31 Húsnæðis- og skipulagsmál

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafn­framt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. 

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 31 Húsnæðis- og skipulagsmál árið 2027 eru áætluð 22.115,4 m.kr. og lækka um 3.993,4 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 15,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 3.797,7 m.kr. milli ára eða sem svarar til 14,7%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

31.10 Húsnæðismál

Undir starfsemi málaflokksins falla húsnæðisbætur, stofnframlög, hlutdeildarlán og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum
Heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins.*Félags- og húsnæðismálaráðuneyti og HMSInnan ramma
Hlutdeildarlán til fyrstu íbúðarkaupa efld enn frekar.*Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti og HMSInnan ramma
Staða leigjenda styrkt með breyttri löggjöf um reglu­bundnar breytingar á leigufjárhæð og tryggingar fyrir efndum leigusamnings.*Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti og HMSInnan ramma
Markmið 2: Jafnvægi á húsnæðismarkaði
Samningar við sveitarfélög um uppbyggingu íbúðar­húsnæðis á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitar­félaga til að tryggja nægt og tímanlegt lóðaframboð.**Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti og HMSInnan ramma
Liðkað fyrir umbreytingu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði.**Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti og HMSInnan ramma
Leigumarkaðurinn á landsbyggðinni efldur.**Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti og HMSInnan ramma
Markmið 3: Skilvirkari stjórnsýsla og gæði íbúða í jafnvægi við umhverfið
Aukin réttarvernd neytenda vegna byggingargalla með breyttu fyrirkomulagi byggingareftirlits.*Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti, HMSInnan ramma
Einfaldara regluverk með endurskoðun byggingar­reglugerðar og laga um mannvirki.**Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti og HMSInnan ramma
Auknar rannsóknir og prófanir á sviði húsnæðis- og mannvirkjamála með samstarfsvettvangnum Burði.*Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti, HMS og SkipulagsstofnunInnan ramma

*Verkefnið styður jafnframt við markmið 2.

** Verkefnið styður jafnframt við markmið 1.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 21.780,9 m.kr. og lækkar um 3.495,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 195,7 m.kr.

Ekki er um teljandi breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Stofnframlög vegna almennra leiguíbúða lækka um 3.000 m.kr. þar sem nýting þeirra hefur verið undir áætlunum og nemur fjárveitingin 4.500 m.kr. árið 2027.
  2. Fjárheimild Skipulagsstofnunar, 498,2 m.kr., flyst yfir til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í kjölfar sameiningar stofnananna í febrúar 2026.

c.       Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 193,4 m.kr.

31.20 Skipulagsmál

Undir starfsemi málaflokksins fellur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) og Skipulagssjóður. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum mála­flokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregn­ar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Vernd umhverfis og náttúru
Greining á upplýsingum um landnýtingu og stöðu og þróun skipulagsmála og gerð vegvísis um umbætur.HMSInnan ramma
Forgangsröðun verkefna vegna skipulags strandsvæða.Félags- og húsnæðis­málaráðuneyti, HMSInnan ramma
Markmið 2: Velsæld samfélags
Samþætting húsnæðisáætlana og skipulagsáætlana til að auka yfirsýn og bæta gögn um framtíðarmöguleika í hús­næðisuppbygginguFélags- og húsnæðis­málaráðuneyti og HMSInnan ramma
Markmið 3: Samkeppnishæft atvinnulíf
Endurskoðun skipulagslaga..Félags- og húsnæðis­málaráðuneytiInnan ramma
Styrkt verði leiðbeinandi hlutverk HMS við sveitarfélög við skipulagsgerð og afgreiðslu skipulagstillagna.HMSInnan ramma
Gerð verði strandsvæðisskipulög í Eyjafirði og Skjálfanda.HMSInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 334,5 m.kr. og lækkar um 498,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum.