33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar

Starfsemi málefnasviðsins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar sést fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu eru á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum en nánar er greint frá þeim í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar árið 2027 eru áætluð 215.377 m.kr. og aukast um 4.998 m.kr. á milli ára eða sem svarar til 2,4%.

Myndin endurspeglar útfærslu og forgangsröðun út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

33.10 Fjármagnskostnaður

Starfsemi málaflokksins er í höndum fjármála- og efnahagsráðherra. Í töflunni hér fyrir neðan eru helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins. Nánari umfjöllun um lánsfjármál ríkissjóðs er í 9. kafla greinargerðar frumvarpsins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Viðhalda sjálfbærni skulda ríkissjóðs
Hagstæð fjármögnun ríkissjóðs með jöfnu afborgunarferli og lágmörkun áhættu.Fjármála- og efnahags­ráðuneytiInnan ramma
Uppbygging áhættustýringar fyrir ríkissjóð.Fjármála- og efnahags­ráðuneytiInnan ramma
Markmið 2: Lágmörkun fjármagnskostnaðar að teknu tilliti til áhættu
Endurfjármögnun útistandandi skulda þegar tækifæri gefast á betri vaxtakjörum.Fjármála- og efnahagsráðuneytiInnan ramma
Lagt verði mat á samsetningu efnahags ríkissjóðs með hagkvæmni og áhættu að leiðarljósi.Fjármála- og efnahagsráðuneytiInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 136.085 m.kr. og hækkar um 6.716 m.kr. frá gildandi fjárlögum.

Hækkun heimildarinnar á milli ára er að mestu vegna aukningar skulda og hækkunar vaxta innanlands og erlendis. Nánari umfjöllun um fjármagnskostnað ríkissjóðs er í 5. kafla og 9. kafla.

33.20 Ríkisábyrgðir

Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra.

Í töflunni hér fyrir neðan eru helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Draga úr ríkisábyrgðum
Endurlána ríkisfyrirtækjum og sjóðum í stað þess að heimila lántökur með ríkisábyrgð.Fjármála- og efnahagsráðuneytiInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 110 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum. Nánar er fjallað um ríkisábyrgðir í 11. kafla frumvarpsins um fjárhagsáhættu ríkissjóðs.

33.30 Lífeyrisskuldbindingar

Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Í töflunni hér fyrir neðan eru helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Minnka ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar
Ríkissjóður greiði 11,1 ma.kr. inn á lífeyrisskuldbindingar sínar.Fjármála- og efnahagsráðuneytiInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 79.181,5 m.kr. og lækkar um 1.718,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Hrein lífeyrisskuldbinding ríkissjóðs hækkaði um 164.675 m.kr. á árinu 2025 og stóð í 1.097.565 m.kr. í árslok. Hækkunina má helst rekja til breytinga á launum opinberra starfsmanna en vísitala lífeyrisskuldbindinga fyrir opinbera starfsmenn hækkaði um 10% á árinu 2025. Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2026 hefur vísitalan hækkað um 4,3%. Gert er ráð fyrir að heildarlífeyrisskuldbinding ríkissjóðs vegna B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins nái hámarki um þessar mundir en fari svo lækkandi sem leiðir til lækkandi gjaldfærslu að jafnaði á næstu árum. Ríkissjóður greiðir 11,1 ma.kr. til B-deildar LSR á árinu 2027 til viðbótar við lífeyrishækkanir ársins. Í fjármálaáætlun 2027–2031 er gert ráð fyrir að þessar forinngreiðslur verði verðtryggðar a.m.k. til ársins 2031.