22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð mennta- og barnamálaráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála árið 2026 eru áætluð 7.193,1 m.kr. og lækka um 237,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 3,3%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 51,1 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 0,7%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

22.10 Leikskóla- og grunnskólastig

Starfsemi málaflokksins er annars vegar í höndum sveitarfélaganna sem bera ábyrgð á rekstri og kostnaði leik- og grunnskóla og einstökum þáttum skólastarfs og hins vegar hjá mennta- og barnamálaráðuneyti sem fer með stefnumótunar-, yfirstjórnar- og eftirlitshlutverk eins og nánar er kveðið á um í lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla, lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla og lögum um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Styrkja lestrarfærni grunnskólanemenda
Úttekt á tiltækum skimunartækjum fyrir náms- félags- og tilfinningalegum áskorunum barna og ungmenna.1Miðstöð menntunar og skólaþjónustuInnan ramma
Innleiða Matsferil sem samræmt námsmat, þ. á m. valkvæð og skyldubundin stöðu- og framvindupróf á grunnskólastigi, ásamt öðrum skimunar- og matstækjum fyrir leik- og grunnskóla.1Mennta- og barnamálaráðuneyti og Miðstöð menntunar og skólaþjónustuInnan ramma
Útgáfa stafrænna námsgagna fyrir nemendur sem nota táknmál, nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarlegan bakgrunn með sérstaka áherslu á stuðningsefni fyrir íslenskunám, orðaforða og hugtakaskilning.1 Miðstöð menntunar og skólaþjónustuInnan ramma
Markmið 2: Styrkja færni grunnskólanemenda í stærðfræði og náttúrufræði
Þróun og innleiðing námsgagna sem grunnskólar hafa aðgang að með áherslu á læsi og STEM í takt við atvinnustefnu stjórnvalda.2Mennta- og barnamálaráðuneyti og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu380 m.kr.
Innleiðing opinberra gæðaviðmiða fyrir náms- og kennslugögn þvert á skólastig og þróun miðlægrar stafrænnar námsgagnaveitu.2Mennta- og barnamálaráðuneyti og Miðstöð menntunar og skólaþjónustuInnan ramma
Þróun og innleiðing á miðlægum stafrænum nemendagagnagrunni um heildstæðar upplýsingar um nemendur. Áætlað er að þróa grunninn áfram þannig að hann nái líka utan um nemendur í leik- og framhaldsskóla.Miðstöð menntunar og skólaþjónustuInnan ramma
Markmið 3: Bætt líðan barna og aukin gæði menntunar í leik- og grunnskólum
Menntastefna 2030. Verkefni í 2. áfanga ásamt innleiðingu á 3. áfanga – með tilliti til forgangsröðunar.3 Skýra á áherslur stjórnvalda á næstu árum þar sem þungi verður á námsgögn, STEM-greinar, skólaþjónustu, aðalnámskrá, viðmiðunarstundaskrám og endurskoðun á stefnunni „Skóli án aðgreiningar“. Stefnt er að virki þátttöku ungmenna og varpa ljósi á stöðu og áskoranir þeirra.Mennta- og barnamálaráðuneyti og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Innan ramma

 

Innleiðing nýs námsmats kvarða og endurskoðun tiltekinna kafla í aðalnámskrá grunnskóla. Endurskoðun á ytra mati og eftirliti í leik- og grunnskólum. 3Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

 

Áhersla á nýliðun kennara, þ.á.m. í íslensku, STEM-greinum og leikskólakennara.4 Bæta náms- og starfsumhverfi skóla, auka áherslu á starfsþróun kennara og annars starfsfólks skóla. Setja á viðmið um hæfni starfsfólks í íslensku sem ekki eru með íslensku að móðurmáli og auka framboð á námskeiðum í kjarnagreinum grunnskóla, m.a. í Menntafléttu.3Mennta- og barnamálaráðuneyti og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Innan ramma

 

  1. Verkefnið styður jafnframt við markmið 2 og 3.
  2. Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 og 3.
  3. Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 og 2.
  4. Verkefnið styður jafnframt við markmið 1.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 1.672 m.kr. og tekur ekki breytingum frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 53,2 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimildir hækka um 380 m.kr. til útgáfu námsefnis á grunnskólastigi með það að markmiði að efla gæði og framboð námsgagna, sérstaklega í STEM-greinum í samræmi atvinnustefnu stjórnvalda.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 400 m.kr. til stuðnings við börn af erlendum uppruna.
  3. Samhliða falla niður tímabundnar fjárheimildir, samtals að fjárhæð 780 m.kr.

