34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Starfsemi málefnasviðsins er þess eðlis að ekki verður fjallað um markmið og aðgerðir varðandi það.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir árið 2027 eru áætluð 26.183 m.kr. og aukast um 1.327 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 5,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 1.565 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 6,4%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

34.10 Almennur varasjóður

Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Samkvæmt 24. gr. laga um opinber fjármál er almennum varasjóði ætlað að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg. Almennum varasjóði er einkum ætlað að mæta frávikum í launa-, gengis- og verðlagsforsendum fjárlaga og meiri háttar ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum, s.s. vegna náttúruhamfara, eða útgjöldum sem ókleift er að mæta með öðrum hætti samkvæmt fjárlögum.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 18.133,8 m.kr. og hækkar um  956,4 m.kr. eða 7% frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 233 m.kr. Breyting á á umfangi almenna varasjóðsins er ætlað að tryggja getu varasjóðsins til þess að standa undir lögbundnu verkefni sínu, sbr. 24. gr. laga um opinber fjármál, og viðhalda varasjóðunum umfram hið lögbundna lágmark sem nemur 1% af heildarfjárheimildum komandi fjárlagaárs.

34.20 Sértækar fjárráðstafanir

Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra en nánar er fjallað um hann í fjármálaáætlun. Annars vegar er hér um að ræða útgjöld samkvæmt heimildarákvæðum, alls 323,5 m.kr. og hins vegar Ríkisstjórnarákvarðanir (ráðstöfunarfé ríkisstjórnar) alls 167,5 m.kr. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 491 m.kr. og hækkar um 5,1 m.kr. sem nemur launa- og verðlagsbótum frá fjárlögum 2026. 

34.30 Afskriftir skattkrafna

Starfsemi málaflokksins er í höndum fjármála- og efnahagsráðherra. Um er að ræða fjárheimild á móti gjaldfærslu á bæði beinum afskriftum skattkrafna sem taldar eru sannanlega tapaðar, t.d. vegna gjaldþrota, og óbeinum afskriftum þar sem kröfur eru færðar niður um tiltekinn hluta sem reynsla bendir til að muni að líkindum ekki innheimtast. Um er að ræða kröfur vegna álagðra skatta, álagðra vaxta á ógreidda skatta og annarra tekna. Afskriftir skattkrafna eru færðar til gjalda samkvæmt IPSAS-staðli en til tekjulækkunar samkvæmt GFS-staðli. Þær hafa bein áhrif á afkomu ársins en hvorki á sjóðstreymi né skuldir ríkissjóðs.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 7.558,1 m.kr. og hækkar um 370 m.kr. frá gildandi fjárlögum í samræmi við áætlanir.