30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun mál­efnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi árið 2027 eru áætluð 56.957,3 m.kr. og aukast um 5.728,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 11,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka út­gjöldin um 7.756,9 m.kr. milli ára eða sem svarar til 15,8%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjaldað

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

30.10 Vinnumál og atvinnuleysi

Starfsemi málaflokksins er í höndum Vinnumálastofnunar og Ábyrgðasjóðs launa. Í töfl­unni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjár­mögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Draga úr fjarveru á vinnumarkaði
Greining á þjónustuþörf einstaklinga án atvinnu þannig að unnt sé að veita einstaklingsmiðaða og markvissa aðstoð með það að markmiði að draga úr langtíma­atvinnuleysi.VinnumálastofnunInnan ramma
Reglulegar mælingar og greiningar á árangri vinnu­markaðsaðgerða og afdrifum þeirra atvinnuleitenda sem fullnýta rétt sinn til atvinnuleysistrygginga.VinnumálastofnunInnan ramma
Aukið eftirlit með greiðslu atvinnuleysistrygginga.VinnumálastofnunInnan ramma
Markmið 2: Efla stuðningsúrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu í tengslum við þátttöku þess á vinnumarkaði
Einstaklingsmiðuð þjónusta við einstaklinga með skerta starfsgetu, s.s. „atvinna með stuðningi“ (AMS) og sérstök þjónusta við ungt fólk (IPS) sem stendur frammi fyrir geðrænum eða félagslegum áskorunum..VinnumálastofnunInnan ramma.
Stuðningur við atvinnurekendur til að ráða einstaklinga með skerta starfsgetu og fjölga hlutastörfum.Vinnumálastofnun100 m.kr.

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 54.961,9 m.kr. og hækkar um 5.755,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.945,5 m.kr.

Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 5.711,4 m.kr. vegna atvinnuleysisbóta í sam­ræmi við uppfærða þjóðhagsspá m.t.t. breytinga á atvinnuleysi og mannfjölda á vinnufærum aldri.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. vegna vinnumarkaðsúrræða fyrir fólk með skerta starfsgetu í tengslum við heildarendurskoðun örorkulífeyriskerfisins.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 92,5 m.kr. vegna starfsendurhæfingasjóða.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 10,8 m.kr. vegna niðurlagningar Trygginga­sjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga, sbr. lög nr. 62/2026, sem samþykkt voru á Alþingi í júní 2026.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 107,9 m.kr.

30.20 Vinnumarkaður

Starfsemi málaflokksins er í höndum embættis ríkissáttasemjara og Vinnueftirlits ríkisins. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Öruggari og heilsusamlegir vinnustaðir 
Mat og greining á gagnaumhverfi Vinnueftirlitsins með það að markmiði að upplýsingatækni styðji betur við kjarnastarfsemi stofnunarinnar.Vinnueftirlit ríkisinsInnan ramma
Samstarfsverkefni stjórnvalda, samtaka aðila vinnu­markaðarins og VIRK starfsendurhæfingarsjóðs ses. um aðgerðavakningu um áhrif heilbrigðrar vinnu­staðamenningar á líðan starfsfólks á vinnustöðum með áherslu á jákvæð og uppbyggileg samskipti.Vinnueftirlit ríkisinsInnan ramma
Vitundarvakning um heilbrigða vinnustaðamenningu í heilbrigðisþjónustu.Vinnueftirlit ríkisinsInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 1.995,4 m.kr. og lækkar um 27 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 83,2 m.kr.

Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 27 m.kr.