22.20 Framhaldsfræðsla og menntun óflokkuð á skólastig

Starfsemi málaflokksins er í höndum mennta- og barnamálaráðuneytis og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis sem bera ábyrgð á stefnumótun, almennri stjórnsýslu og gæðaeftirliti. Meginverkefni málaflokksins lögum samkvæmt eru kennsla og þjónusta við fullorðna einstaklinga með stutta skólagöngu til að auðvelda þeim að hefja nám að nýju eða efla starfshæfni. Markmið framhaldsfræðslu er að hækka menntunarstig í landinu og stuðla að því að nám og reynsla sem aflað hefur verið utan hins formlega skólakerfis sé metið að verðleikum.

Framhaldsfræðsla tengist samstarfi hins opinbera við samtök aðila á vinnumarkaði og við samtök um málefni fatlaðs fólks. Starfsemin fer að mestu fram hjá sjálfseignarstofnunum, frjálsum félagasamtökum og fræðsluaðilum. Undir málaflokkinn fellur einnig íslenskukennsla fyrir innflytjendur og málefni Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Að efla gæði og framboð íslenskukennslu fyrir fullorðna innflytjendur til að auðvelda þeim að taka virkan þátt í samfélaginu
Stuðningur við og eftirfylgd með samstarfs- og nýsköpunarverkefnum styrkhafa um fjölbreytt íslenskunám fyrir ólíka hópa innflytjenda.5Mennta- og barnamálaráðuneytiInnan ramma
Mótun heildstæðari umgjarðar um íslenskunám fullorðinna innflytjenda m.t.t. aðgengis, gæða, skilvirkni og framkvæmdar samhæfðra stöðuprófa.

 

Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við hagsmunaaðila

Innan ramma
Markmið 2: Að auðvelda fullorðnu fólki með stutta skólagöngu að afla sér menntunar og starfsréttinda
Einfalda framsetningu vottaðra námskráa framhaldsfræðslu svo leiðir í áframhaldandi nám séu skýrar og raunfærnimat til staðar inn á námsbrautir framhaldsskóla.Mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við hagsmunaaðilaInnan ramma
Vinna að viðurkenningu á námslokum innan framhaldsfræðslu á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun.

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

 

Innan ramma

 

Markmið 3: Að efla þjónustu við táknmálsfólk
 Framkvæmd aðgerða skv. þingsályktun um málstefnu íslensks táknmáls. Unnið verði að endurskoðun laga um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sbr. aðgerð 1 sem fellur undir meginstoð E í aðgerðaáætlun.Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, málnefnd um íslenskt táknmál o.fl.Innan ramma

      5. Styrkt verkefni byggja á menntastefnu 2030 og þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.713,9 m.kr. og lækkar um 196,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 110 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 130 m.kr. vegna íslenskukennslu fyrir útlendinga.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 254 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 91 m.kr.

22.30 Stjórnsýsla mennta- og barnamála

Hlutverk mennta- og barnamálaráðuneytisins er að stuðla að því að menntun, aðbúnaður og réttindi barna séu ávallt í fyrirrúmi. Ráðuneytið fer með stjórnarmálefni sem varða fræðslumál, málefni barna og ungmenna og íþróttamál. Ráðherra fer með yfirstjórn þeirra stjórnvalda sem undir hann heyra og hefur eftirlit með starfrækslu, fjárreiðum og eignum á vegum þeirra. Á sviðinu starfar Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, sbr. lög nr. 91/2023, sem hefur það hlutverk að starfa í þágu barna og ungmenna á sviði fræðslu- og menntamála um land allt í samræmi við lög, stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 2.807,2 m.kr. og lækkar um 41,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 125,4 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 37,1 m.kr. vegna fækkunar stöðugilda hjá ríkinu, um 1% af heildarfjölda og sértækra aðhaldsráðstafana.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 0,2 m.kr.