Batnandi lánshæfismat ríkissjóðs - Rammagrein 4

Á síðustu misserum hefur lánshæfismat íslenska ríkisins farið batnandi hjá matsfyrirtækjunum þremur; Moody´s, S&P Global Ratings og Fitch ratings. Bætt lánshæfismat hefur að óbreyttu jákvæð áhrif á lánskjör ríkissjóðs og þar með einnig jákvæð áhrif á fjármögnunarkjör annarra innlendra aðila þar sem kjör ríkissjóðs eru grunnurinn að verðlagningu.

Ákveðinn samhljómur hefur verið í tilkynningum matsfyrirtækjanna um ástæður hækkandi lánshæfiseinkunnar. Þar vegur þyngst sterkari staða opinberra fjármála og horfur á lækkandi skuldahlutfalli hins opinbera, pólitísk samstaða um áherslu á varfærni í ríkisfjármálum og áætlun um að snúa við hallarekstri ríkissjóðs í náinni framtíð. 

Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs

Lækkun skuldahlutfalls við uppgjör ÍL-sjóðs og niðurgreiðsla skulda við sölu á Íslandsbanka lykilþáttur í bættu lánshæfismati

 

Fitch hækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs 6. febrúar sl. og í mars breytti S&P horfum á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í jákvæðar úr stöðugum. Mat fyrirtækjanna endurspeglar að opin¬ber fjármál eru á réttri braut. Horfur eru á afkomubata og lækkun skuldahlutfalls á næstu árum. Að mati Fitch styðja stöðugleikareglan, áherslur ríkissjóðs og víðtæk pólitísk samstaða um að stöðva hallarekstur árið 2027 við þessa þróun. Mikil lækkun skuldahlutfallsins skv. Maastricht-skilgreiningu í kjölfar uppgjörs ÍL-sjóðs og sölu á eignarhlut ríkissjóðs á Íslandsbanka, en söluandvirðið var að fullu nýtt til niðurgreiðslu skulda, er lykilþáttur í ákvörðun Fitch.

Fitch hækkaði matseinkunn ríkissjóðs umfram það sem matslíkan fyrirtækisins gefur til kynna þar sem líkanið fangar ekki, að þeirra mati, að fullu þann ábata sem uppgjör ÍL-sjóðs hafði fyrir ríkissjóð.

Jákvæðar horfur S&P fela sömuleiðis í sér viðurkenningu á því að opinber fjármál séu á réttri braut. Takist að ná markmiðum fjármálaáætlunar eru góðar líkur á að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs verði hækkuð í AA- á komandi misserum. Þar vega þungt sjálfbær afkoma og lækkandi skuldahlutfall.

Jákvæðar horfur um lánshæfismatið er ekki aðeins viðurkenning á því að fjármál hins opinbera séu á réttri braut, heldur einnig vísbending um að matsfyrirtækið telji nýleg útflutningsáföll vera tímabundin og ekki merki um veikingu undirliggjandi styrks hag¬kerfisins. Nýtt mat S&P bendir til þess að leiðin að AA- lánshæfiseinkunn sé tiltölulega skýr: að viðhalda aðhaldi í ríkisfjármálum, ná markmiðum um hallalaus fjárlög árið 2027 og um leið viðvarandi lækkun skuldahlutfalls. Jafnframt þarf að halda áfram að draga úr viðkvæmni hagkerfisins gagnvart ytri áföllum, m.a. með fjölbreyttari útflutningi.

Lánshæfismat ríkissjóðs endurspeglar enn fremur sterka erlenda eignastöðu hagkerfisins, en erlendar eignir umfram erlendar skuldir þjóðarbúsins nema nú 43% af VLF (u.þ.b. 2.100 ma.kr.), rúmum gjaldeyrisvaraforða sem nemur tæplega 1.000 ma.kr., vel fjármagnað banka-kerfi, miklar eignir lífeyrissjóða og vaxandi fjölbreytni útflutnings. 
Styrkleiki þeirrar umgjarðar um efnahagsmál sem mótuð hefur verið á síðustu 15 árum og enn efld á þessu kjörtímabili, m.a. með innleiðingu stöðugleikareglu, hefur átt markverðan þátt í að byggja undir bætt lánshæfi ríkissjóðs. 

Ríkisábyrgðir minnkuðu um 90%

Með uppgjöri ÍL-sjóðs og farsælli sölu á eignarhlutum ríkissjóðs í Íslandsbanka lækkaði skuldahlutfall ríkissjóðs ekki aðeins verulega, heldur minnkuðu ríkisábyrgðir um 90%. Þótt skuldastaða ríkissjóðs sé almennt á svipuðu reki og skuldir ríkissjóða með sambærilega lánshæfiseinkunn, þá er staða ríkissjóðs Íslands sterkari að mörgu leyti. Það leiðir einkum af því að ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar eru óverulegar á Íslandi vegna ógnarsterks lífeyriskerfis og hagfelldrar aldurssamsetningar þjóðarinnar. Þessar skuldbindingar, sem almennt er ekki litið til þegar lagt er mat á skuldastöðu ríkja, hlaupa víða á hundruðum prósenta af landsframleiðslu. 

Síðasta hækkun lánshæfismats ríkissjóðs á undan hækkun Fitch var í september 2024 þegar Moody’s hækkaði einkunnina úr A2 í A1. Sú einkunn er sambærileg við A+ einkunn Fitch. Í nóvember 2023 hækkaði S&P lánshæfiseinkunn ríkissjóðs um einn flokk, úr A í A+. Síðustu áratugi hefur ríkissjóður verið með samningssamband um mat á lánshæfi Íslands við þrjú stærstu matsfyrirtækin; Fitch Ratings, Moody’s Ratings og S&P Global Ratings.

Haustið 2025, að loknu útboðsferli, ákvað fjármála- og efnahagsráðuneytið að fækka matsfyrirtækjum með samningssambandi úr þremur í tvö, af hagkvæmnisjónarmiðum. Í ljósi þess ákvað Fitch að afturkalla áframhaldandi mat á lánshæfi ríkissjóðs. Ríkissjóður verður áfram með samningssamband við Moody’s Ratings og S&P Global Ratings um mat á lánshæfi ríkissjóðs.