27 Örorka og málefni fatlaðs fólks

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjár­málaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Heildargjöld málefnasviðs 27 Örorka og málefni fatlaðs fólks árið 2027 eru áætluð 153.553,3 m.kr. og aukast um 2.149,3 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 1,5%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 12.259,7 m.kr. milli ára eða sem svarar til 8,7%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

27.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar en stofnunin sér um framkvæmd og ábyrgð greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar. Umræddar greiðslur skiptast í örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, auk aldursviðbótar, barnalífeyris og meðlags.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Einfaldara og sveigjanlegra greiðslukerfi almannatrygginga vegna skertrar starfsgetu
Áframhaldandi innleiðing á samþættu sérfræðimati skv. lögum um almannatryggingar.TryggingastofnunInnan ramma
Ný og endurbætt vinnslukerfi sem einfalda umsóknar­ferli, skýra leiðbeiningar og upplýsingar til umsækjenda og þjónustuaðila.TryggingastofnunInnan ramma
Yfirfærsla allra umsókna TR og samskipta yfir á Island.is.TryggingastofnunInnan ramma
Markmið 2: Auka færni til atvinnuþátttöku að fullu eða að hluta
Áframhaldandi innleiðing og þróun samvinnu þjón­ustu­aðila endurhæfingar til að tryggja rétta þjónustu á rétt­um tíma.TryggingastofnunInnan ramma
Áframhaldandi innleiðing og þróun samþætts sérfræði­mats.Tryggingastofnun

Innan ramma

 

Upplýsingar og fræðsla til umsækjenda og fagaðila um hlutaörorku.Tryggingastofnun

Innan ramma

 

Markmið 3: Minnka nýgengi örorku
Áframhaldandi innleiðing á sjúkra- og endurhæfingar­greiðslum sem m.a. er ætlað að stuðla að viðeigandi endurhæfingarúrræðum til að auka skilvirkni endur­hæfingar.TryggingastofnunInnan ramma
Samskipti og samvinna fagaðila í gegnum samhæfingar­teymi um allt land og upplýsingagjöf í gegnum þjónustu­gátt.TryggingastofnunInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 128.666,4 m.kr. og hækkar um 1.870,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 8.753,7 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 300 m.kr. vegna breyttrar reiknireglu orlofs- og desemberuppbóta vegna nýs greiðslukerfis örorkulífeyris.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 2.300 m.kr. vegna endurmats á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum ársins 2026.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 2.500 m.kr., m.a. með sérstöku aðhaldi þar sem gert er ráð fyrir að dragi úr vexti á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.
  4. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.770,6 m.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  5. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.

27.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, örorka

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar en stofnunin sér um framkvæmd og ábyrgð greiðslna skv. lögum um félagslega aðstoð.

Samkvæmt lögum um félagslega aðstoð er heimilt að greiða ýmiss konar styrki og uppbætur eins og heimilisuppbót, uppbót á lífeyri vegna tiltekins kostnaðar lífeyrisþega og uppbætur og styrki vegna bifreiðakaupa og reksturs bifreiða. Greiðslur vegna barnalífeyris falla einnig undir málaflokkinn.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 19.449,3 m.kr. og hækkar um 267,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.323,3 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 267,9 m.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  2. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar almennri aðhaldskröfu.

27.30 Málefni fatlaðs fólks

Þjónusta við fatlað fólk fer skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og fara sveitarfélög með framkvæmd þjónustu.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var lögfestur hér á landi árið 2025. Til að vinna að innleiðingu samningsins er í gildi framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027, í formi landsáætlunar. Áætlunin felur í sér 60 aðgerðir þvert á ráðu­neyti sem eru til þess fallnar að koma í framkvæmd ákvæðum samningsins, m.a. að hægt verði að ná í upplýsingar um réttindi og þjónustu við fatlað fólk og fjölskyldur þess á einum stað (aðgerð A.12), að útbúið verði fræðsluefni fyrir starfsfólk sem sinnir þjónustu við fatlað fólk um réttindi fatlaðs fólks og leiðir í þjónustu sem verndi sjálfsákvörðunarrétt og sjálfræði og komi í veg fyrir að nauðung sé beitt (aðgerð A.7) og gerð verði úttekt á launum og kjörum fatlaðra einstaklinga á aðgreindum vinnustöðum með það að markmiði að skýra betur skilin á milli vinnu og hæfingar ásamt því að auka gagnsæi og jafnrétti á milli hópa (aðgerð D.9).

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 84,3 m.kr. og lækkar um 1,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 2,6 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Aðhaldskrafa málefnasviðsins nemur 1,5 m.kr.

27.40 Aðrar örorkugreiðslur

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar en stofnunin sér um framkvæmd og ábyrgð greiðslna skv. lögum um almannatryggingar. Greiðslur sem falla undir málaflokkinn eru aðrar ótaldar greiðslur vegna örorku eins og greiðslur vegna vottorða, vaxta o.fl.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 453,3 m.kr. og hækkar um 12,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 30,8 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 12,3 m.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  2. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.

27.50 Jöfnun á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða

Undir þennan málaflokk heyrir jöfnun á örorkubyrði lífeyrissjóða en fjárframlög hafa verið veitt úr ríkissjóði til að jafna og lækka mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða í samræmi við lög nr. 113/1990, um tryggingagjald. Fjárheimild málaflokksins verður óbreytt á milli ára, alls 4.900 m.kr. á meðan enn stendur yfir endurskoðun á fyrirkomulagi jöfnunarframlagsins.