- og myndefni.RÚVInnan ramma
Innleiddar verði breytingar á ráðstöfun útvarpsgjalds og stafrænt auglýsingasölukerfi Ríkisútvarpsins tekið í notkun.Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og RÚVInnan ramma
Markmið 3: Aukin stafræn færni, netöryggi og miðlalæsi allra aldurshópa, með áherslu á börn og ungmenni
Samanburðarrannsóknir á stafrænni færni, netöryggi og miðlalæsi.FjölmiðlanefndInnan ramma
Miðlalæsis-, gervigreindarlæsis- og netöryggisfræðsla í grunnskólum til að efla stafræna færni.FjölmiðlanefndInnan ramma
Borgarasamtal, fræðsla um netöryggi til viðkvæmra hópa, m.a. eldri borgara.       FjölmiðlanefndInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 8.137,3 m.kr. og hækkar um 605 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 5,7 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 330 m.kr. til samræmis við tekjuáætlun af útvarpsgjaldi.
  2. Í samræmi við áherslumál ríkisstjórnarinnar er lagt til að framlag til einkarekna fjölmiðla verði aukið um 300 m.kr.
  3. Aðhaldskrafa málaflokksins nemur 25 m.kr. sem er skipt hlutfallslega á stofnanir og verkefni málaflokksins.