21 Háskólastig
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 21 Háskólastig árið 2027 eru áætluð 76.592,8 m.kr. og aukast um 272,4 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 0,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.226,9 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 4,4%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhald er útfært á háskóla og yfirstjórn málefnasviðsins eins og tilgreint er undir hverjum málaflokki.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
21.10 Háskólar og rannsóknarstarfsemi
Starfsemi málaflokksins er í höndum þriggja opinberra og þriggja einkarekinna háskóla, auk rannsóknastofnunarinnar Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Undir málaflokkinn fellur einnig Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands og starfsemi rannsókna-, fræða- og þekkingarsetra á landsbyggðinni auk Gæðamats íslenskra háskóla. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Háskólar í þágu samfélags og atvinnuþróunar um land allt | ||
| Innleiðing heildarstefnu um háskólastarfsemi á Íslandi og framkvæmd aðgerðaáætlunar. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Fjölgun brautskráninga á sviðum með mönnunarþörf, s.s. STEM, heilbrigðisgreinar, kennsla og löggæsla. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Stuðningur við sameiginlegar námsleiðir og prófgráður, innan lands sem á alþjóðavettvangi, m.a. í gegnum Evrópunet háskóla.1,3 | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Efling örnáms og raunfærnimats til að auka sveigjanleika sí- og endurmenntunar háskólamenntaðra og aðgengi ólíkra þjóðfélagshópa að færniþróun. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Framúrskarandi aðstæður fyrir námsmenn | ||
| Áhersla á aðgengilega háskóla, aukna fjölbreytni og inngildingu nemenda og starfsfólks í háskólasamfélaginu, aðgerðir til úrbóta á kynjahalla, og greiðara aðgengi fatlaðra. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Uppbygging húss Heilbrigðisvísindasviðs HÍ með áherslu á betri innviði og umgjörð rannsókna og náms.1 | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti | Innan ramma |
| Uppbygging húsnæðis við Háskólann á Hólum, í þágu fiskeldis- og rannsóknaraðstöðu, auk aðstöðu fyrir námsbraut í hestafræði.1 | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Bygging jarðræktarmiðstöðvar við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.1 | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti | Innan Ramma |
| Markmið 3: Aukin gæði og samkeppnishæfni í alþjóðlegum samanburði | ||
| Heildarendurskoðun á lagaumhverfi háskóla. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Efling háskólastigs með aðgerðum til stuðnings sameiningum og samvinnu háskóla, m.a. í gegnum háskólasamstæðu, sameiginlega stoðþjónustu og alþjóðasamstarf.1,2,3 | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Kannaður verði fýsileiki sameiginlegra siðanefnda háskóla, m.a. m.t.t. gervigreindar.1 | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Unnin verði úttekt á námsbrautum til kennsluréttinda á vegum íslenskra háskóla. | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
- Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 í málaflokki 7.10.
- Verkefnið styður jafnframt við markmið 2 í málaflokki 7.10.
- Verkefnið styður jafnframt við markmið 3 í málaflokki 7.10.
Markmiðin hafa verið endurskoðuð í samræmi við áherslur stjórnvalda í málaflokknum frá því sem birt var í mælaborði árangurs á vefsíðu Stjórnarráðsins í júní sl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 70.046,9 m.kr. og hækkar um 750,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 2.851,5 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 1.343 m.kr. til eflingar á málaflokki háskóla.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 48 m.kr. vegna breyttra forsendna um fjölgun nemenda í lögreglufræðum.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 1.351,4 m.kr. og vegur þar þyngst 660 m.kr. sértækt aðhald vegna fækkunar stöðugilda hjá ríkinu um 1%, en því sem eftir stendur verður dreift hlutfallslega á stofnanir og verkefni málaflokksins.
21.30 Stuðningur við námsmenn
Undir málaflokkinn fellur Menntasjóður námsmanna.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Að tryggja námsmönnum sem falla undir lögin tækifæri til náms, án tillits til efnahags og aðstæðna | ||
| Endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna ásamt úthlutunarreglum, byggð á mati á framkvæmd nýrra laga sem tóku gildi árið 2020.1 | Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Jöfn og gagnsæ dreifing á framlagi ríkisins til nemenda og bætt námsframvinda nemenda í háskólum | ||
| Markmið 3: Að styðja við öflugt menntakerfi sem er forsenda framfara | ||
- Verkefnið styður jafnframt við markmið 2 og 3.
Markmiðin hafa verið endurskoðuð í samræmi við áherslur stjórnvalda í málaflokknum frá því sem birt var í mælaborði árangurs á vefsíðu Stjórnarráðsins í júní sl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 4.170,3 m.kr. og lækkar um 456,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Málaflokkurinn tekur ekki almennum launa- og verðlagsbreytingum.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 463,2 m.kr. vegna uppfærðra áætlana um fjárþörf í málaflokknum.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 36,9 m.kr. í samræmi við breytingar á áætlun í takt við lagabreytingar Menntasjóðs námsmanna.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 22,7 m.kr. með skiptingu niður á stofnanir innan málaflokksins.
21.40 Stjórnsýsla menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis
Undir málaflokkinn fellur starfsemi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis en einnig falla málefni Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís) hér undir. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.375,6 m.kr. og lækkar um 21,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 103,0 m.kr.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helsta breyting á fjárheimildum málaflokksins er eftirtalin:
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 31,2 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2027