35 Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð utanríkisráðherra. Undir málefnasviðið heyrir einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 35 Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands árið 2027 eru áætluð 16.705 m.kr. og aukast um 332,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026, eða sem svarar til 2%. Þar sem útgjöld málefnasviðsins eru miðuð við tiltekið hlutfall af vergum þjóðartekjum eru ekki gerðar almennar launa- eða verðlagsbreytingar á fjárheimild málefnasviðsins á milli ára.
Myndin endurspeglar þá útfærslu sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
35.10 Þróunarsamvinna
Starfsemi málaflokksins er í höndum þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytis, sendiskrifstofa Íslands í Lilongwe, Kampala og Freetown sem og fastanefnda Íslands í New York, Genf, París og Róm. Íslensk stjórnvöld leggja sig fram um að vera áreiðanlegur samstarfsaðili í þróunarsamvinnu, fara vel með þróunarfé og vinna skv. bestu starfsvenjum. Utanríkisráðuneytið á í markvissu samstarfi við alþjóðastofnanir og samstarfslönd með framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Rammasamningum við áherslustofnanir og frjáls félagasamtök er ætlað að auka sveigjanleika, fyrirsjáanleika og viðbragðsflýti þeirra. Unnið er eftir stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028 en yfirmarkmið þróunarsamvinnu Íslands eru útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði sem grundvallast á framtíðarsýn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Uppbygging mannauðs og samfélagslegra grunnstoða með áherslu á mannréttindi og jafnrétti kynjanna | ||
| Héraðsþróunarverkefni í Malaví, Síerra Leóne og Úganda (HM 4, 3, 6, 5). | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Samstarf við UNICEF, UNFPA og WFP í samstarfslöndum á sviði mennta-, heilbrigðis- og vatns- og hreinlætismála. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Stuðningur við frjáls félagasamtök og kjarnastofnanir SÞ sem vinna í þágu mannréttinda og kynjajafnréttis (HM 5, 10). | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Viðbrögð gegn loftslagsvánni, efling viðnámsþróttar samfélaga og sjálfbær nýting náttúruauðlinda | ||
| Stuðningur við áherslustofnanir á sviði umhverfis- og loftslagsmála, þ.e. Græna loftslagssjóðinn, Aðlögunarsjóðinn og Norræna þróunarsjóðinn (HM 13). | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Stuðningur við verkefni um aukna nýtingu og aðgang að endurnýjanlegri orku og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, þar á meðal á vegum Alþjóðabankans (HM 7, 14). | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Stuðningur við GRÓ – þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu með færni- og þekkingaruppbyggingu (HM 7, 15, 14, 13). | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 3: Ísland er áreiðanlegur samstarfsaðili í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðarmálum og beitir sér í þágu stöðugleika og friðar | ||
| Fyrirsjáanlegur og tímanlegur stuðningur við lykilstofnanir SÞ á sviði mannúðaraðstoðar. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
| Efnahags- og mannúðarstuðningur við Úkraínu. | Utanríkisráðuneyti | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 16.705 m.kr. og hækkar um 332,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Ekki eru gerðar almennar launa- og verðlagsbreytingar á fjárheimild málaflokksins. Ekki er um verulegar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Framlög til málaflokksins aukast um 343 m.kr., byggt á spá Hagstofunnar um vergar þjóðartekjur. Tillagan er liður í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2025–2028 þar sem stefnt var að því að framlög Íslands til þróunarsamvinnu færu hækkandi yfir tímabil fjármálaáætlunar 2025–2028 úr 0,35% af vergum þjóðartekjum (VÞT) árið 2025 í 0,46% árið 2028. Samkvæmt þeirri stefnu var gert ráð fyrir því að framlög til opinberrar þróunaraðstoðar (ODA) næmu 0,43% af VÞT árið 2027. Að svo stöddu er stefnt að því að framlög til málaflokksins verði 0,30% af VÞT á árinu 2027, en auk þess teljast ýmis útgjöld sem falla undir önnur málefnasvið til ODA og ef tekið er tillit til þeirra er gert ráð fyrir að umfang ODA nemi 0,33% af VÞT á árinu 2027.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 5,6 m.kr. og verður útfærð við gerð rekstraráætlunar fyrir árið 2027.
Fjárlög fyrir árið 2027