28 Málefni aldraðra

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun mál­efnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Heildargjöld málefnasviðs 28 Málefni aldraðra árið 2027 eru áætluð 140.064,6 m.kr. og aukast um 4.746,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 3,8%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 14.274,5 m.kr. milli ára eða sem svarar til 11,3%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

28.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, lífeyrir aldraðra

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar sem annast framkvæmd með greiðslum skv. lögum um almannatryggingar en það eru greiðslur ellilífeyris og ráð­stöfunarfé ellilífeyrisþega. Almennt frítekjumark ellilífeyris verður hækkað í þremur skrefum í 60 þúsund kr., fyrst þann 1. janúar 2026, annað skref 1. janúar 2027 og loks þann 1. janúar 2028.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 128.440,8 m.kr. og hækkar um 4.447,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 8.738,2 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Gert er ráð fyrir 990 m.kr. útgjaldaaukningu vegna 5 þúsund. kr. hækkunar á mánaðarlegu almennu frítekjumarki ellilífeyris. Gert er ráð fyrir að það hækki frá 1. janúar 2027.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 3.457,7 m.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  3. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.

28.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, öldrun

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar sem ber ábyrgð á framkvæmd greiðslna málaflokksins. Samkvæmt lögum um félagslega aðstoð er heimilt að greiða ýmiss konar styrki og uppbætur eins og heimilisuppbót, uppbót á lífeyri vegna tiltekins kostnaðar lífeyrisþega og uppbætur og styrki vegna bifreiðakaupa og reksturs bifreiða.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 10.862,9 m.kr. og hækkar um 269 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 739 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 269 m.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  2. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.

28.30 Þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur, ótaldar

Undir þjónustu við aldraða og aðrar greiðslur, ótaldar, falla greiðslur skv. lögum um eftirlaun til aldraðra, nr. 113/1994, og greiðslur skv. lögum um félagslegan viðbótar­stuðning við aldraða, nr. 74/2020. Með síðarnefndu lögunum hefur verið komið til móts við þann hóp aldraðra sem ekki hefur áunnið sér full réttindi í almannatryggingum. Líkt og gildir um mála­flokk 28.20 ber Tryggingastofnun ábyrgð á framkvæmd greiðslna sem falla undir málaflokk­inn.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 760,9 m.kr. og hækkar um 29,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 50,7 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Gert er ráð fyrir 10 m.kr. útgjaldaaukningu vegna hækkunar á mánaðarlegu almennu frítekjumarki félagslegs viðbótarstuðnings fyrir aldraða. Gert er ráð fyrir að það hækki frá 1. janúar 2027 og verði jafn hátt frítekjumarki ellilífeyris.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 19,9 m.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  3. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.